Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 31
DAGBÓK 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Sudoku Frumstig 1 5 4 3 2 5 7 6 2 1 4 8 8 1 5 6 2 7 4 6 6 5 7 5 3 2 2 3 5 8 4 8 2 3 7 5 3 6 8 6 5 3 8 1 7 1 2 3 6 4 6 5 7 5 3 7 2 1 9 3 1 8 6 7 4 8 2 5 7 5 8 8 9 1 4 3 7 6 4 1 2 5 9 8 4 1 9 8 5 7 2 6 3 8 2 5 3 6 9 7 1 4 6 8 1 2 7 4 9 3 5 5 3 4 6 9 8 1 7 2 2 9 7 1 3 5 4 8 6 9 6 8 5 4 1 3 2 7 7 5 2 9 8 3 6 4 1 1 4 3 7 2 6 8 5 9 6 4 9 2 1 3 7 8 5 7 3 8 9 4 5 2 1 6 5 1 2 6 7 8 3 4 9 4 2 1 7 9 6 8 5 3 9 7 5 3 8 4 1 6 2 3 8 6 1 5 2 9 7 4 2 6 7 4 3 1 5 9 8 1 5 3 8 6 9 4 2 7 8 9 4 5 2 7 6 3 1 1 7 2 6 4 8 5 9 3 5 9 3 1 7 2 4 6 8 8 4 6 3 5 9 2 1 7 9 1 4 8 3 5 6 7 2 6 3 7 2 9 4 1 8 5 2 8 5 7 1 6 3 4 9 3 5 9 4 8 1 7 2 6 4 6 8 5 2 7 9 3 1 7 2 1 9 6 3 8 5 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 8. september, 251. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Eitt sinn voruð þér myrk- ur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegð- ið yður eins og börn ljóssins. (Efes. 5, 8.) Víkverji er að hugsa um að end-urmeta útlánasafn sitt. Þar sér hann mikla möguleika eftir að Arion banki lýsti yfir því á þriðjudag að hann hefði grætt 10,2 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og mætti einkum skýra það með endurmati á útlánasafni bankans á fyrirtækjasviði. Víkverji lánaði móð- ur sinni nokkrar bækur um daginn, bróður sínum geisladisk, nágrann- anum sláttuvél og frænku sinni vatnsþrýstidælu. Bækurnar og geisladiskurinn teljast til útlána- safns Víkverja á afþreyingarsviði, en sláttuvélin útlánasafns hans á garð- yrkjusviði og vatnsþrýstidælan er talin til viðhaldssviðs. Í rekstri Vík- verja er ekkert fyrirtækjasvið, en það stendur til bóta. Víkverji hefur enn ekki áttað sig á því hvað end- urmat útlánasafnsins býður upp á mikinn gróða, en hann hlýtur að vera talsverður og veitir ekki af á þessum tímum. x x x Talandi um Arion banka þá hefurVíkverji löngum velt vöngum yfir nafngiftinni. Arion nefndist lýruleikari á Grikklandi til forna. Hann þótti á sínum tíma fremstur í sinni röð og hafa díþyrambar verið tileinkaðir honum. Upphaf harm- leiksins hefur einnig verið rakið til hans. Arion var frá eynni Lesbos, en Períander harðstjóri í Korinþu gerð- ist velgjörðarmaður hans. Þekktust er sagan af því þegar sjóræningjar rændu honum er hann var á leið frá Sikiley þar sem hann hafði tekið þátt í keppni lýruleikara og borið sigur út býtum. Munu sjóræningjarnir hafa gefið honum tvo kosti, að fremja sjálfsmorð og verða grafinn á landi, eða kasta sér í sjóinn og hljóta vota gröf. Arion vann sér tíma með því að fá að leika lag á lýru sína. Lék hann lofsöng um Apollon. Að laginu loknu kastaði hann sér útbyrðis, en flutn- ingurinn hafði laðað að höfrunga og björguðu þeir lífi hans. Hér er ekki pláss fyrir söguna af því hvernig sjó- ræningjarnir hlutu makleg mála- gjöld, en hvernig Arion tengist bankastarfsemi er Víkverja hulið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 starfsamt, 4 stig, 7 aka, 8 óviljugt, 9 fum, 11 sef- ar, 13 guð, 14 hélt, 15 þráð- ur, 17 ímynd, 20 títt, 22 ærslahlátur, 23 baunin, 24 heift, 25 ota fram. Lóðrétt | 1 gosmöl, 2 plokka, 3 kögur, 4 sælgæti, 5 frek, 6 endurtekið, 10 lof- orð, 12 gyðja, 13 kyn, 15 spakur, 16 kaðall, 18 giska á, 19 vera ólatur við, 20 árni, 21 ferming. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 spilaborg, 8 sonur, 9 allur, 10 far, 11 maula, 13 geisa, 15 starf, 18 álfan, 21 lof, 22 lygna, 23 arnar, 24 snakillur. Lóðrétt 2 pöndu, 3 lirfa, 4 bjarg, 5 rölti, 6 ásum, 7 þráa, 12 lár, 14 ell, 15 sálm, 16 angan, 17 flakk, 18 áfall, 19 fundu, 20 nýra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Flogið í slemmu. S-AV. Norður ♠Á ♥DG10 ♦ÁDG ♣ÁK8743 Vestur Austur ♠D864 ♠1097532 ♥98742 ♥– ♦87 ♦9532 ♣D9 ♣G105 Suður ♠KG ♥ÁK653 ♦K1064 ♣62 Suður spilar 7♥. „Nú liggja allar leiðir til Rómar,“ hugsaði norður og stökk í 4G. Makker hans hafði opnað á 1♥ og norður ákvað að fara flugleiðina í slemmu með stuttri millilendingu í lykilspilaspurningu. Þeg- ar suður gekkst við því að eiga tvö lyk- ilspil (♥Á-K) gat áfangastaðurinn ekki orðið annar en 7♥. Tromp út og spaði frá austri í fyrsta slag. Það var og. Þrettán slagir eru til staðar, en vand- inn er að komast heim til að taka tromp- in. Sjö grönd hefði verið einfaldara spil. En ekki eins skemmtilegt. Sagnhafi tek- ur trompin þrjú í borði og leggur niður ♠Á. Spilar svo ♦Á, yfirdrepur ♦D, klár- ar tromptökuna með ♥Á-K og hendir ♦G til að ryðja tíunni braut. Tígullinn fellur ekki, en ♠K þvingar austur með hæsta tígul og þriðja laufið. 8. september 1779 Bjarni Pálsson lést, 60 ára. Hann var landlæknir frá 1760 til æviloka, sá fyrsti hér á landi. Bjarni er einnig þekktur fyrir rannsóknarferðir sínar í samvinnu við Eggert Ólafsson. 8. september 1931 Lög um notkun bifreiða voru staðfest. Hámarkshraði í þétt- býli var aukinn úr 18 kílómetr- um á klukkustund í 25 kíló- metra og annars staðar úr 40 kílómetrum í 45 kílómetra. Í dimmu mátti hraðinn þó aldrei vera meiri en 30 kílómetrar á klukkustund. 8. september 1975 Dagblaðið, „frjálst, óháð dag- blað,“ kom út í fyrsta sinn. Dagblaðið og Vísir voru sam- einuð í DV sex árum síðar. 8. september 1977 Þriðja hrina Kröfluelda hófst. Umbrot urðu norður af Leir- hnjúk og stóðu til næsta dags. Í Bjarnarflagi við Mývatn kom hraun og gjall upp úr borholu, í fyrsta skipti hér á landi. 8. september 1987 Fimmtíu króna mynt var sett í umferð. Á henni er mynd af bogakrabba. Peningurinn er 8,25 grömm, gerður úr eir- blöndu. Frá sama tíma var hætt útgáfu 50 króna seðla. 8. september 1989 Tveir fatlaðir menn komu til Reykjavíkur eftir fimm daga ferð frá Akureyri á hjólastól- um til að kynna málstað Sjálfs- bjargar og til að safna fé svo hægt væri að ljúka við Sjálfs- bjargarhúsið. Meðalhraði var 6 km á klukkustund. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Fyrir utan heimili og fjölskyldu hafa helstu kennileit- in til þessa á 70 árum Sigurðar Óla Sigurðssonar ver- ið Landsbanki Íslands og Knattspyrnufélagið Vík- ingur. Einnig Oddfellow-reglan og síðustu ár golf á Urriðavelli með góðum félögum í Oddi. „Ég var sautján ára þegar ég byrjaði að vinna í bankanum, fór beint úr Verzlunarskólanum,“ segir Sigurður Óli. Þar starfaði hann til sextugs og var síð- ustu árin útibússtjóri í Austurbæjarútibúi. Tólf ára flutti Sigurður með fjölskyldu sinni í Langagerðið, en Smáíbúðahverfið var þá að byggjast. „Ég byrjaði strax að æfa með Víkingi undir stjórn Péturs Bjarn- arsonar. Með mér í boltanum fyrstu árin voru meðal annarra kappar eins og Björn Ólafsson, Rósmundur Jónsson, Þórarinn Ingi Ólafsson og Helgi Guðmundsson. Eftir að ég hætti að æfa og keppa tóku við alls konar stjórnarstörf í flestum deildum Víkings að aðalstjórn ógleymdri.“ Eiginkona Sigurðar Óla er Guðrún Þórbjarnardóttir og eiga þau syn- ina Þórbjörn og Sigurð Óla. Í tilefni afmælisins ætla þau hjónin út úr bænum með börnum, tengdabörnum og barnabörnum og fagna áfang- anum með góðum mat á góðum stað. „Ég hef látið það berast að ef ein- hverjir hugsa fallega til mín á þessum tímamótum þá vil ég gjarnan að Rauði krosinn njóti þess. Nokkrar krónur til að styrkja börnin í Austur- Afríku koma örugglega í góðar þarfir,“ segir Sigurður Óli. aij@mbl.is Sigurður Óli Sigurðsson 70 ára Víkingur og bankamaður Hlutavelta Sólveig Rósa og Sævar Atli Hugabörn bökuðu múffur og seldu nágrönnum sínum í Mosfellsbæ. Þau söfnuðu 4.019 krónum sem renna beint í neyðaraðstoð Rauða krossins í Sómalíu. Flóðogfjara 8. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.34 3,0 9.49 1,2 16.10 3,5 22.30 1,0 6.31 20.22 Ísafjörður 5.47 1,7 11.55 0,7 18.12 2,0 6.30 20.32 Siglufjörður 1.31 0,5 8.13 1,2 13.54 0,6 20.07 1,3 6.13 20.15 Djúpivogur 0.19 1,6 6.33 0,7 13.15 1,9 19.31 0,8 5.59 19.52 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það eru margar spurningar sem brenna þér á vörum en þú þarft að vera þol- inmóð/ur þótt svörin birtist þér ekki taf- arlaust. Hikaðu ekki við að kanna nýja mögu- leika. (20. apríl - 20. maí)  Naut Láttu það ekki koma þér á óvart fáir þú atvinnutilboð sem þú hefur þegar hafnað. Hlustaðu vandlega þegar ástvinir tala og hlustaðu á allt sem þeir hafa fram að færa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Framsæknar hugmyndir kvikna í kollinum á þér og krefjast þess að þú takir af skarið, eigi síðar en strax. Mundu samt að draga þig í hlé og hlaða batteríin. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Láttu þér ekki til hugar koma að grípa til einhverra aðgerða bara til þess að hrekkja aðra. Haltu þig á jörðinni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú vilt sjá hlutina í kringum þig hreyfast og hatar alla kyrrstöðu. Veldu vel þá sem þú vilt umgangast áfram. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú mátt gleðjast yfir þeim hæfileika þínum að eiga auðvelt með að fá aðra á þitt band. Sköpunargáfan magnast í pirrandi að- stæðum eins og þeim sem þú ert í núna. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú þarft að leysa fjárhagslegt vandamál sem upp hefur komið. Vinur vill gera vel og hrinda af stað víðtækum breytingum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Alltaf annað slagið skjóta upp kollinum mál úr fortíðinni sem þarf að takast á við. Hið ófyrirséða er það sem gerir kvöldið í kvöld svo spennandi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Nú reynir verulega á forystuhæfi- leika þína. Einhver fylgist með þér úr fjar- lægð, þú færð tilboð bráðum sem þú ættir að íhuga. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert hugsi þessa dagana og finnst eitthvað vanta í líf þitt. Gerðu þér samt umfram allt far um að vera raunsæ(r). (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ágreiningur um lán leysist. Sann- leikurinn er sagna bestur á heildina litið. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Suma daga er nauðsynlegt að muna að vinnan snýst ekki um peninga eða við- urkenningu heldur það góða sem má gera öðrum. Stjörnuspá 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 0-0 9. 0-0-0 d5 10. exd5 Rxd5 11. Rxc6 bxc6 12. Bd4 e5 13. Bc5 Hb8 14. Rxd5 cxd5 15. Dxd5 Df6 16. Dd2 Be6 17. Bxf8 Bxf8 18. Kb1 e4 19. Dd4 De7 20. b3 Da3 21. fxe4 Bg7 22. e5 Da5 23. Be2 Bxe5 24. De3 Hb4 25. Hd8+ Kg7 26. Hhd1 Staðan kom upp í opnum flokki heimsmeistaramóts 20 ára og yngri sem lauk fyrir skömmu í Chennai á Indlandi. Bandaríski stórmeistarinn Ray Robson (2.560) hafði svart gegn heimamanninum K Priyadharshan (2.376). 26. … Dxa2+! 27. Kc1 hvítur hefði orðið mát eftir 27.Kxa2 Ha4+ 28. Kb1 Ha1#. 27. … Bf4 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.