Morgunblaðið - 26.07.2011, Side 12
Nú geta viðskiptavinir Vínbúðanna
(ÁTVR) valið um að kaupa marg-
nota burðarpoka í Vínbúðunum á
150 krónur í stað plastpokanna.
Árlega kaupa viðskiptavinir Vín-
búðanna um 2,2 milljónir plastburð-
arpoka, en nú geta þeir sem vilja
vera umhverfisvænir nýtt sér þessa
poka aftur og aftur.
Margnota innkaupa-
pokar í boði
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Í dag, þriðjudag, verður farið í
óvissugöngu í Viðey. Það verður
Jónas Hlíðar Vilhelmsson sem
leiðir gönguna. Gangan verður
létt og leikandi og ef til vill verð-
ur áður óþekktum leyndarmálum
ljóstrað upp. Gangan hefst kl.
19.30 við Viðeyjarstofu og tekur
um eina og hálfa til tvær klukku-
stundir. Leiðsögnin er ókeypis og
öllum heimil og fá göngumenn
Kristal í boði Ölgerðarinnar til að
svala þorstanum.
Í sumar verður kaffihúsið í
Viðeyjarstofu opið á þriðjudags-
kvöldum, en alla jafna er það op-
ið til kl. 17.00. Aukaferðir eru til
Viðeyjar á þriðjudögum svo þau
kvöld geta gestir komið áður en
leiðsögn hefst og borðað kvöld-
mat í Viðeyjarstofu. Í göngulok
er svo hægt að tylla sér aftur nið-
ur við Viðeyjarstofu og fá sér
hressingu áður en haldið er heim
kl. 22.00.
Siglt er frá Skarfabakka kl.
18.15 og 19.15. Gjaldið í ferjuna
er 1.000 kr. fyrir fullorðna og
500 kr. fyrir börn 7-18 ára. Frítt
er fyrir 6 ára og yngri.
Óvissuganga í Viðey
Flugmálastjórn Íslands mun sinna
hefðbundnu eftirliti með loftflutn-
ingum um verslunarmannahelgina.
Segir stofnunin að markmiðið sé að
flug gangi snurðulaust fyrir sig og
að fyllsta öryggis sé gætt. Fylgst
verður með því að eftir öllum
reglum sé farið í hvívetna til að
forðast flugatvik og slys og tryggja
samkeppnisaðstöðu aðila.
Líkt og undanfarin ár verður sér-
staklega fylgst með starfsemi loft-
fara í tengslum við þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum og munu
eftirlitsmenn Flugmálastjórnar
fylgjast með framkvæmd flugs til
Vestmannaeyja.
Áhersla verður lögð á að hafa
eftirlit með því að flugmenn tryggi
að loftför séu starfrækt innan
þyngdartakmarkana og að útbún-
aður loftfara sé samkvæmt gildandi
reglugerðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tékkað inn Fylgst verður með því að flug-
ið verði samkvæmt reglum um helgina.
Ætla að tryggja
öryggi flugfarþega
Alþjóðlegt skátamót, World Scout
Jamboree, verður haldið í Kristian-
stad í Svíþjóð dagana 27. júlí - 8.
ágúst nk. Mótið sækja 38 þúsund
ungmenni á aldrinum 14-18 ára frá
159 þjóðum. Auk þess verða þús-
undir fullorðinna sjálfboðaliða sem
vinna að mótinu á einhvern hátt. Ís-
lenski hópurinn samanstendur af
275 ungmennum og sveitarfor-
ingjum 20 ára og eldri. 13 manna
fararstjórn stýrir hópnum.
Hundruð fara á
skátamót ytra
STUTT
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ágætar laxagöngur hafa verið um
allt land frá því í síðasta stór-
straumi upp úr miðjum mánuði.
Veiðimenn og leigutakar sem rætt
er við eru sammála um að veiðin og
laxagöngur séu tíu dögum til þrem-
ur mánuðum á eftir því sem verið
hefur síðustu sumur, en það sé ekk-
ert óeðlilegt. Veiðin sé í ágætu
meðalagi.
„Hér í Eystri-Rangá veiddust 70
laxar á laugardaginn en það var
besti dagurinn í sumar. Það er stíg-
andi í þessu,“ segir Einar Lúðvíks-
son, umsjónarmaður árinnar.
„Þetta er svolítið eins og gangur-
inn í ánni árið 2007 – nema hvað
það er heldur betra núna,“ bætir
hann við og segir að 2007 hafi alls
ekki verið slæmt ár, þá veiddust
um 7000 laxar í Eystri-Rangá. „Ég
hef því engar áhyggjur,“ segir Ein-
ar.
„Í fyrra var fiskurinn mjög
snemma á ferðinni en nú virðist
hann vera svona tíu dögum á eftir
meðalárinu. Oft höfum við fengið
fyrstu 70 laxana dagana um 13. júlí,
en þeir geta verið hvenær sem er á
tímabilinu 10. til 24. júlí.
Eins og svo víða hefur verið hæg-
ur gangur í laxveiðinni í Húseyjar-
kvísl í Skagafirði framan af sumri,
en þar er veitt á tvær laxastangir á
efri hluta svæðisins, auk silunga-
stanga sem eru neðar. Um fjörutíu
laxar höfðu verið færðir til bókar
fyrir helgi en á laugardag tók veið-
in kipp er sjö laxar veiddust, allt
lúsugir og kraftmiklir nýrenningar.
Talsvert af laxi virðist vera á ferð-
inni og sýndi hann sig víða, en eins
og síðustu ár hefur veiðin verði best
í Laxahyl og Togga. Þá fengu veiði-
menn fallega urriða á silungasvæð-
inu, suma yfir 50 cm langa.
Stórir í Soginu
Í Soginu fréttist líka af góðum
göngum fyrir og um helgina. Á vef
SVFR segir að veiðimenn í Alviðru
hafi sett í sjö laxa á morgunvakt og
landað þremur. Þá hafi verið stór-
laxaveiði í Bíldsfelli, eftir tvo daga
höfðu veiðimenn þar landað tólf
löxum og fimm þeirra mjög vænum,
frá fimm upp í tuttugu pund. Á
sama tíma náðust fjórtán í Ásgarði.
Góð bleikjuveiði í Öxarfirði
Á sama tíma og sjóbleikjan virð-
ist nánast horfin á svæðum á
Vesturlandi, eins og í Hvítá, virðist
vera mikið af bleikju í sumum norð-
lensku ánum, þar á meðal í Fljótaá
og í Brunná í Öxarfirði. Veiðimenn
sem voru í síðarnefndu ánni í síð-
ustu viku lönduðu 32 á þrjár stang-
ir á tveimur dögum og voru margar
rígvænar, á bilinu 52 til 57 cm.
Birgir Snæbjörn Birgisson landaði
þó langstærsta fiskinum, 69
cm bleikju sem tók Krókinn
í Kvíarhyl, og var það löng
barátta á stöng fyrir línu
fjögur, áð-
ur en
flykk-
inu, sem
menn töldu slaga
í hátt í tíu pund, var
rennt aftur út í hylinn
að myndatöku lokinni.
Veiðin svolítið eins og
2007, en heldur betri
Ljósmynd/Martin Bell
Kröftugur lax Nýgenginn fjórtán punda hængur barðist um þegar honum var landað í Húseyjarkvísl í Skagafirði
um helgina. Lax gekk af krafti í árnar á Norðvesturlandi, að sögn veiðimanna sem undu hag sínum vel.
„Það var flottur dagur hjá okkur
í gær en þá var um 50 löxum
landað. Við erum að skríða yfir
620 laxa í heildina,“ segir Rafn
Valur Alfreðsson, leigutaki Mið-
fjarðarár í Húnavatnssýslu.
Eins og aðrir veiðimenn og
leigutakar sem rætt var við,
sagði Rafn mikið veiðast nú af
nýgengnum fiski og lúsugum
fiski, smálaxi og stærri í bland,
en mest er veiðin í Miðfjarðar-
ánni sjálfri, til að mynda náðist
þar 21 lax á fyrri vaktinni í gær,
en efri hlutar þveránna Austur-
ár og Vesturár hafa verið lélegir,
vegna vatnsleysis. Til að mynda
bunkist lax í Túnhyl í Vesturá og
í mörgum neðri hyljum Austurár
en bíði eftir hressilegri rigningu
til að halda áfram. Svolítið
rigndi á sunnudag og um leið
færðu laxar sig upp á efri svæð-
in og tóku að veiðast þar.
„Við höfum veitt 20 til 50
laxa á dag síðustu vikuna,“ seg-
ir Rafn. „Það er ekki jafn mikil
veiði og í fyrra en samt er
það mjög fínt. Menn
verða spilltir á jafn
rosalegri töku og
var hér síðustu
tvö árin,“ segir
hann og hlær.
50 laxa dag-
ur í Miðfirði
GÓÐ VEIÐI Í LITLU VATNI
Martin Bell með ný-
renning í Húseyjar-
kvísl um helgina.
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Konurnar sjö sem sakað hafa Gunn-
ar Þorsteinsson, fyrrverandi for-
stöðumann trúfélagsins Krossins,
um kynferðislega áreitni munu
senda erindi til fagráðs um kynferð-
isbrot í þessari viku. Þær segjast enn
standa við vitnisburð um hátterni
Gunnars í þeirra garð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu hefur vísað frá kærum á
hendur Gunnari. Saksóknari emb-
ættisins telur ekki vera grundvöll
fyrir frekari rannsókn á meintum
brotum þar sem þau séu fyrnd. Þar
með verði ekki gefin út ákæra á
hendur Gunnari.
„Þetta er búið að vera langur
gangur um dimman dal en nú birtir
til,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is
og bætir við að hann gleðjist mjög
yfir niðurstöðu málsins. „Það er ljóst
að grundvöllur til frekari mála-
rekstrar er ekki fyrir hendi sam-
kvæmt niðurstöðu aðstoðarsaksókn-
ara.“
Í bréfi frá aðstoðarsaksóknara hjá
lögreglustjóranum á höfuðborgar-
svæðinu segir að komi ný sakargögn
fram í málunum, kunni rannsókn
þeirra að verða tekin upp að nýju.
Kærendum er einnig gefinn kostur á
að kæra ákvörðun til ríkissaksókn-
ara innan mánaðar.
Í yfirlýsingu frá konunum sjö seg-
ir að niðurstaða um frávísun máls
vegna fyrningar sanni ekki sakleysi
þess sem í hlut eigi. Þar segir svo
orðrétt: „Frávísun sem byggð er á
tímaramma eingöngu er engin nið-
urstaða í sjálfu sér. Eina niðurstaðan
hlýtur að vera sú að lög sem vernda
gerendur kynferðisafbrota í ljósi
tímans hljóta að vera gölluð.“ Kon-
urnar sjá því engan annan kost en að
senda erindi til fyrrnefnds fagráðs.
Senda erindi til fagráðs
Meint kynferðisbrot Gunnars Þorsteinssonar eru fyrnd
www.noatun.is
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
eða í næstu Nóatúns verslun
Grillveislur
1299
Á MANN
VERÐ FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTI
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafille
Þín samsetning
Grillveislur Nóatúns