Morgunblaðið - 26.07.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Auðvitað kom í okkur dálítill óhugur eins
og aðra í ferðaþjónustunni vegna eldgossins
í Grímsvötnum og yfirvinnubanns flug-
manna í lok júlí sem vofði yfir og olli ýms-
um óþægindum,“ segir Einar Bollason, for-
stjóri Íshesta, spurður um hestaferðir á
hálendinu, sem nú eru í hámarki.
Einar segir að bókanir hafi verið í lægð
eftir þessar hindranir í ferðamannaþjónust-
unni. Til þess að bæta gráu ofan á svart
voru ýmsir reið- og fjallvegir lokaðir mun
lengur en vanalega vegna kuldakastsins í
vor og byrjun sumars. „Kjölur var ekki opn-
aður fyrr en undir lok júlí og Sprengisandur
ekki fyrr en um miðjan júlí. Þetta gerði það
að verkum að við urðum að breyta sumum
ferðunum,“ segir Einar. Hestaferðum á há-
lendinu hefur þó fjölgað eftir því sem liðið
hefur á sumarið með batnandi veðri og opn-
un reið- og fjallvega.
Hann segir að frá apríl hafi verið 10 til 15
prósenta aukning á bókunum í hverjum
mánuði í styttri ferðir Íshesta sem eru farn-
ar frá Reykjavík, borið saman við sömu
mánuði í fyrra. Júlí sé undantekning frá
þeirri þróun. Í slíkum dagsferðum voru um
17.000 manns í fyrra en búist er við að í
heild fari um 19.000 til 20.000 manns í slíkar
ferðir í ár. Aftur á móti hefur íslenski mark-
aðurinn gefið eftir þó hann sé nú að taka
við sér á ný að sögn Einars.
Lengri jafnt sem styttri ferðir hjá Íshest-
um eru nær uppbókaðar í ágúst að sögn
Einars. Hann segir að vandamálin nú séu
smávægileg miðað við síðasta sumar. „Þar
skiptust á eldgos og hestapestin,“ eins og
hann orðar það.
Morgunblaðið/RAX
Hestamenn á hálendinu Hópur hestamanna á Fjallabaksleið, vestan við Ljótapoll. Hestaferðir um hálendi Íslands standa nú sem hæst enda má segja að nú sé hásumar.
Hestaferðir á hálendinu standa nú sem hæst
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Hugmyndin er sú að auðvelda
hestamönnum að fara eftir lögum
og reglum,“ segir Halldór Runólfs-
son, yfirdýralæknir hjá Matvæla-
stofnun, um nýjar reglur sem nú
er unnið að varðandi þrifnað á
hestafatnaði sem hefur verið not-
aður erlendis og er svo komið með
til landsins.
Landssamband hestamanna-
félaga, Félag tamningamanna og
Félag hrossabænda ásamt Mat-
vælastofnun og yfirdýralækni hafa
komið að gerð þessara nýju reglna
í samstarfi við tollgæsluna. Nýjar
reglur munu auðvelda mönnum að
hreinsa reiðföt hérlendis strax eft-
ir að komið er til landsins. Enn
verður bannað að koma með óhrein
reiðtygi og ýmsan annað búnað
hafi hann verið notaður erlendis.
Fjögur brot í fyrra
„Tilefnið er meðal annars sjúk-
dómurinn sem kom upp í fyrra,
smitandi hósti, sem við vorum
hræddir um að hafi komið til
landsins með hestatengdum varn-
ingi,“ segir Halldór. Í fyrra komu
upp fjögur slík tilvik, þrjú vegna
hestamanna og eitt vegna járn-
ingamanns, þar sem um var að
ræða reiðtygi og annan búnað, s.s.
til jáninga, sem komið var með til
landsins eftir notkun erlendis.
Einn þeirra sem komu með óhrein
reiðtygi var landsliðsmaður í
hestaíþróttum. Atvikin voru kærð
til lögreglu en þeim málum er
ólokið.
Óheimilt er að koma með óhrein-
an reiðfatnað vegna hættu á að
smitsjúkdómar berist hingað.
Búast má við því að nýju reglur
verði kynntar um næstu mánaða-
mót og verði í gildi þegar hesta-
menn koma aftur til landsins eftir
að hafa sótt Heimsmeistaramót Ís-
lenska hestsins sem er haldið 1. til
7. ágúst í St. Radegund í Aust-
urríki.
Nýjar reglur
fyrir hestamenn
Reiðtúr Langflestir fara eftir
ströngum reglum um innflutning.
Orsökin er pest og smygl á reiðtygjum
Morgunblaðið/Eyþór
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Sendum ípóstkröfu
Enn má gera góð kaup á útsölunni
Flottar buxur
í ferðalagið
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Gatnaframkvæmdir fóru fram á
Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur í
gær og var götunni lokað sökum
þessa. Í kjölfarið lokuðust ýmsar
hliðargötur sem kaupmenn á Lauga-
vegi hafa treyst á til að veita gott að-
gengi að verslunum sínum.
„Maður hélt að borgaryfirvöld
myndu tryggja nokkuð gott aðgengi
að okkar rekstri,“ segir Gunnar
Guðjónsson, eigandi verslunarinnar
Profil-Optic á Laugavegi og vísar til
átaks Reykjavíkurborgar um lokun
fyrir bílaumferðar á Laugaveginum.
Að sögn rak Gunnar í rogastans þeg-
ar hann mætti til vinnu sinnar í gær-
morgun og sá að búið var að loka
Hverfisgötunni í austur og upp að
Frakkastíg. „Mér finnst þetta mjög
einkennilegt í ljósi þess að við höfum
lagst á eitt með borgaryfirvöldum að
fara í þetta átak,“ segir Gunnar.
Hann segir átak Reykjavíkur-
borgar hafa almennt heppnast vel,
sér í lagi sökum þess að veðrið hefur
leikið við borgarbúa að undanförnu.
„Áhugavert væri að sjá hvernig gat-
an plummar sig ef vont veður
kæmi,“ segir Gunnar og bendir á að
upphaflega hafi staðið til að opna
aftur fyrir umferð bíla um Laugaveg
fyrsta ágúst en ákveðið var að lengja
lokunina til áttunda.
Morgunblaðið/Ómar
Lokað Hverfisgatan var lokuð í gær með tilheyrandi truflun á umferð.
Enn þrengir að kaup-
mönnum á Laugavegi