Morgunblaðið - 26.07.2011, Page 20
20 UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Margföld ólögleg
svikamylla var til um-
fjöllunar í grein And-
reu Jóhönnu Ólafs-
dóttur í
Morgunblaðinu föstu-
daginn 15. júlí sl.
Þetta umræðuefni
hefur verið eitt af
þeim heitari hjá Ís-
lendingum síðan 1979
þegar verðtrygging
fjárskuldbindinga
hófst. Margir hafa lagt orð í belg
en manni sýnist að staðan bara
versni og umræðan verður harð-
skeyttari.
Vísitala fjárskuldbindinga er
það ef lán er tekið með ákvæðum
um að lánveitandinn fái endur-
greiðsluna verðbætta. Lánið er
reiknað út á sama hátt og venju-
lega en með raunvöxtum í stað
nafnvaxta eins og um venjulegt
óverðbætt lán á nafnvöxtum sé að
ræða. Greiðslan er síðan verðbætt
og hækkuð í samræmi við hækkun
viðkomandi vísitölu greiðsludags.
Þetta er ekki flókið og hægt að
reikna út lán á vefsíðum margra
fjármálastofnana óverðbætt.
Það sem virðist síðan hafa gerst
er að fjármálastofnanir hafa flækt
málið alveg gríðarlega með margs-
konar lánaleiðum eða tegundum
lána svo sem jafngreiðslulán, lán
með jafnar afborganir eða jafnar
greiðslur og síðan þessar tvær
leiðir með eða án verðbóta. Í við-
bót við þetta eru sumir lánasamn-
ingar þannig að verðbótum er
bætt ofan á höfuðstólinn þannig að
lántakinn finnur lítið sem ekkert
fyrir því við hver mánaðamót þeg-
ar gríðarleg verðbólga geisar í
landinu. Verðbótum er bara hlaðið
ofan á höfuðstól lánsins og eign
fólks gufar upp á stuttum tíma.
Til viðbótar ofangreindum leik-
fléttum með lánin eru lán ýmist
reiknuð þannig að allur höfuðstóll-
inn er uppreiknaður með verðbót-
um um hver mánaðamót þannig að
lántakinn sjái í hverju höfuðstóll
lánsins stendur með öllum eldri
verðbótum hlaðið ofan á höfuðstól-
inn og allt uppreiknað til dagsins
sem greiðsluseðillinn er gefinn út
með vöxtum og verðbótum. Þetta
flækir málið en á að gefa sömu
niðurstöðu og venju-
legir útreikningar
sýna einungis verð-
bætur á mán-
aðargreiðslurnar.
Til að útfæra þess-
ar nýju leikfléttur
réðu bankarnir haug
af alls konar stærð-
fræðingum og sér-
fræðingum, helst með
doktorspróf þar sem
allar þessar leiðir
voru útfærðar og virð-
ist þetta hafa fært
bönkunum endalausa
peninga í gegnum verðbótakerfið
og leikflétturnar enda var Íslands-
banki núna að skila miklum hagn-
aði. Þetta er að gerast þrátt fyrir
gífurlegar launahækkanir í banka-
kerfinu og enginn samdráttur er í
glæsihúsnæði bankanna.
Allar þessar leikfléttur og
reiknikúnstir eru komnar óravegu
frá upphaflega markmiðinu sem
var bara að verðbæta greiðslu
hvers mánaðar og ekkert annað.
Allt átti að vera eins og það var
nema að lánveitandinn fengi sitt til
baka eins og verið hafði en nú
verðbætt og gat reyndar ekki ver-
ið einfaldara enda lækkuðu vextir
á móti í raunvexti þannig að hugs-
unin var að lánveitandinn greiddi
þannig talsverðan hluta af verð-
bótunum með lægri útlánavöxtum.
Báðir hefðu hag af en lántakinn
tæki þó alla áhættu af verð-
sveiflum.
Með upphaflegu útfærslunni er
ekkert verið að ræða um verðbæt-
ur höfuðstóls, afborgana eða vaxta
sérstaklega og að allt sé marg-
verðbætt í svikamyllu heldur að
afborgunin (greiðslan) sé leiðrétt
með einni margföldun miðað við
hlutfallshækkun vísitölu gjalddag-
ans. Einfaldara gat það ekki verið.
Í allri ofangreindri flækju bank-
anna þar sem hugsanlegt er að
margt fleira gæti verið inni í
flækjulánakerfi þeirra þá nefnir
Andrea að það þurfi að setja inn
30% til 35% vexti í reiknivélarnar
til að fá út sömu niðurstöðu og um
væri að ræða 5% raunvexti og 7%
verðbætur. Samkvæmt því hafa
bankarnir eða þeirra hálærðu
spekingar fundið upp einhverjar
enn meiri flækjur sem hafa hækk-
að lánin og enginn skilur.
Andrea talar um að það sé meiri
verðbólga í þeim löndum sem hafa
verðtryggingu. Það ætti ekki að
vera, heldur öfugt ef vextir lækka
með verðtryggingu. Hafa þá lána-
stofnanir komist upp með allt of
háa vexti þegar um verðbætta
samninga er að ræða? Hvar liggur
svona gríðarleg skekkja?
Auk þess er auðvitað hugsanlegt
að vísitölugrundvöllurinn sé rang-
ur. Allar vörur og verð sem eru
sett inn í vísitöluna eru með fjár-
magnskostnaði. Ef fjármagns-
kostnaður er ekki dreginn frá við
vísitöluútreikninga er alltaf verið
að verðbæta fjármagnskostnað
vöruverðs sem er jafnvel 10% til
15% inni í vöruverði þó að sá þátt-
ur hækki ekkert. Hækkanir liggja
bara í hækkun rekstrar- eða fram-
leiðsluliða svo sem efnis og vinnu.
Þetta ýtir sjálfkrafa á verðbólg-
una.
Nýju hálaunuðu og -menntuðu
sérfræðingarnir í bönkunum stað-
settir í gullhöllum bankanna voru
því ekki ráðnir í það verkefni að
margfalda þessa einu tölu sem er
til greiðslu um hver mánaðamót.
Nei, væntanlega eru þeir að pæla
það út hvernig bankinn gæti grætt
á fólkinu en það var einmitt til-
gangur einkavæðingar bankanna
að breyta þeim úr útlána- og
bankastofnunum í gróðastofnanir.
Að öðrum kosti hefði ekki verið
hægt að selja þá á markaði.
Það er algerlega ljóst að allt
þetta kerfi er komið í ógöngur og
þarfnast algerrar endurskoðunar.
Fólk getur ekki lengur fjármagnað
íbúðir sínar með þeim lánamögu-
leikum sem bjóðast í landinu.
Laun almennings verður að verð-
tryggja og afleggja þessar leik-
fléttur bankanna.
Margföld ólögleg svikamylla?
Eftir Sigurð
Sigurðsson » Allar þessar leik-
fléttur og reikni-
kúnstir eru komnar óra-
vegu frá upphaflega
markmiðinu sem var
bara að verðbæta
greiðslu hvers mánaðar
og ekkert annað.
Sigurður
Sigurðsson
Höfundur er Cand. Phil.
byggingaverkfræðingur.
Rangfærslur Ög-
mundar Jónassonar
um samgöngumál
Fjarðabyggðar vöktu
hörð viðbrögð hjá
framkvæmdaráði
Sambands sveitarfé-
laga á Austurlandi. Til
að bíta höfuðið af
skömminni fór ráð-
herrann erindisleysu
austur á firði til að
hrella heimamenn
undir því yfirskini að á hverjum degi
væri umferðin milli Neskaupstaðar
og Eskifjarðar alltof lítil til þess að
hægt væri að réttlæta fyrirhuguð
Norðfjarðargöng sem þurfa að leysa
af hólmi einbreiðu Oddskarðs-
göngin.
Nógu slæmt er ástandið í sam-
göngumálum fjórðungsins til að
heimamenn á Egilsstöðum, Héraði,
Seyðisfirði og Norðfirði sem vinna
hjá Alcoa telji öruggara að flytja lög-
heimilin sín til Reyðarfjarðar vegna
þess að illviðri- og snjóþyngsli sem
engin sér fyrir hamla því að hægt sé
að treysta vegunum á Fjarðarheiði,
Fagradal og á báðum leiðunum upp
að einbreiðu slysagildrunni í 620 m
hæð. Sömu fréttir berast líka frá
íbúum suðurfjarðanna sem telja
varasamt að treysta Kambaskrið-
unum milli Breiðdalsvíkur og Stöðv-
arfjarðar. Héðan af gengur það aldr-
ei að enginn flutningabíll komist
óhappalaust í gegnum slysagildruna
milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar
þegar Ögmundur Jónasson, Kristján
Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Her-
bertsson neita að flytja á Alþingi til-
lögu um að framkvæmdir við ný og
tvíbreið Norðfjarðargöng skuli hefj-
ast á undan Vaðlaheiðargöngum
sem þessir tveir landsbyggð-
arþingmenn vilja fórna fyrir hálend-
isveginn og Héðinsfjarðargöng.
Þessir þingmenn Norðaust-
urkjördæmis geta ekki krafist þess
að heimamenn á suðurfjörðunum
sem búa á svæðinu milli Djúpavogs
og Breiðdalsvíkur keyri um 400 km
báðar leiðir til að treysta á stóra
Fjórðungssjúkrahúsið þegar óhjá-
kvæmilegt er að stöðva alla umferð í
Kambaskriðum vegna slysahætt-
unnar sem er alltof mikil. Með stað-
setningu Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað verður áfram séð til
þess að meirihluti Austfirðinga skuli
næstu áratugina sækja læknisþjón-
ustuna til Reykjavíkur eða Akureyr-
ar þegar innanríkisráðherra og
þessir tveir flokksbræður svara öll-
um spurningum heimamanna um ný
Norðfjarðargöng með útúrsnúningi
og hnútuköstum undir því yfirskini
að enn fleiri íbúar séu í nýja sveitar-
félaginu norður á Tröllaskaga held-
ur en á Mið-Austurlandi.
Neikvæð umfjöllun Ögmundar
Jónassonar, Kristjáns Þórs Júl-
íussonar og Tryggva Þórs Herberts-
sonar um samgöngumál Fjarða-
byggðar segir ekkert að tvíbreið
jarðgöng í stað ein-
breiðu slysagildrunnar í
Oddskarði skuli end-
anlega víkja fyrir
Vaðlaheiðargöngum
sem Eyfirðingar og
Þingeyingar hafa barist
gegn síðan 1973. Of
lengi hafa fyrrverandi
þingmenn Norðurlands
eystra sýnt Héðins-
fjarðargöngum og há-
lendisveginum enn
meiri áhuga sem trygg-
ir aldrei öruggar heils-
árssamgöngur milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Án jarðganga í Fjarða-
byggð treysta heimamenn sem búa
norðan Fagradals og á suðurfjörð-
unum aldrei á stóra Fjórðungs-
sjúkrahúsið í Neskaupstað þegar
Vegagerðin gefst upp á snjómokstri
á báðum leiðunum upp að gömlu
Oddskarðsgöngunum og á þjóðvegi
1 milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar.
Á Djúpavogi telja stuðningsmenn
Axarvegar miklu ódýrara að byggja
frekar nýtt Fjórðungssjúkrahús á
Egilsstöðum.
Í stað þess að taka þetta mál upp í
samgöngunefnd og svara spurn-
ingum Norðfirðinga kjósa þing-
mennirnir Tryggvi Þór og Kristján
Þór frekar að þegja yfir erindisleysu
Ögmundar sem fór austur á land að-
eins til að ergja heimamenn með
þeim falsrökum að engir peningar
væru til handa Norðfirðingum. Á
meðan engin jarðgöng á Mið-
Austurlandi eru til umræðu hjá Ög-
mundi og þessum tveimur lands-
byggðarþingmönnum sem sjá bara
Akureyri mun íbúatala Fjarða-
byggðar þrefaldast næstu fimmtán
árin þegar Egilsstaðabúar, Hér-
aðsbúar, Norðfirðingar og Seyðfirð-
ingar sem vinna hjá Alcoa flytja lög-
heimilin sín til Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Fyrir Norðfirðinga gengur það aldr-
ei að þeir sitji uppi með flugvöll sem
uppfyllir ekki hertar öryggiskröfur.
Tilgangslaust er fyrir stjórnendur
Alcoa að treysta á Fjórðungssjúkra-
húsið í Fjarðabyggð þegar illviðri
hamlar því að hægt sé að moka báð-
ar leiðirnar upp að einbreiðu slysa-
gildrunni í Oddskarði ef neyð-
artilfelli kemur upp í Álverinu á
Reyðarfirði. Slasaður starfsmaður
sem þarf að komast í sjúkraflug frá
Egilsstaðaflugvelli til Reykjavíkur
lendir í sjálfheldu þegar blindbylur
og mikil snjódýpt á Fagradal skapar
vandræði.
Erindisleysa
Ögmundar
Jónassonar
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Án jarðganga í
Fjarðabyggð treysta
heimamenn sem búa
norðan Fagradals og á
suðurfjörðunum aldrei á
stóra Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað …
Höfundur er farandverkamaður.
Kvennalandslið Japans í knatt-
spyrnu, „Nadeshiko“ Japans, vann í
fyrsta sinn heimsmeistaratitilinn á
dögunum. („Nadeshiko“ er blóm sem
er kallað „dianthus“ og oft notað sem
tákn japanskrar konu á meðal Jap-
ana). Japan spilaði úrslitaleikinn á
móti sterku bandarísku liði, sem í
raun stjórnaði leiknum 80% af leik-
tímanum. En þrátt fyrir það unnu
japönsku stelpurnar leikinn.
Sigurinn var óvæntur fyrir marga í
heiminum. Margir fjölmiðlar fjölluðu
um sigurinn sem verkefni: „Japanska
liðið hafði sérstakt verkefni, að færa
gleði og von til þjóðar sinnar sem
þjáðst hefur vegna stóru jarðskjálft-
anna og flóðbylgnanna.“
Mér finnst þetta vera rétt ábend-
ing. Eftir úrslitaleikinn sagði Norio
Sasaki, þjálfari liðsins, að liðið hefði
annað erindi fyrir utan fótboltann
sjálfan. Það væri að sýna heiminum
þakklæti fyrir þann stuðning sem
hann hefði sýnt japönsku þjóðinni
eftir hamfarirnar og einnig að gefa
Japönum von og kraft fyrir framtíð-
ina.
Fyrir nokkrar af stelpunum virðist
þetta markmið jafnvel hafa verið enn
persónulegra. Eftir því sem ég best
veit voru þrjár
þeirra frá ham-
farasvæðinu auk
Sasaki, þjálf-
arans. Miðvörð-
urinn, Aya Sam-
eshima, nr. 15,
tilheyrði t.d. fót-
boltaliðinu „To-
kyo Electricity“
og starfaði í því
kjarnorkuveri
sem olli geislalekanum eftir jarð-
skjálftann.
Í ljósi aðstæðna þurfti Aya að velta
fyrir sér hvað væri rétt og rangt. Hún
var í æfingabúðum sem voru langt í
burtu frá hamfarasvæðinu en sendi
skeyti til móður sinnar: „Má ég æfa
mig í fótbolta á meðan margir eiga í
erfiðleikum? Er ekki eitthvað að?“
Hún var lömuð af sektarkennd. En
þeir sem hvöttu hana og sögðu að
Aya mætti halda áfram að æfa voru
fólk á hamfarasvæðinu sjálfu. „Hið
besta sem þú getur gert fyrir okkur
er að sýna okkur góðan fótboltaleik.
Gefðu okkur gleði og von!“ Svo sann-
arlega svaraði Aya fólkinu með því að
sýna sitt besta.
„Fagnið með fagnendum, grátið
með grátendum“ (Rom. 12:15) eru
uppáhaldsorð mín í Biblíunni. Það
þýðir ekki að við skulum aðlaga okk-
ur að manneskju sem stendur
frammi okkur núna. Það þýðir að við
skulum lifa með náungum okkar alla
tíð, hvort sem tíminn er góður eða
slæmur. Sorg manna og gleði, erf-
iðleikar fólks og fagnaðarefni er allt
tengt hvað við annað á einhvern hátt.
Sorg getur verið kraftur til að breyta
neikvæðum raunveruleika í jákvæða
átt og fögnuður verður næring fyrir
nýja von. Þess vegna megum við ekki
horfa fram hjá erfiðleikum annarra
og við skulum ekki hika við að fagna
fagnaðarefnum með öðrum.
Japanska þjóðin upplifði bæði sorg
og gleði á stuttu tímabili. Við grétum
og grétum, en núna er Japan full af
gleði og fögnuði. Þetta tvennt er
sjálfstætt hvort gagnvart öðru, en
samt tengist það víst gegnum mann-
eskjur sem hafa huggun til nágranna
og kærleika.
Mig langar að þakka „Nadeshiko“-
stelpunum fyrir þessi ómetanlegu
skilaboð og einnig vil ég taka undir
þakkir fyrir þá samstöðu sem fólk um
allan heim sýndi Japan og kom svo
berlega í ljós í heimsmeistarakeppn-
inni.
TOSHIKI TOMA,
prestur innflytjenda.
„Nadeshiko“ Japan og
þakklæti Japana til heimsins
Frá Toshiki Toma
Toshiki
Toma
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá
lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í
bréfum til blaðsins.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að
kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að
kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir
að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr
felliglugganum.
Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og
greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar.
Móttaka aðsendra greina