Morgunblaðið - 26.07.2011, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Það verður boðið upp á ítalska söng-
dagskrá í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í kvöld. Valdís G. Greg-
ory sópransöngkona og Guðríður
Steinunn Sigurðardóttir píanóleikari
munu flytja sönglög eftir bel canto-
tónskáldin Gioachino Rossini, Vin-
cenzo Bellini og Gaetano Donizetti. Í
kjölfarið verða fluttar aríur eftir
Verdi og Puccini sem voru undir
miklum áhrifum frá bel canto-
tónskáldunum.
Á tónleikunum verða einnig flutt-
ar aríur eftir Händel og Mozart sem
höfðu áhrif á hefðina sem þróaðist
frekar á Ítalíu.
Þekkir hefðina vel
Valdís hefur m.a. leikið hlutverk
Næturdrottningarinnar í Töfraflaut-
unni og sungið einsöng með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Sumarið 2010
stundaði Valdís nám við Bel Canto
Institute í Flórens á Ítalíu . Þar
hlaut hún verðlaun fyrir hæfni í beit-
ingu á stíl og hefðum bel canto hefð-
arinnar og tilfinningu fyrir notkun
ítalska tungumálsins.
Dagskráin hefst kl. 20:30 en að-
gangseyrir er 2000 kr.
Ítölsk söng-
dagskrá á
boðstólum
Bel canto-söng-
hefðin kynnt
Morgunblaðið/Eggert
Sópransöngkona Valdís G.
Gregory lærði m.a. á Ítalíu.
Óttar Guðmundsson, læknir
og formaður Félags áhuga-
manna um sögu læknisfræð-
innar, mun veita gestum
Lækningaminjasafns Íslands
leiðsögn í kvöld. Óttar mun
fjalla um Bjarna Pálsson sem
var skipaður fyrsti landlæknir
landsins árið 1760. Hlutverk
hans var að byggja upp heil-
brigðiskerfi í landinu. Hann
menntaði lækna og yfirsetukonur, bruggaði lyf
og læknaði sjúka. Nesstofa var embættisbú-
staður landlæknis og er eitt af elstu húsum
landsins.
Leiðsögnin hefst kl. 18:30.
Menning
Leiðsögn
um Nesstofu
Nesstofa
Á morgun mun Haukur Guð-
laugsson organleikari leika
verk eftir Bach, Pachelbel og
Boëllmann. Tónleikarnir eru
hluti af tónleikaröðinni „Org-
elandakt á hádegi í Dómkirkju
Krists konungs í Landakoti í
júlí og ágúst 2011.“ Haukur
hefur leikið á orgel- og kórtón-
leikum bæði hér heima og er-
lendis. Í vor gaf hann út Org-
anflóru, tvöfaldan geisladisk
með upptökum úr mörgum mismunandi kirkjum á
tímabilinu 1956-2010.
Tónleikarnir hefjast kl. 12:30 og aðgangur er
ókeypis.
Tónlist
Orgeltónleikar í
Landakotskirkju
Haukur
Guðlaugsson
Stephen West, 23 ára gamall
dansari og einn vinsælasti
prjónahönnuður heimsins, er
nú staddur hér á landi sem
gestakennari á vegum Knitt-
ing Iceland.
Stephen West er álitinn
sérstakur snillingur í hönnun
sjala og hefur gefið út þrjár
bækur sem hafa allar notið
vinsælda meðal prjónara víða
um heim. Hann stundar nú
danshöfundanám í Amsterdam en prjónar og
hannar þegar hann fær tóm til þess, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá Knitting Ice-
land.
Prjónahönnun
Stephen West
í heimsókn
Stephen
West
Hallur Már
hallur@mbl.is
Í kvöld stígur á svið hópur íslenskra
tónlistarmanna á kammertónleikum
í Selinu við Stokkalæk. Flytjendur
verða þau Þórunn Vala Valdimars-
dóttir sópransöngkona, Gróa Mar-
grét Valdimarsdóttir fiðluleikari,
Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðlu-
leikari, Þóra Margrét Sveinsdóttir
víóluleikari og Ásta María Kjart-
ansdóttir sellóleikari og þá munu
Sólborg Valdimarsdóttir og Kristján
Karl Bragason leika á píanó. Að
sögn Hafdísar Vigfúsdóttur hefur
hópurinn þekkst lengi í gegn um
námið. „Við kynntumst við nám í
Listaháskólanum en á undanförnum
árum höfum við verið erlendis við
nám. Nú í sumar fengum við tæki-
færi til að vinna saman í tengslum
við Bergmálshátíðina sem verður á
Dalvík í næstu viku. Þessir tónleikar
eru hluti af því ferli en við höfum
verið við stífar æfingar í allan júlí.“
Spennandi að leika
á Stokkalæk
Selið á Stokkalæk var opnað í júlí-
mánuði árið 2009 þar sem starfrækt
er tónlistarsetur sem hefur það að
markmiði að styðja ungt fólk í klass-
ískri tónlistariðkun. Hafdís segir að
einhverjir af hljóðfæraleikurunum
hafi verið þar áður við æfingar.
„Þessi staður er alveg sérstaklega
gefandi fyrir íslenskt tónlistarfólk,
öll aðstaða þar er til mikillar fyr-
irmyndar. Salurinn er ekki mjög
stór en býður upp á svona stofu-
tónleika-stemningu sem er mjög
skemmtileg.“
Píanókvintett
Schumanns á meðal verka
Hafdís segir að dagskráin ætti að
höfða til margra. „Við byrjum á
tveimur íslenskum sönglögum eftir
Sigvalda Kaldalóns og Tryggva
Baldvinsson sem Þórunn Vala syng-
ur. Næst verður mjög fallegt verk,
Chanson Perpetuelle fyrir sópran,
strengjakvartett og píanó eftir
franska tónskáldið Chausson. Það er
verk sem hefur ekki verið flutt oft
hér á landi. Að lokum flytjum við svo
rómantískt kammerverk, en það er
píanókvintett eftir Schumann og er
einn sá allra fallegasti sinnar teg-
undar.“
Kammertónleikar í Selinu
Kammersveit Tónlistarfólkið sem mun koma fram á tónleikunum í Selinu á
Stokkalæk er ungt að árum og stundar tónlistarnám sitt erlendis.
Tónleikarnir í Selinu
» Hópurinn mun flytja sönglög
eftir Sigvalda Kaldalóns og
Tryggva M. Baldvinsson.
» Einnig verða á dagskrá verk
eftir franska tónskáldið Chaus-
son og píanókvintett Schu-
manns
» Selið við Stokkalæk hefur
nú verið starfrækt í tvö ár og
haldnir hafa verið 77 tónleikar.
Tónlistarfólk í námi á víð og dreif
Spila sjaldheyrt verk Chaussons
Danska söngkonan Cathrine Legardh kem-
ur ásamt Sigurði Flosasyni saxófónleikara
fram á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld.
Þar munu þau flytja lög af nýútkomnum
geisladiski þeirra, Land & Sky, í bland við
klassísk djasslög. Diskurinn var á dögunum
gefinn út af hinni virtu Storyville-útgáfu í
Kaupmannahöfn sem hefur verið starfrækt
frá árinu 1952. „Ég kom fyrst hingað til
lands á síðasta ári en hef verið hér töluvert
mikið síðan þá,“ segir Cathrine sem er vin-
sæl djasssöngkona í Danmörku. Auk hennar
og Sigurðar munu Agnar M. Magnússon
leika á pínaó, Valdimar K. Sigurjónsson á
kontrabassa og Einar Scheving á trommur.
„Á þeim tíma hef ég spilað með ýmsum ís-
lenskum tónlistarmönnum en hljómsveitin
er að spila í fyrsta sinn í þessari mynd.“
Ólík blæbrigði
Upptökur á plötunni fóru fram í Dan-
mörku en hljóðblöndun og eftirvinnsla á Ís-
landi. Cathrine segir tónlistina á skífunni
vera fjölbreytta. „Sumt er bjart og létt en
önnur lög eru myrkari.“ Aðspurð hvort ís-
lenska tengingin hafi áhrif á þunga tónlist-
arinnar, segir Cathrine að sú tilfinning
sem skili sér í tónlistinni sé frekar norræn.
„Ég byrjaði á því að semja texta og Sig-
urður sneið melódíur og hljóma að þeim,
þannig að engar tilviljanir er að finna í
samvinnu tóna og orða.“ Í kjölfar þessara
tónleika hafa þau hug á að fylgja plötunni
frekar eftir.
Syngur fyrir börn
Cathrine rekur sitt fyrirtæki í Danmörku
og syngur m.a. djass fyrir börn, sem hún
segir að kunni vel að meta tónlistina. „Án
þess að vita nákvæmlega hvað það er sem
þau hafa gaman af er eitthvað í taktinum
sem höfðar til þeirra. Þau vita bara að
þetta er öðruvísi tónlist sem þau kunna að
meta.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20:00 og
miðaverð er 1500. kr.
Norrænn djass
Legardh og Sigurður Flosason á tónleikum
Blanda af ólíkum blæbrigðum djassins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Djasssöngkona Legardh er vinsæl söngkona í Danmörku og mun ásamt Sigurði Flosasyni og
hljómsveit flytja lög af plötu þeirra Land & Sky á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld.
Í lok júlí breytist
Bakkagerði í Borg-
arfirði eystri úr einu af-
skekktasta byggðarlagi
landsins í ævintýrareit tón-
listarvinarins 32
»