Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 36
Morgunblaðið/Eggert Skipuleggjari Guðmundur Steinn Gunnarsson tónskáld. Jaðarber er ný tónleikaröð sem Listasafn Reykjavíkur og Tinna Þor- steinsdóttir píanóleikari og Guð- mundur Steinn Gunnarsson tónskáld hafa umsjón með. Eitt miðvikudags- kvöld í mánuði verður boðið upp á fjölbreytta flóru nýrrar tónlistar, sem angar af leikhúsi, myndlist, gjörningalist og konseptlist, auk þess sem röðin mun leika stórt hlut- verk í sýningastarfi vetrarins. Í til- kynningu frá Listasafninu segir að fjölbreyttir viðburðir hafi verið skipulagðir á vegum tónleikarað- arinnar, meðal annars nokkurra daga S.L.Á.T.U.R.-tíð í Hafnarhús- inu og listgjörningur í samvinnu við Reykjavík Dance Festival, fyrsta verkið sem flutt verður að hálfu tón- leikaraðarinnar. Jaðarber í Listasafni Reykjavíkur 36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um Heimili og hönnun föstudaginn 16. sept. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. sept. MEÐAL EFNIS: Ný og spennandi hönnunInnlit á heimili Lýsing Skipulag á heimilinu Stofan Eldhúsið Baðið Svefnherbergið Barnaherbergið Málning og litir Gardínur, púðar, teppi og mottur Blóm, vasar og kerti Innanhússhönnun Þjófavarnir Ásamt fullt af öðru spennandi efni um heimili, hönnun og lífsstíl NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569 1105 Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru að huga að breytingar á heimilum sínum. Skoðuð verða húsgögn í stofu, eldhús, svefnherbergi og bað, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem er huggulegt fyrir veturinn. Heimili & hönnun SÉRBLAÐSÉRBLAÐ Vegna gríðarlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum á Biophiliu Bjarkar hinn 7. nóvember nk. Uppselt er á 8 tónleika í Silfurbergi og er ljóst að mikill áhugi er á Biophiliu enda um einstakan viðburð að ræða. Miða- sala hefst á harpa.is og midi.is föstudaginn 8. september kl. 12.00. Þessir lokatónleikar verða haldnir í sjálfum Eldborgarsalnum og verð- ur öllu til tjaldað til þess að gera þessa tónleika að stórkostlegri upp- lifun. Biophilia kemur út hinn 10. október nk. en platan var dæmd í nýjustu Q- og Mojo-tímartitunum og voru dómarnir afar lofsamlegir – fjórar stjörnur hjá báðum ritum. Aukatónleikar Bjarkar í Eldborg Meira Íslendingar eru mjög spenntir fyrir tónleikum Bjarkar. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hver er þessi Bakka-Baldur? Því velti blaðamaður fyrir sér þegar hann fékk í hendur tilkynningu um að til stæði að frumsýna heimild- armyndina Bakka-Baldur eftir Þor- finn Guðna- son, mynd um Baldur Þórarinsson frá Bakka í Svarfaðardal sem í til- kynningu er sagður goð- sögn í lif- anda lífi í dalnum og að um hann hafi verið ortar lands- fleygar vísur og sungin lög um hann á mannamótum. Það var ekki annað í stöðunni en að hringja í annan af tveimur framleiðendum mynd- arinnar, Bjarna Óskarsson sem býr á Völlum í Svarfaðardal, og spyrja hann út í Baldur þennan en Bjarni leitaði til Þorfinns um að gera mynd um Baldur. Einn af Bakkabræðrum hinum síðari „Baldur er nú vinnumaður hjá mér hérna á Völlum og er einn af Bakkabræðrum hinum síðari, frá Bakka í Svarfaðardal þar sem Bakkabræður voru. Hann er lærður smiður en helsta áhugamál hans er hestamennska, hann hefur verið að rækta hesta og gengið ágætlega. Baldur er maður sem hefur aldrei gifst og er rólegur og yfirvegaður, hefur góða nærveru, getur verið hnyttinn í svörum og er svolítið sér- stakur. Hann getur verið óttalegur þverhaus,“ segir Bjarni. Baldur sé sérstakur maður. – Hann er vonandi ekki of líkur Bakkbræðrum í háttum? „Hann getur verið svolítið líkur Bakkabræðrum í háttum stundum, hann gerir hlutina stundum svolítið eins og þeir. Svo getur hann líka ver- ið rosalega vandvirkur, hann er bók- hneigður, hefur gaman af því að lesa og pæla.“ Draumur rætist – Það segir um myndina að hann hafi lengi alið þann draum í brjósti að hitta vin sinn á fjarlægri strönd, hinum megin á hnettinum. „Hann átti vin á Havaí og Havaí er náttúrlega svolítið eins og Ísland, eldfjallaeyja í miðju úthafi og margt líkt með eyjunum. Jarðvinnsla og annað, ég held að lóan sé meira að segja einn af þeirra aðalfuglum, eins og okkar. Hann átti sér þann draum að fara að heimsækja þennan vin sinn á Havaí og það var ákveðið að við nokkrir hérna úr dalnum færum með honum að upplifa drauminn,“ segir Bjarni en ekki má ljóstra upp um hver vinurinn er. „Hann hefur ekki farið mikið til útlanda, talar ekki ensku og svona og hefði ekki getað farið þetta á eigin forsendum þannig að þetta snerist um það að menn myndu slást í för og aðstoða hann við þetta. Út á það gengur svo- lítið myndin.“ Bjarni segir myndina ekki síður fjalla um Svarfaðardal, menninguna í dalnum og náttúrufegurðina. Þema myndarinnar sé í stuttu máli náttúra og kærleikur, mikil sveitarómantík í henni. Hann segist hafa leitað til Þorfinns um að gera mynd um Bald- ur og hann hafi slegið til, litist vel á viðfangsefnið. Merkilegur smyrill Að lokum spyr blaðamaður af hverju Bjarni sé með smyril á mynd sem send var með tilkynningu í tölvupósti. „Þetta var svolítið skond- ið. Þegar við vorum að taka upp þessa mynd, Bakka-Baldur, hérna inni í eldhúsi hjá mér og vinur minn var hérna fyrir utan þá kemur fljúg- andi smyrill, lendir á bílnum hjá honum og vildi komast inn í bílinn,“ segir Bjarni. „Ég átti einhverjar restar af lambalæri og fór með þær út og hann óð í þetta í hvelli, át hjá mér lærið. Hann var viku með það og var hjá mér þessa viku.“ Bjarni segist hafa komist að því síðar að smyrillinn hafi verið í hesthúsum og eigendur þeirra gefið honum að éta. „Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið,“ segir Bjarni um þennan merkilega gæfa fugl. Bakka-Baldur verður frumsýnd í dag kl. 18 í menningarhúsinu Bergi á Dalvík, á heimaslóðum söguhetj- unnar. Hluti af aðgangseyri rennur til góðgerðarmála á Dalvík. Ljósmynd/Stefán Loftsson Sveitasæla Baldur Þórarinsson frá Bakka í Svarfaðardal í sveitasælunni. Bakka-Baldur er sveitasaga um vináttu og draum, krydduð óvæntum endi, eins og höfundur myndarinnar, Þorfinnur Guðnason, kemst að orði í tilkynn- ingu. Bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi voru frá Bakka í Svarfaðardal. Ævintýri Bakka-Baldurs  Heimildarmynd eftir Þorfinn Guðnason um Baldur Þórarinsson frá Bakka í Svarfaðardal, Bakka- Baldur, verður frumsýnd á Dalvík í dag  Vinur á Havaí og svarfdælskur menningarheimur Bjarni Óskarsson með gæfum smyrli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.