Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Aldarminning
Pétur Júlíus Jó-
hannsson fæddist í
Skógarkoti í Þing-
vallasveit 18. júlí
1911.
Foreldrar hans
voru hjónin Jóhann
Kristjánsson og Ól-
ína Jónsdóttir en
þau voru síðustu
ábúendur í Skógar-
koti, frá 1909 til
1936. Jóhann bóndi í
Skógarkoti var Þingvellingur að
uppruna. Bjuggu foreldrar hans
Kristján Ámundason og Gréta M.
Sveinsdóttir á Kárastöðum frá
1884 til 1903. Ólína var af hún-
vetnskum ættum. Bræður Péturs
Pétur Júlíus
Jóhannsson
voru Jón og Krist-
ján, báðir látnir.
Systurnar voru
Gréta, látin, og Her-
dís, f. 23. júlí 1913.
Árið 1938 kvænt-
ist Pétur fyrri konu
sinni Guðrúnu M.
Finnbogadóttir.
Hún var upprunnin
á Ísafirði, komin af
Kollsvíkurætt. Þau
bjuggu á Akranesi
og starfaði Pétur hjá HB við
verkstjórn. Þeim varð tveggja
sona auðið: Þröstur, lést árið
2000, og Ægir.
Guðrún varð skammlíf og féll
frá 1941 aðeins 24 ára. Þá þungu
raun bar Pétur óbugaður sem
aðrar. Bjó hann enn um sinn á
Akranesi, en fluttist til Reykja-
víkur árið 1947 og varð fram-
kvæmdastjóri á bifreiðastöðinni
Hreyfli. Stóð svo til ársins 1960
en þá rættist draumur, sem Pét-
ur lengi hafði með sér alið. Hvarf
hann nú heim í Þingvallasveit að
nýju. En árið 1959 kvæntist Pét-
ur seinni konu sinn, Guðrúnu M.
Sæmundsdóttur, sem fædd var
að Litlu Hlíð á Barðaströnd. Þau
Pétur settust að í Mjóanesi í
Þingvallasveit og bjuggu þar til
ársins 1974. Í Mjóanesi hafði Pét-
ur verulegt fjárbú og stundaði sil-
ungs- og murtuveiði í Þingvalla-
vatni.
Snemma varð ljóst að Pétur J.
Jóhannsson ætti öðrum mönnum
fremur aðgang að námu, sem nú
er eflaust lokuð, en það er vitn-
eskja um leyndardóma Þjóð-
garðsins á Þingvöllum í smæstu
efnum. Bestu menn hafa skrifað
öndvegisrit í þessari grein og er
þar fjölmörgu til skila haldið. En
Pétur vissi fleira. Því varð það að
ráði að hann fengi í hendur loft-
myndir af þjóðgarðinum. Þar
skrásetti hann örnefnin öll, sem
honum voru kunn, vel á sjöunda
hundrað innan þjóðgarðsmark-
anna. Þingvallanefnd sýndi Pétri
verðskuldaðan sóma af þessu til-
efni. Nú er verkið varðveitt hjá
Landmælingum Íslands. Mun
það verða fræðibrunnur, þeim er
ausa vilja af á komandi tíma. Með
þeim hætti lét Pétur J. Jóhanns-
son okkur hinum í té heimild, sem
hvergi er til nema þar.
Eftir fjórtán ára búsetu í
Mjóanesi lá leið þeirra hjóna
vestur um heiði. Gjörðu þau sér
fagurt heimili á Nýbýlavegi í
Kópavogi. Pétur starfaði hjá
Búnaðarbanka Íslands til sjö-
tugs. Á Nýbýlavegi bjó hann til
dauðadags.
Ægir Pétursson.
✝ RagnarBjarnason
fæddist í Reykja-
vík 13. júní 1921.
Hann lést á heim-
ili sínu að Roða-
sölum 1 í Kópa-
vogi að morgni 13.
júlí 2011.
Foreldrar hans
voru Bjarni Jóns-
son, f. 28. desem-
ber 1890 að Ási í
Rípurhreppi, d. 12. apríl 1969,
verkstjóri í Vélsmiðjunni
Hamri og Ragnhildur Ein-
arsdóttir, f. 9. febrúar 1893 í
Vík í Mýrdal, d. 3. ágúst 1973,
húsfreyja. Systkini hans:
Björgvin, f. 16. október 1916,
d. 2. júní 2005. Jón, f. 20. júní
1924, d. 2. janúar 1999. Fjóla,
f. 23. desember 1922, d. 22.
ágúst 2004. Einar, f. 27. sept-
ember 1919, d. 12. mars 1993.
Hólmfríður, f. 19. maí 1928.
Hinn 14. maí 1949 kvæntist
Ragnar Guðleifu Jörund-
ardóttur skrifstofukonu, f. 21.
desember 1916, d. 27. febrúar
2000. Foreldrar hennar voru
Jörundur Brynjólfsson, f. 21.
febrúar 1884 að Starmýri í
Álftafirði, d. 3. desember
1979, kennari, bóndi og al-
þingismaður og Þjóðbjörg
Maður hennar er Haraldur
Örn Gunnarsson, f. 12. janúar
1973, guðfræðingur og fram-
kvæmdastjóri. Barn þeirra er
Sólveig Dögg, f. 29. desember
2010. Börn hans eru: Embla
Rut, f. 14. ágúst 1996, Victor
Orri, f. 14. júní 2001 og Yngvi
Reyr, f. 29. nóvember 2002, c)
Ragnar Heimir, f. 20. febrúar
1983, viðskiptafulltrúi og nemi
á Bifröst. Sambýliskona hans
er Laufey Jóhannsdóttir, f. 11.
nóvember 1982, kennari. Barn
þeirra er Gunnar Heimir, f. 8.
maí 2009. d) Dagný, f. 9. sept-
ember 1985, nemi í HR. Sam-
býlismaður hennar er Birkir
Vagn Ómarsson, f. 6. febrúar,
nemi í HR. Börn þeirra eru:
Edda Lillý, f. 24. febrúar 2009
og óskírður, f. 29. maí 2011.
Sonur Ragnars er Vilhjálmur,
f. 5. september 1953, sambýlis-
kona hans er Maeve McAdam,
búsettur á Norður-Írlandi.
Dætur hans eru: a) Kristín
Rannveig, f. 8. janúar 1973,
ógift, býr í Reykjavík. b)
Fanney Þóra, f. 28. apríl 1983,
búsett í Reykjavík, gift Bjarka
Einarssyni, f. 27. febrúar
1982, þau eiga soninn Benja-
mín Hafstein, f. 10. nóvember
2010. c) Guðlaug Hanna, f. 7.
júlí 1985, ógift, býr á Norður-
Írlandi.
Útför Ragnars fór fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 25.
júlí 2011.
Þórðardóttir, f.
20. október 1889 í
Reykjavík, d. 4.
júní 1969, kennari
og húsfreyja. Syn-
ir Ragnars og
Guðleifar eru: a)
Jörundur, f. 16.
febrúar 1950, um-
dæmisstjóri Isavia
á Austurlandi.
Sonur hans er
Sveinn Ragnar,
starfsmaður hjá Elkem í Hval-
firði, f. 10. júní 1977. Kona
hans er Valdís Sigurðardóttir
leikskólakennari, f. 20. sept-
ember 1977. Börn þeirra eru:
Antonía Líf, f. 6. maí 2002,
Ísak Emil, f. 22. júní 2005.
Sonur Valdísar er Kristófer
Arnar, f. 29. júní 1993. b)
Gunnar Heimir, f. 10. maí
1954, verslunarstjóri, kvæntur
Eddu Valsdóttir, f. 12. sept-
ember 1958, leikskólastjóra og
nema í HÍ. Börn þeirra eru: a)
Guðbjörg Dögg, f. 5. júní 1976,
kennari. Sambýlismaður henn-
ar er Erling Ormar Vignisson,
f. 8. maí 1979, kerfisfræð-
ingur. Börn þeirra eru: Katrín
Ýr, f. 3. janúar 2005 og Krist-
ófer Logi, f. 9. maí 2009. b)
Anna Margrét, f. 2. september
1980, sölu- og markaðsfulltrúi.
Elsku tengdapabbi, eða afi,
eins og ég kallaði hann oftast. Ég
veit ekki hvar ég á að byrja, því
ótal margt kemur upp í huga
minn þegar ég hugsa til tengda-
föður míns. Að hafa kynnst hon-
um og góðsemd hans var guðs-
gjöf. Betri tengdapabba hefði ég
ekki getað kosið mér, þó hann
hafi verið harður á stundum þeg-
ar ég starfaði hjá honum í Skipa-
eftirlitinu 1976-1980. Ein staf-
setningarvilla gat sett allt úr
skorðum og þurfti ég oft að
skrifa bréfin sem hann samdi til
tryggingarfélagana aftur og aft-
ur þar til hann var ánægður. Ná-
kvæmni var hans aðalsmerki.
Ég gleymi aldrei því sem hann
sagði við mig um það bil ári eftir
að ég hætti: „Enginn veit hvað
átt hefur, fyrr en misst hefur.“
Þetta sagði mér miklu, miklu
meira en allar heimsins ræður.
Það rifjast upp fyrir mér þegar
ég kynntist afa 16 ára. Þegar við
hittumst fyrst spurði hann mig
spjörunum úr. Ég er ekki mjög
feimin að eðlisfari en þarna fór
ég gjörsamlega í hnút, varð eld-
rauð í framan og svarafátt. Það
var líka mjög skondið hvernig
hann fékk mig til að borða kjöt-
súpu, sem var uppáhaldsmatur-
inn hans, en mér þótti hún ekki
góð í þá daga. Hann setti á borð-
ið „sinnep“ með súpunni og bauð
mér að smakka, ég gat ekki af-
þakkað, svo ég smakkaði og
nammi, namm. Kjötsúpa án sinn-
eps í dag, nei takk.
Ég hafði það á orði við Gunn-
ar, manninn minn, um daginn, að
ég hefði þekkt tengdapabba, afa,
lengur en pabba minn (hann féll
frá þegar ég var 25 ára).
Börnin okkar Gunnars og
barnabörnin hefðu ekki getað
verið heppnari með afa, en hann
hefur í gegnum dagana reynst
þeim öllum mjög vel. Stelpurnar
mínar kölluðu hann „krúttið“,
enda var hann það. Ef ég gæti
talið upp allt það sem hann og
Leifa, tengdamóður mín, sem
lést árið 2000, hafa gert fyrir
okkur og börnin okkar væri það
efni í heila bók, svo ég læt það
ótalið.
Afi flutti í Roðasali fyrir um
það bil 6 árum, þar leið honum
mjög vel og starfsfólkið þar unni
honum, það veit ég. Ég kom við
hjá honum svona tvisvar í viku
og alltaf þurfti ég að skrifa í
gestabókina, kvitta fyrir heim-
sóknina. Nákvæmnin var honum
í blóð borin. Ég er ánægðust yfir
því að afi hafði náð að halda upp
á 90 ára afmælið sitt, 13. júlí sl. í
Roðasölum, en það stóð til að
flytja hann á hjúkrunarheimili.
Þar mættu Jörundur, Gunna, ég,
börnin og barnabörnin, mágkona
hans og svilkona. Þetta varð eft-
irminnileg afmælisveisla. Roða-
salir voru heimili hans þar til yfir
lauk 13. júlí sl. Ég veit að það á
eftir að taka mig tíma að venjast
því að koma ekki við hjá afa eftir
vinnu og vita til þess að hann eigi
ekki eftir að hringja í mig og
Gunna að kvöldi til, en afi
hringdi í okkur á hverjum degi
til að vita hvort allt væri ekki í
lagi, þannig var afi og þannig
elskaði ég hann.
Í huga mínum og hjarta verð-
ur afi alltaf til. Mikil nálægð við
hann síðustu tvær vikurnar í lífi
hans er mér ómetanleg. Ég er
fullviss um að hann hafi vitað af
mér þó hann væri ekki með með-
vitund. Megi afi hvíla í ró og friði
og kveð ég hann með trega og
tárum.
Edda.
Ragnar Bjarnason
Elsku amma Edda.
Það er sárt að hugsa til þess
að fá ekki að faðma þig, knúsa
Edda Sigrún
Svavarsdóttir
✝ Edda SigrúnSvavarsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1. jan-
úar 1936. Hún lést
á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
mannaeyja 29. júní
2011.
Útför Eddu fór
fram frá Landa-
kirkju í Vest-
mannaeyjum 9. júlí
2011.
og sjá þitt fallega
bros aftur.
Þú varst gull af
manneskju, ein-
staklega mikil
smekkkona og ynd-
isleg, einnig varstu
mikið hörkutól og
til marks um það
eignaðist þú 6 börn
á 8 árum, geri aðrir
betur. Það var mik-
ið lagt á þig en þú
tókst því alltaf með þínu ein-
staka jafnaðargeði og vildir
enga vorkunn.
Ég hugga mig við þær minn-
ingar sem ég á um samveru-
stundir okkar sem voru allt of
fáar síðast liðin ár eftir að ég
flutti frá Eyjum.
En heimsóknirnar á Illó um
helgar þar sem þú barst heima-
bakaðar kræsingar á borð í
hvert sinn sem einhver kom af
þinni alkunnu snilld munu lifa
áfram í hjarta mínu, en alltaf
fannst mér best að borða á Illó
hjá ömmu og afa.
Þú og afi bökuðuð mikið sam-
an og gerðuð bestu flatkökur
sem hægt var að fá. En það
verður erfitt að leika það eftir,
ekki nema Sísí frænka, sem ef-
laust hefur fengið extra góð ráð
hjá þér við galdurinn á bak við
þínar ómótstæðilegu flatkökur.
Það mun verða tómlegt að fá
ekki símtal frá þér þegar næsti
afmælisdagur minn eða dætra
minna rennur upp, því alltaf
hringdir þú í mig og óskaðir
mér til hamingju með daginn og
sagðir mér hversu vænt þér
þætti um mig, þetta voru mér
afar dýrmæt símtöl, elsku
amma mín. Eins þótti mér ynd-
islegt þegar þú og afi fluguð á
Bakka og komuð í dagsferð ein-
göngu til þess að koma í ferm-
ingarveisluna hennar Alex-
öndru Bíu minnar og
fullkomnuðuð daginn okkar
með því.
En það er alltaf sárt þegar
svona góðar manneskjur eins og
þú varst hverfa úr lífi manns,
þú vildir allt gera fyrir fólkið
þitt og tókst manni ávallt opn-
um örmum. Ég mun hugga mig
við þær yndislegu minningar
sem ég á um þig.
Góðvild þín og glæsileiki mun
ávallt eiga stað í hjarta mínu,
takk fyrir mig.
Þín,
Edda Björk
Eggertsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EGILL JÓNASSON STARDAL
cand mag,
Brúnalandi 6,
Reykjavík,
lést á Landspítalnum Fossvogi laugardaginn
23. júlí.
Inga Fanney Egilsdóttir,
Jónas Egilsson,
Kristrún Þórdís Egilsdóttir Stardal,
tengdabörn og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi, langalangafi
og langalangalangafi,
HARALDUR SVEINSSON (BÓI),
Bláhömrum 4,
lést þann 18. júlí á hjartadeild Landspítalans
við Hringbraut.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.00.
Stella Lange Sveinsson,
Reynir Haraldsson, Esther Halldórsdóttir,
Gunnar Haraldsson, Unnur Einarsdóttir,
Einar Haraldsson, Rosemarie Hermilla,
Sonja Haraldsdóttir, Þorlákur Guðbrandsson,
Stefán Örn Haraldsson, Xin Liu,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KRISTLEIFSSON
trésmiður,
Dalbraut 25,
áður Rofabæ 47,
Reykjavík,
lést á Landakoti í faðmi fjölskyldu sinnar
mánudaginn 18. júlí.
Jarðaförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. júní kl. 13.00.
Erla Bótólfsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir Smith, Peter Smith,
Soffía Guðmundsdóttir,
Birgir Guðmundsson,
Kristrún Guðmundsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÁSTA KARLSDÓTTIR,
Árskógum 6,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Reykjavík sunnu-
daginn 24. júlí.
Haukur Bergsson,
Eva Hauksdóttir, Viðar Freyr Sveinbjörnsson,
Bergur Hauksson, Auður Harðardóttir,
Ólafur Steinar Hauksson, Bergþóra Hafsteinsdóttir,
Sigurður Hauksson, Kristín Axelsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR S. JÓNASDÓTTIR,
Álfhólsvegi 84,
Kópavogi,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 21. júlí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn
2. ágúst kl. 13.00.
Ólöf B. Þorleifsdóttir,
Brynjar S. Þorleifsson,
Vilhjálmur Þorleifsson,
Eva H. Þorleifsdóttir, Guðmundur B. Kjartansson,
Leifur H. Þorleifsson, Hlíf B. Óskarsdóttir,
Gróa K. Þorleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.