Morgunblaðið - 06.08.2011, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Það var sannkölluð jólastemning í
Kringlunni þegar lokasprettur út-
salanna hófst á fimmtudaginnn,“ að
sögn Ármanns Lloyd Brynjarssonar,
afgreiðslumanns hjá Outfitters Na-
tion en útsölum lýkur um helgina
með götumarkaði í bæði Kringlunni
og Smáralind. „Þetta byrjaði með
trompi,“ segir Ármann en margt
hefur verið um manninn í Kringl-
unni og tóku verslunarstarfsmenn
undir það að fyrsti dagurinn hafi
„gengið vonum framar“ eins og Kar-
en Ómarsdóttir í La Senza komst að
orði. „Það hefur verið mjög margt
fólk í húsinu, bæði á götumark-
aðinum og inni í búðinni,“ segir
Erna Guðrún Björnsdóttir í Zik Zak
tískuhúsi, með einróma undirtektum
verslunarstarfsmanna.
Ekki hefur þó verið jafn mikill
mannfjöldi í Kringlunni síðan útsöl-
ur hófust um seinustu mánaðarmót.
Til að mynda hefur Ármann tekið
eftir því að „það sé búið að vera mik-
ið um fólk út á landi og í ferðalögum
og því hefur kannski aðeins dregið
úr fjöldanum í Kringlunni“. Hins-
vegar kom „verslunarmannahelgin
sterkt inn, og eykst með hverju ári,“
að sögn Karenar.
Í flestum búðum voru nýjar vörur
komnar í hillurnar og sumstaðar á
tilboðum eða afslætti sem stendur til
sunnudags.
„Sannkölluð jólastemning“
Krökkt í verslanamiðstöðvum á
götumörkuðum Lægðir vegna fría
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Góð kaup Verslunarstarfsmenn jafnt sem gestir tóku eftir því að margt
fólk hefur verið í Kringlunni síðan lokasprettur útsalanna hófst.