Morgunblaðið - 08.09.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Dr. Adele Atkinson ereinn helsti sérfræðingurheims um fjármálalæsi.Hún er menntuð í hag-
fræði og endurskoðun og hefur
doktorsgráðu í fjármálalæsi frá Há-
skólanum í Bristol. Í dag starfar
Atkinson við rannsóknir og stefnu-
mótun á fjármálalæsi hjá Efnahags-
og þróunarstofnun Evrópu (OECD).
Atkinson verður aðalfyrirlesarinn á
ráðstefnu um fjármálalæsi sem
haldin er á morgun.
Breitt áhugasvið
„Áhuginn fyrir þessu starfi
kemur úr ýmsum áttum. Fyrst eftir
að ég lauk námi hafði ég mestan
áhuga á að nota gögn til að skoða
hvort munur á milli kynja, svæða og
námárangurs hefði áhuga á fjárhag.
Síðan var ég líka að kenna hagfræði
og smám saman datt mér í hug að
setja mætti saman hagfræði við per-
sónulega fjármálakennslu. Tækifær-
ið kom þegar mér bauðst að starfa í
persónulegri fjármálamiðstöð frekar
en í hagfræðideild. Þá gat ég ein-
beitt mér að verndun neytenda og
neytendamálum almennt. Áður hafði
áhuginn snúið meira að skóla-
umhverfinu en nú er áhugi minn
breiðari. Í dag er mér helst umhug-
að um það hvernig hægt sé að kenna
fullorðnu fólki fjármálalæsi og
hvernig stjórnvöld geti brugðist við
kröfum um slíkt,“ segir Adele.
Aðstoð er nauðsynleg
Hún segir að vissulega geti
fjármálaheimurinn virst flókinn í
augum almennings. Það ætti hins
Aukið sjálfstraust
í eigin fjármálum
Adele Atkinson, doktor í fjármálalæsi, segir að fólk verði að hafa auga með sínum
eigin fjármálum og bíða ekki eftir því að bréf berist um vanskil eða yfirdrátt. Hún
segir fjármálakreppuna víða um heim hafa vakið fólk til umhugsunar um fjármál
sín og mikilvægt sé að veita fólki góða fræðslu og stuðning í fjármálum.
Fjármál Þróun í notkun greiðslukorta hefur ekki alls staðar verið eins.
Doktor Adele Atkinson sérhæfir sig í fjármálalæsi og starfar í París.
Haustin eru tíminn til að safna í sarp-
inn fyrir vetur, taka upp kartöflur og
grænmeti, tína ber, sulta og frysta og
svo mætti lengi telja. Á haustin eru
blessuð lömbin líka leidd til slátrunar
og þá er nú aldeilis gott að fylla fryst-
inn af gómsætu lambakjöti. Þá getur
komið sér vel að kíkja á síðu sem
heitir lambakjöt.is, því þar er bók-
staflega hægt að finna ALLT um
lambakjöt. Þar eru kennslu-
myndbönd, ótal uppskriftir og leið-
beiningar skref fyrir skref um hvern-
ig á að úrbeina. Undir flipanum
fræðsla eru m.a. ráð um geymslu á
lambakjöti, hvernig á að þíða kjöt,
hver sé munurinn á kindakjöti og
lambakjöti, val á kjöti (hvað hentar
best í hvað). Einnig er að finna allt
um ólíkar aðferðir eins og gufusteik-
ingu, grillsteikingu, pönnusteikingu,
ofnsteikingu eða suðu. Allir þurfa að
kunna að búa til kjötsúpu á haustin.
Vefsíðan www.lambakjot.is
Morgunblaðið/Kristinn
Kunnátta Það er gott að kunna að úrbeina og fituhreinsa lambalæri.
Lambakjöt í sláturtíðinni
Fyrst á haustin þegar kólna tekur í
veðri eru það talsverð viðbrigði fyrir
líkamann. Allt í einu þarf að klæða
táslurnar aftur í sokka og fara í peys-
una. Það er um að gera að láta sér nú
ekki verða kalt og muna að klæða sig
aðeins betur. Sérstaklega fyrst á
morgnana þegar bíllinn er kaldur eða
á göngu í skóla, vinnu eða stoppi-
stöð. Svo er líka bara nokkuð nota-
legt að dúða sig í hlý föt. Það passar
vel við kertaljós og kósíheit að sitja í
sófanum og lesa eða horfa á sjón-
varpið í þykkri peysu, joggingbuxum
og sokkum. Um helgar má svo klæð-
ast slíku allan daginn heima við.
Endilega …
… dúðið ykkur í
notaleg föt
Morgunblaðið/ÞÖK
Sokkar Hlýir á litlar og stórar tásur.
Allir vita sem reynt hafa að yndislegt
er að þiggja nudd og að gefa nudd.
Lítil börn kunna sérstaklega vel að
meta slíkt og það er mikil gæðastund
fyrir foreldra að veita barni sínu gott
nudd. Fyrir þá sem vilja læra að
nudda ungbörn er tilvalið að skella
sér í Eymundsson í Smáralind í dag
klukkan ellefu því þá ætlar Elsa Lára
Arnardóttir sjúkranuddari að vera
með sýnikennslu í ungbarnanuddi.
Hún ætlar að kenna foreldrum, ömm-
um og öfum nú eða systkinum, réttu
handtökin.
Í tilkynningu segir að náin snerting
allt frá fæðingu skapi traust milli for-
eldris og barns. Markvisst ungbarna-
nudd auki vellíðan barnsins, stuðli að
betri svefni, mildi verki við tanntöku
og styrki ónæmiskerfið, auk þess
sem sýnt þykir að það hjálpi börnum
með magakveisu og aðra kvilla. Nudd
hefur einnig víðtæka virkni fyrir eldri
börn, til dæmis þau sem stunda
íþróttir.
Í tilefni nuddstundarinnar verður
bók Elsu Láru um barnanudd á tilboði
hjá Eymundsson.
Nuddstund í Eymundsson
Sýnikennsla í ungbarnanuddi
fyrir foreldra, ömmur og afa
Morgunblaðið/Ásdís
Gæðastund Börn kunna vel að meta nudd og slaka vel á í góðri nuddstund.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 8.-10. sept. verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.398 998 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.498 2.198 1.498 kr. kg
Nautahakk, 2,5 kg í poka ........... 3.245 3995 1.298 kr. kg
Kf sveitabjúgu, 1,26 kg .............. 598 679 474 kr. kg
Coca cola, 4x2 l ........................ 998 798 199 kr. stk.
Cheerios, 992 g ........................ 798 998 804 kr. kg
Ota sólgrjón, 950 g.................... 398 429 418 kr. kg
Frosinn kjúklingur, heill............... 698 785 698 kr. kg
Neutral baby blautklútar............. 398 498 398 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 8.-11. sept. verð nú áður mælie. verð
Nautahakk ................................ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
SS bláberja lærissneiðar ............ 2.183 3.118 2.183 kr. kg
Eldfugls kjúklingabollur, 400 g.... 449 599 449 kr. pk.
Holta bratwurstpylsur, 280 g....... 318 398 318 kr. pk.
Myllu sveitabrauð ...................... 259 549 259 kr. stk.
Myllu vínarbrauðslengja ............. 399 699 399 kr. stk.
Myllu ostaslaufur ....................... 199 369 199 kr. stk.
Myllu baguette, 400 g................ 199 339 199 kr. stk
Krónan
Gildir 8.-11. sept. verð nú áður mælie. verð
Grísakótilettur ............................ 998 1.498 998 kr. kg
Grísagúllas................................ 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Grillborgarar m/br., 4 stk. í pk..... 649 698 649 kr. pk.
Kjúklingur m/lime&rosmarin....... 998 1.198 998 kr. kg
Gríms plokkfiskur, 1 kg í pk. ........ 1.124 1.249 1.124 kr. kg
Forst. fiskibollur, 2 kg í pk........... 1.679 1.866 840 kr. kg
Rauð vínber .............................. 298 597 298 kr. kg
Breiðh. pálmabrauð ................... 239 264 239 kr. stk.
Nóatún
Gildir 8.-11. sept. verð nú áður mælie. verð
Lambalærissneiðar .................... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambasirloinsneiðar .................. 1.269 1.598 1.269 kr. kg
Grísakótilettur............................ 1.098 1.498 1.098 kr. kg
Ungnauta Rib eye ...................... 3.999 4.598 3.999 kr. kg
Gourmet saltfiskhnakkasteik....... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Úrvals rjómasveppasósa, 470 ml 407 479 407 kr. stk.
Þykkv. kartöflub. m/hýði, 700 g .. 191 239 191 kr. pk.
Gardi sólkjarnabrauð, 400 g....... 249 369 249 kr. pk.
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason