Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Fjöldi farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fór í fyrsta sinn yfir eitt hundrað þúsund farþega í ágúst síð- astliðnum samkvæmt tölum yfir brottfarir frá Ferðamálastofu. Sam- tals var um 101.841 farþega að ræða en til samaburðar var fjöldinn 89.558 á sama tíma fyrir ári. Það er því ljóst að orðið hefur veruleg fjölgun á milli ára, farþegar um 12 þúsundum fleiri en í ágúst á síðasta ári. Fjölgunin nemur 13,7% á milli ára. Fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu að erlendir ferðamenn hafa aldrei áður verið fleiri en eitt hundrað þúsund í einum mánuði og að þeir séu nú helmingi fleiri en þeir voru í ágústmánuði á árinu 2002. Mest aukning í Reykjavík „Ágúst hefur verið óvenjugóður mánuður hvað varðar fjölda ferða- manna en við höfum nú yfirleitt meiri áhuga á gistináttatölunum heldur en hausatalningu. Það er augljóst af þeim gistináttatölum sem við höfum þegar fengið vegna sum- arsins, sem eru reyndar bara heils- árshótel, að það hefur orðið ansi mikil aukning á höfuðborgarsvæð- inu,“ segir Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. Hún segir að samkvæmt þeim töl- um sé um að ræða mikla fjölgun ferðamanna sem stoppi tiltölulega stutt á landinu. „Fólk sem stoppar í kannski tvo, þrjá daga og gerir í sjálfu sér ekki mikið meira en að vera í Reykjavík og fara í dagsferðir þaðan. En við sjáum þetta betur þegar við höfum fengið almenni- legar gistináttatölur fyrir sumarið. Þá sjáum við betur hvernig ferða- mennirnir hafa dreifst og hversu mikil fjölgun er á gistinóttum miðað við það hversu mikil fjölgun er á hausum. Það er augljóst það sem af er að það er minni fjölgun á gisti- nóttum frekar en hausum sem þýðir að fólk er að stoppa styttra.“ Víða fjölgun úti á landi Víða úti á landi hafi engu að síður verið þokkaleg fjölgun á gistinóttum á heilsárshótelum að sögn Ernu miðað við fyrirliggjandi tölur. Hins vegar sé hætt við að þegar upplýs- ingar berist frá minni gististöðum og tjaldsvæðum verði ekki um að ræða alveg jafn góðar tölur. Íslendingar sæki mikið í slíka gististaði og kalt veður hafi verið víða á landinu í sum- ar sem má búast við að hafi skilað sér í minni ferðalögum þeirra. „En þetta er gríðarlegur fjöldi sem er að koma hérna inn í ágúst- mánuði og ágústmánuður er mjög góður mánuður þó það nái kannski ekki á öll landsvæði. Ég hef bara fundið það á fólki bæði í Reykjavík og úti á landi,“ segir Erna. Aukning í endurgreiðslum Valur Fannar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Iceland Refund, segir að fjölgun ferðamanna til landsins komi einnig fram í tölum yfir endur- greiðslur á virðisaukaskatti til þeirra. Aukningin í íslenskum krón- um nam um 20,4% á tímabilinu maí til ágúst í ár miðað við sama tíma í fyrra. Hins vegar sé tilfinningin sú að margir þeirra eyði ekki mjög miklu. „Heilt yfir þá er þetta búið að vera flott sumar og það skýrist nátt- úrulega af aukinni komu ferða- manna en hver og einn eyðir kannski svipuðu og í fyrra. Þetta er nokkurn veginn í sama farinu að því leyti,“ segir Valur. Hann segir að þessi mál séu klárlega á réttri leið. Iceland Refund hafi til dæmis boðið upp á þá þjónustu að ferðamenn geti á nokkrum stöðum á höfuðborgar- svæðinu fengið endurgreiðslu á virð- isaukaskatti á meðan þeir eru enn í landinu og geti þar með verslað fyrir þann pening hér. Margar verslanir til að mynda í Reykjavík séu farnar að leggja mikla áherslu á viðskipti við ferðamenn og þau viðskipti séu farin að skipta þær verulega miklu máli. Metfjöldi ferðamanna í ágúst Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðamenn Samkvæmt tölum frá Ferðamálaráði fór fjöldi farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrsta sinn yfir eitt hundrað þúsund manns í ágúst síðastliðnum miðað við brottfarir. Fjölgunin miðað við ágúst í fyrra er 13,7%.  Vísbendingar um að margir ferðamenn stoppi stutt í landinu og haldi sig aðallega við höfuðborgar- svæðið  Hver ferðamaður eyðir svipuðu í ár að meðaltali og í fyrra  Sumarið almennt verið gott Farþegar um Leifsstöð 2009-2011 Bandaríkin 56.900 Þýskaland 46.624 Bretland 45.791 Danmörk 30.471 Frakkland 30.141 Önnur lönd 196.557 Skipting eftir þjóðerni janúar - ágúst 2011 14% 11,5% 11,3% 7,5%7,4% 48,4% Maí Júní Júlí Ágúst 2009 2010 2011 34 .6 37 28 .2 98 3 7. 21 2 54 .4 89 54 .3 91 6 5. 60 6 52 .2 20 83 .4 65 97 .7 57 92 .0 21 89 .5 58 1 0 1. 84 1 „Sumarið fór mjög seint af stað hjá okkur. Þetta fór í raun ekkert almenni- lega í gang fyrr en langt var lið- ið á júlí og var síðan fram yfir miðjan ágúst. Það var jafnvel meira að gera fyrstu tvær vikurnar í ágúst en í júlí sem er kannski svolítið óvenju- legt,“ segir Sigríður María Hamm- er, umsjónarmaður Upplýsinga- miðstöðvar ferðamanna á Akur- eyri. Hún segir að þessi þróun gæti mjög líklega einfaldlega stafað af veðrinu sem hafi ekki verið sér- lega gott í sumar. „Það er búið að vera mjög lélegt sumar hérna á Norðurlandinu og það var í raun ekkert gott veður fyrr en í ágúst. Þannig að það ræðst alveg örugg- lega allavega að einhverju leyti af því.“ Færra fyrir norðan Sigríður segir að ekki liggi fyrir tölur um fjölda ferðamanna eða samanburð við fyrri ár. Þær verði teknar saman þegar sumarvertíð- inni er endanlega lokið. Það sé þó ljóst að það er ekki sama umferð á Akureyrarsvæðinu og á höf- uðborgarsvæðinu. „Það er auðvit- að allt annað umhverfi hér fyrir norðan en sunnan. Maður hefur séð það þegar maður hefur verið fyrir sunnan að oft á tíðum er bærinn troðfullur af ferðamönnum en það hefur ekki verið raunin hér,“ segir hún. Margir erlendir ferðamenn komi þó til Akureyrar á sumrin með þeim skemmti- ferðaskipum sem kjósi að leggja leið sína til bæjarins. Dreifingin sé þannig auðvitað ekki sú sama alls staðar á landinu. Margir ferðamenn sem komi til landsins stoppi stutt við og fari þá í mesta lagi rétt út fyrir höfuð- borgarsvæðið. „Það er því meðal annars verkefnið að reyna að fá fleiri ferðamenn til þess að vera lengur og koma þá til dæmis líka hingað norður og skoða það sem við höfum upp á að bjóða.“ Segir sumarið hafa farið seint af stað fyrir norðan Sigríður María Hammer Ólafur Bernódusson Skagaströnd | Í tilefni af 100 ára afmæli sínu 3. september hélt Hrefna Jóhannesdóttir mikla af- mælisveislu í félagsheimilinu Fells- borg á Skagaströnd. Þar fylltu ætt- ingjar og vinir Hrefnu húsið til að fagna þessum tímamótum með henni með söng og gleði. Hrefna fæddist á Skagaströnd 3. september 1911, dóttir hjónanna Jóhannesar Pálssonar og Hrefnu Þorbergsdóttur. Hún eignaðist fimmtán systkini og eru tvö þeirra á lífi í dag; Guðrún 86 ára, sem býr í Ameríku og Guðmundur 91 árs sem býr á Skagaströnd. Hrefna sem alltaf hefur átt heima á Skaga- strönd býr nú á dvalarheimilinu Sæborg en lengst af átti hún heim- ili hjá Guðmundi bróður sínum og fjölskyldu hans. Starfsævi sinni eyddi Hrefna sem vinnukona og við fiskvinnslu. Hrefna hefur alltaf verið glað- lynd og hress og er það enn nema hvað heyrninni er mjög farið að hraka. Aldargömul, glaðlynd og hress Morgunblaðið/Ólafur Bernódus Afmæli Hrefna Jóhannesdóttir með Guðmundi bróður sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.