Morgunblaðið - 06.08.2011, Side 1
SNJALLSÍMAR
TIL MARGS
NÝTIR
STÓRBROTIN
NÁTTÚRA
LÓNSÖRÆFA
JARÐTÓNAR
OG HVÍTT Á
TÍSKUVIKU
SUNNUDAGSMOGGINN KÁTT Í KÖBEN 35SNIÐUG TÆKI 6
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Forystumenn í atvinnulífinu hafa
orðið efasemdir um að draga muni
verulega úr atvinnuleysi á næsta ári
og er þá horft til þess að markmið
um 4-5% hagvöxt þykja nú fjarlæg-
ari en við gerð kjarasamninga.
„Það má segja að þetta ár sé nán-
ast tapað hvað hagvaxtarmöguleika
snertir,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, og bætir því við að nú sé
útlit fyrir að markmið um 4-5% hag-
vöxt á næsta ári muni ekki nást.
Stóðu ekki við loforðin
Árni Jóhannsson, forstöðumaður
mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðn-
aðarins, er harðorður í garð stjórn-
valda og segir þau „ekki hafa gert
eitt eða neitt“ af því sem þau lofuðu
við gerð nýgerðra kjarasamninga.
Halldór Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands Ís-
lands, gagnrýnir einnig vanefndir
stjórnvalda og segir hagkerfið ekki
vaxa eins og stefnt var að.
Orri Hauksson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, er orðinn
vondaufur um að 4-5% hagvöxtur
verði á næsta ári. „Það væri krafta-
verk. Ég sé ekki hvaðan slíkur vöxt-
ur ætti að koma,“ segir Orri.
Hann kveðst aðspurður reikna
með 7-8% atvinnuleysi á næsta ári.
Framlengir kreppuna
Tafir á framkvæmdum setja markmið um aukinn hagvöxt í uppnám Vaxandi
svartsýni á horfur í efnahagsmálum 2012 Útlit fyrir mikið atvinnuleysi
Fara af landi brott
» Fram kemur í nýjum tölum
Hagstofu Íslands að 3.000
manns fluttu af landi brott
fyrstu 6 mánuði ársins.
» Þar af fluttust 1.820 íslensk-
ir ríkisborgarar frá landinu eða
um tíu á degi hverjum.
Áætlað er að nær 30.000 börn undir
fimm ára aldri hafi dáið úr hungri í
sunnanverðri Sómalíu á síðustu
þremur mánuðum vegna mestu
þurrka í landinu í 60 ár, samkvæmt
könnunum bandarískra yfirvalda.
Óttast er að tala látinna ungbarna
hækki á næstu vikum þar sem Sam-
einuðu þjóðirnar áætla að um
640.000 börn í Sómalíu séu alvarlega
vannærð. Útlit er fyrir að ástandið á
þurrkasvæðunum versni á næstu
mánuðum. »21
Um 30.000
börn sögð
hafa dáið
Reuters
Neyð Vannærð börn á sjúkrahúsi í
Mogadishu, höfuðborg Sómalíu.
Horfur á að ástandið
í Sómalíu versni
„Þetta er alveg ólýsanlegt, með allra besta móti,“ sagði Júlíus Júlíusson,
framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, beðinn um að lýsa stemningunni á
súpukvöldinu á Dalvík í gærkvöldi. Hann áætlar að um 20 þúsund gestir
séu í bænum, aðeins færri en í fyrra, og bætir við að þrátt fyrir mannfjöld-
ann sé stemningin mjög róleg og góð enda barnafjölskyldurnar margar. Í
dag er sjálfur Fiskidagurinn mikli og verður þá nóg um að vera í bænum.
Ólýsanlega góð stemning á súpukvöldi á Dalvík
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Græna orkan, í því skyni að auka
hlut visthæfra innlendra orkugjafa
í samgöngum, segir Gísli, „en í raun
hefur lítið gerst“.
Að sögn iðnaðarráðuneytisins
verður Græna orkan forgangsverk-
efni komandi vetur. »12
Um fjögur þúsund rafbílar eru nú
á götum Noregs og stefna norsk
stjórnvöld að því að þeir verði 200
þúsund eftir níu ár. Á Íslandi eru
ellefu rafbílar.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
fyrirtækisins Northern Lights
Energy, hefur í þrjú ár unnið í raf-
bílavæðingu íslenska bílaflotans og
telur íslensk stjórnvöld of hægfara.
Hér á landi séu ekki tollar og vöru-
gjöld á rafbílum, en í mörgum ná-
grannalöndunum hafi verið tekin
stærri skref.
Við núverandi aðstæður treysti
hann sér vart til að selja rafbíla
hér. Iðnaðarráðuneytið hafi fyrir
ári hafið samstarf, sem nefnist
Aðeins ellefu rafbílar á götum Íslands
en um fjögur þúsund í Noregi
Rafbíll Svo er bara að stinga í samband.
Áframhaldandi óróleiki var á fjár-
málamörkuðum heimsins í gær, og
héldu hlutabréfavísitölur víðast
hvar áfram að lækka. Í Bandaríkj-
unum var dagurinn ekki jafn slæm-
ur og margir höfðu óttast. Nýjar
atvinnutölur voru skárri en reiknað
hafði verið með, þótt þær hafi alls
ekki verið góðar. Alls fjölgaði störf-
um um 117 þúsund í júlí og lækkaði
hlutfall atvinnulausra í 9,1%.
Þegar tölurnar voru kynntar í
gærmorgun tóku vísitölur kipp upp
á við. Það entist hins vegar ekki og
lækkuðu bæði Dow Jones og S&P
500 vísitölurnar skarpt um miðbik
dags. Sú lækkun gekk loks að
miklu leyti til baka og glöddust
margir við það að Dow Jones var
rúmlega hálfu prósenti hærri í lok
dags en byrjun. Nasdaq og S&P
500 lækkuðu lítillega. Vikulækkun
hinnar síðarnefndu var sú mesta
sem átt hefur sér stað síðan í nóv-
ember 2008. Allar helstu hluta-
bréfavísitölur í Evrópu lækkuðu í
gær, mest í Þýskalandi þar sem
Dax-vísitalan lækkaði um tæp 3%.
FTSE-vísitalan í London lækkaði
um 2,7% og hefur nú lækkað um
11,1% á árinu, að langmestu leyti
síðustu vikuna.
Fjárfestar eru uggandi vegna ört
versnandi stöðu Ítalíu. Ávöxt-
unarkrafa á ítölsk ríkisskuldabréf
er nú orðin hærri en á spænskum
ríkisskuldabréfum í fyrsta sinn í
meira en ár. Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, hefur ákveðið
að flýta umbótum í hagkerfinu og
er sagður íhuga stjórnarskrárbreyt-
ingu sem feli í sér bann við halla-
rekstri ríkissjóðs. »20
Kærkomið helgarfrí frá mörkuðum
Lúinn Miðlarar hafa átt erfiða viku
Reuters
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri
lést við köfun nærri Eyrarsundsbrú,
sem liggur á milli Svíþjóðar og Dan-
merkur, í fyrradag. Maðurinn, sem
er búsettur í Svíþjóð, hafði verið þar
við köfun ásamt tveimur félögum
sínum um morguninn.
Hann varð viðskila við félaga sína
sem kölluðu í kjölfarið eftir aðstoð.
Þyrla og bátar tóku þátt í leitinni og
maðurinn fannst eftir um tveggja
tíma leit. Á sjúkrahúsi var hann úr-
skurðaður látinn. Rannsókn á slys-
inu er ólokið.
Lést við köfun
á Eyrarsundi
MStefnir í hrímkalt haust »14
L A U G A R D A G U R 6. Á G Ú S T 2 0 1 1
Stofnað 1913 182. tölublað 99. árgangur