Morgunblaðið - 26.07.2011, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Vikan fyrir verslunarmannahelgi
er ein annasamasta vika ársins í
Vínbúðunum. Er undirbúningur í
fullum gangi hjá ÁTVR til að anna
öllum þeim fjölda sem væntanlega
mun leggja leið sína í Vínbúðirnar.
Gera má ráð fyrir um 125 þús-
und viðskiptavinum í þessari viku
eða 25-30% fleiri en vikuna á undan
að því er fram kemur á heimasíðu
ÁTVR. Árið 2010 komu 124 þúsund
viðskiptavinir sem er svipaður
fjöldi og árið áður. Alls voru seldir
744 þúsund lítrar af áfengi þar af
587 þús. lítrar af bjór. Eins og í
hefðbundinni viku þá koma flestir
viðskiptavinir á föstudegi. Ef mið-
að er við fjöldann undanfarin ár má
gera ráð fyrir um 43 þúsund við-
skiptavinum þann dag. „Reynslan
sýnir að flestir koma á milli kl. 16-
18 eða allt að 7 þúsund viðskipta-
vinir á klukkustund. Árið 2010
voru seldir 287 þús. lítrar föstu-
daginn 30. júlí þar af 228 þús. lítrar
af bjór,“ segir í fréttinni. Flest
bendir til þess að viðskiptavin-
afjöldi fyrir verslunarmannahelgi
nú verði svipaður og í fyrra.
sisi@mbl.is
Búast við 125 þúsund viðskiptavinum
Fjöldi viðskiptavina í Vínbúðunum
vikuna fyrir Verslunarmannahelgi, eftir dögum
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard.
10.400 11.900
16.500
21.600
43.800
20.100
Alls: 124.000 viðskiptavinir
Heimild: vinbudin.is
Mestar annir á föstudaginn
Gunnlaugur Júl-
íusson tók þátt í
írska meist-
aramótinu í 24
tíma hlaupi sem
haldið var í Bel-
fast þann 22.-23.
júlí og lenti í 3.
sæti en hann lagði
196 kílómetra að
baki á sólarhring.
Sigurvegarinn
hljóp 212 km og sá sem varð í 2. sæti
hljóp 203 km.
Alls hófu 42 keppendur frá sjö
löndum keppni. „Það var ekki fyrr en
í byrjum maí að ég fór að hlaupa
nokkuð skipulega en þó urðu æfing-
arnar of mikið útundan, “ segir Gunn-
laugur á bloggsíðu sinni. Gunnlaugi
gekk illa að æfa og hann átti við
meiðsl að stríða rétt fyrir hlaupið og
þegar hann kom til Belfast kom í ljós
að hlaupið átti að fara fram á íþrótta-
velli en hann hafði aldrei æft hlaup á
hlaupabraut. „Ég er þegar upp er
staðið ágætlega sáttur við árangurinn
og ekki síst miðað við allt. 196 km er
ágætt miðað við aðstæður og und-
irbúning,“ skrifar Gunnlaugur.
Sá sem vann hlaupið er írskur en
býr á Spáni. Hann hefur hlaupið áður
tuttugu 24 tíma hlaup og yfir þrjátíu
100 km hlaup, að sögn Gunnlaugs.
Gunnlaugur
í 3. sæti í 24
tíma hlaupi
Gunnlaugur
Júlíusson
Mánaðargreiðsla
Tryggingastofn-
unar til lífeyr-
isþega og ann-
arra bótaþega
vegna ágústmán-
aðar verður
greidd út á frí-
degi versl-
unarmanna,
mánudaginn 1.
ágúst.
Fer greiðslan inn á reikninga líf-
eyrisþega fyrsta hvers mánaðar
eins og lög gera ráð fyrir, þannig
að þeir sem eru með heimabanka
eða debetkort, geta þá millifært
eða tekið út.
Greitt út á frídegi
verslunarmanna
Tveir menn, sem setið hafa í gæslu-
varðhaldi frá því í maí, grunaðir um
stórfellda líkamsárás og frelsissvipt-
ingu, kúguðu fé út úr manni. Sá hef-
ur staðfest að hafa greitt mönnunum
umtalsverða fjárupphæð í því skyni
að koma syni sínum undan þeim.
Hæstiréttur staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjaness um
að mennirnir sæti gæsluvarðhaldi
áfram til 12. ágúst. Fram kemur í
úrskurði héraðsdóms, að rannsókn
málsins sé á algjöru lokastigi en beð-
ið sé eftir niðurstöðum lífsýna frá
Svíþjóð.
Í úrskurðinum segir, að sá sem
varð fyrir árásunum hafi hlotið tals-
verða áverka eftir barsmíðar mann-
anna, m.a. nefbrot, fjölda yfir-
borðsáverka og tognanir, auk þess
sem hann hafi haft sjóntruflanir og
ógleði eftir atburðinn.
Unnið í nafni Black Pistons
Fram hefur komið, að árásar-
mennirnir tveir eru félagar í mótor-
hjólasamtökunum Black Pistons. Í
úrskurði héraðsdóms segir, að lög-
reglu gruni að brotin hafi verið unn-
in í nafni samtakanna. Þá liggi fyrir
skýrslur af foreldrum brotaþola og
nágranna þeirra, sem staðfesti að
aðrir félagsmenn samtakanna hafi
eftir atburðinn reynt að setja sig í
samband við brotaþola og fjölskyldu
hans til að hafa áhrif á gang málsins.
Kúguðu
föður til
að borga
!"!#$#%&'())"$ #%*''"+ !,-"+ .*$"+
!"!#$)/'01 2/'3/$4/!!/2 5 6+($#'/!3
77/ 7'/77# ( 8.59
:;