Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
✝ Kristján Páls-son fæddist í
Reykjavík 23. jan-
úar 1944. Hann lést
1. september 2011
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi.
Foreldrar hans
voru Fríða Krist-
jánsdóttir frá Þórs-
höfn í Færeyjum, f.
5. janúar 1917, d.
12. mars 1998 og Páll Einarsson,
f. 16. ágúst 1917, d. 21. sept-
ember 1984, fæddur í Hafn-
arfirði. Þau skildu. Stjúpfaðir
Kristjáns var Gunnar Guð-
mundsson, f. 1913, d. 1974. Þau
skildu. Systkini Kristjáns, sam-
feðra, eru Guðrún Guðmunda
Pálsdóttir f. 1950, Ingimundur
Pálsson, f. 1952 og Erna Ingi-
björg Pálsdóttir, f. 1955. Upp-
eldisbróðir Kristjáns er Tómas
Gunnarsson, f. 1937.
Fyrri eiginkona Kristjáns var
Kristín Erlendsdóttir, f. 1946.
Þau skildu. Börn þeirra eru Jó-
hanna Fríða Kristjánsdóttir, f.
1962, maki Anders Friberg.
Þeirra börn eru Kristín Petra, f.
1994, og Eva Karen, f. 1999.
Kristjánsson, f. 2. október 1978,
maki Gunnhildur B. Ívarsdóttir.
Þeirra börn eru Elvar Ingi, f.
2002, Ísar Snær, f. 2007 og Erna
Sigríður, f. 2010.
Kristján ólst upp í Reykjavík
en fór ungur að árum í sveit,
fyrst í Kjósina og frá 9 ára aldri
til 13 ára hjá hjónunum Herdísi
Jónsdóttur og Ingólfi Jónssyni
vestur á Hvallátrum í Barða-
strandarsýslu. Síðar fór hann í
heimavistarskólann á Núpi í
Dýrafirði. Kristján lærði til
prentmyndasmiðs í Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann starfaði
í Kassagerðinni í Reykjavík, í
prentsmiðjunni Litrófi og síðar í
prentsmiðju Morgunblaðsins.
Hann lauk meistaranámi í off-
setljósmyndun, offsetskeytingu
og offsetplötugerð. Kristján bjó
með fjölskyldu sinni í nokkur ár
á Akureyri og starfaði sem
prentari hjá Skjaldborg þar til
hann flutti aftur til Reykjavíkur.
Hann starfaði um árabil sem
sölumaður hjá Hans Petersen.
Árið 1999 breytti hann um
starfsvettvang og lauk sveins-
prófi í málaraiðn frá Iðnskól-
anum í Reykjavík árið 2000.
Hann starfaði sem málari til árs-
ins 2008.
Kristján verður jarðsunginn
frá Guðríðarkirkju í Grafarholti
í dag, 8. september 2011, kl. 13.
Kristján Þór Krist-
jánsson, f. 1967,
maki Hrönn Helga-
dóttir. Börn hans
eru Lísa Dögg, f.
1983, dætur hennar
eru Freyja María, f.
2001, Rebekka Sif,
f. 2005, og Sara Liv,
f. 2007. Börn þeirra
eru Kristjana, f.
1992, Kristinn, f.
1995, og Svanberg,
f. 1995. Erlendur Stefán, f. 1970,
maki Ingibjörg María Konráðs-
dóttir. Þeirra dætur eru Diljá
Sif, f. 1999 og Aníta Ýr, f. 2003.
Hinn 2. september 1972 gift-
ist Kristján eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Ernu Sigríði Sig-
ursteinsdóttur, f. 1. desember
1947. Þeirra börn eru Kristín
Kristjánsdóttir, f. 6. júlí 1967,
maki Hákon Hákonarson.
Þeirra börn eru Arnar Snær, f.
1989, Hekla, f. 1994, d. 1996 og
Hera Huld, f. 1997. Fríða Krist-
jánsdóttir, f.17. ágúst 1973,
maki Gunnar Jóhannsson.
Þeirra synir eru Gabríel, f. 2002,
og Jóhann Jökull, f. 2008. Sig-
ursteinn Kristjánsson, f. 28. júní
1977, d. 4. júlí 1977. Sigursteinn
Allt hefur sinn tíma undir sól-
inni bæði gleði og sorg. Á einu
augnabliki breytist lífið og verður
aldrei eins og fyrr. Það er alltaf
erfitt að kveðja, sorgin og sökn-
uður einkenna huga okkar og
hjarta um það sem hefði getað
orðið en verður aldrei. Í dag
kveðjum við sterkan mann, pabba
minn Kristján Pálsson, en hann
lést 1. september sl. eftir erfið
veikindi . Tómarúmið sem verður
til þegar við missum ástvin er
mikið og það er erfitt að sætta sig
við að sá sem hefur alltaf verið
hjá okkur kemur aldrei aftur.
Margs er að minnast og margs er
að sakna, ljúfsárar minningar
leita á hugann. Það eitt veldur
sorg sem áður veitti gleði.
Lífið var honum ekki alltaf
auðvelt og ýmislegt var á hann
lagt sem ekki allir hefðu getað
tekist á við, en eitt af því sem ein-
kenndi hann var þrautseigja og
sjálfsbjargarviðleitnin, það var
ekkert verk sem ekki var hægt að
vinna.
Hann gekk í hvað sem var.
Orðatiltækið „þetta reddast“ var
fundið upp af honum. Hann veigr-
aði sér ekki við neitt hvort sem
það var að setja saman bíla eða
smíða sumarhús. Pabbi var ekki
maður margra orða, en við fjöl-
skyldan þekktum hjartalagið
hans og vissum hvar hugur hans
var. Erfið bernskuár mótuðu
hann og hann var alla tíð hlé-
drægur og dulur um sjálfan sig,
en hann tókst á við hverja þraut-
ina á fætur annarri af æðruleysi.
Síðustu árin voru erfið vegna
veikinda, en aldrei gafst pabbi
upp, baráttuandinn bauð ekki
upp á annað. Það var aðdáunar-
vert hvað hann var alltaf jafn já-
kvæður og tilbúinn til þess að
berjast fyrir lífinu.
Ljúfar minningar streyma
fram um pabba minn, ég sé hann
svo glaðan og skemmtilegan segj-
andi sögur frá því í gamla daga,
skellihlæjandi að vitleysunni í
sjálfum sér. Pabbi var nægjusam-
ur og alltaf afar stoltur af sínu,
fallegra heimili og frábærari fjöl-
skyldu en hann átti enginn.
Elsku pabbi, ég kveð þið með
söknuði, en ég veit að þér líður vel
núna og ert laus við alla þá erf-
iðleika sem á þig herjuðu.
Kristín.
Elsku pabbi minn.
Það er erfitt að kveðja en það
var líka erfiðara en orð fá lýst að
fylgjast með baráttu þinni við
veikindin síðustu mánuði. Nú er
þessari baráttu lokið. Ég á marg-
ar ómetanlegar minningar sem er
gott að rifja upp og ylja sér við
núna. Við á skíðum í Hlíðarfjalli
þegar ég var smástelpa eða í
tjaldútilegum í Vaglaskógi eða
Kjarnaskógi. Við fjölskyldan í
sumarbústaðnum fyrir austan.
Það sem þú elskaðir sumarbú-
staðinn, þinn sælureit.
Öll fjölskyldan saman við mat-
arborðið og þú að segja skemmti-
legar sögur. Þú varst mikill sögu-
maður. Þú hafðir til að bera
marga góða mannkosti, t.d.
varstu alltaf svo sæll og sáttur
með þitt, léttur í skapi og
skemmtilegur. Þú varst svo dríf-
andi og óhræddur við öll verkefni,
ekkert vafðist fyrir þér. Þú varst
mikill húmoristi og reyndir alltaf
að sjá jákvæðu hliðarnar á öllu. Í
veikindum þínum kvartaðir þú
aldrei og í hvert sinn sem lækn-
arnir eða hjúkrunarfólkið spurðu
þig um hvernig þú hefðir það var
svarið alltaf: Bara fínt, hef það
bara gott. Þetta gat gert mig al-
veg brjálaða en svona varst þú.
Fórst í gegnum þetta á hnefan-
um, þú ætlaðir að berjast.
Fjölskyldan var þér allt, þú
varst svo stoltur af okkur börn-
unum, barnabörnunum og henni
mömmu. Ég veit þú hafðir miklar
áhyggjur af því að skilja hana eft-
ir en við munum passa mömmu
vel fyrir þig eins og ég lofaði þér.
Síðasta ár hefur verið okkur öll-
um erfitt en við náðum samt að
eiga margar notalegar stundir
saman. Þessar dýrmætu stundir
geymi ég hjá mér.
Það er svo margt sem mig
langar að segja þér en kem ekki í
orð, ég veit þú skilur mig því við
vorum svo lík að þessu leyti.
Ég trúi því að eitthvað gott
hafi tekið við þér og nú líði þér
vel, frjálsum undan þjáningunni.
Þú munt lifa áfram í hjörtum okk-
ar, elsku pabbi.
Fríða.
Í dag kveðjum við góðan
dreng, Kristján Pálsson. Við
kynntumst Stjána þegar hann
kom í fjölskylduna fyrir rúmlega
fjörutíu árum þegar hann kynnt-
ist Ernu systur. Það mynduðust
fljótt góð kynni sem héldust alla
tíð.
Við áttum saman góðar stundir
hér heima með Ernu, Stjána og
félögum þeirra og það var sér-
staklega gaman að koma við í
sumarbústaðnum hjá þeim sem
var lengi þeirra annað heimili.
Það er margs að minnast frá fjöl-
skylduboðunum og voru þau
hjónin dugleg við að bjóða vinum
og ættingjum heim til sín enda
höfðingjar heim að sækja.
Það var alltaf gott að leita til
Stjána ef á þurfti að halda og
ávallt var hann tilbúinn að rétta
öðrum hjálparhönd. Hann var já-
kvæður og greiðvikinn og leysti
öll vandamálin á sinn rólega hátt.
Hann átti það til að koma með
ýmsa góða hluti með sér og sagði
að það væri örugglega eitthvað
sem við gætum notað. Það
skemmtilega er að sumir þessara
hluta hafa fylgt heimilinu síðan
og oft komið sér vel að hafa þá við
höndina.
Eitt sinn þurftum við nauðsyn-
lega ráðleggingar varðandi boga-
vegg í húsinu okkar en við vissum
ekki hvernig við ættum að ganga
frá honum og þá leituðum við til
Stjána. Hann kom strax og af-
greiddi málið af fagmennsku og
gekk frá öllu þannig að við þyrft-
um ekki að hafa frekari áhyggjur
af því. Þetta gerði Stjáni á sinn
einstaka hátt eins og hans var von
og vísa.
Eftir að Stjáni veiktist þá von-
aði maður að veikindi hans yrðu
ekki svona ströng og erfið eins og
þau reyndust og var Erna allan
tímann við hlið hans og hans stoð
og stytta í veikindunum. Aldrei
kvartaði hann sama hversu veik-
ur hann var og þegar hann var
spurður um hvernig honum liði
svaraði hann alltaf að hann hefði
það bara ágætt.
Þau hjónin eiga mjög sam-
henta fjölskyldu og standa börn
og tengdabörn vel við bakið á
Ernu á þessum erfiðu tímum. Við
sendum þeim öllum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Erla og Haraldur.
Hvað getur maður sagt þegar
faðir, vinur og vinnufélagi fellur
frá? Sú sorg er nánast óbærileg.
Það huggar mig, elsku pabbi
minn, að hafa haldið í hönd þína
þegar þú tókst þinn síðasta anda-
drátt og ég sá hvernig sársaukinn
hvarf úr andliti þínu og ég vona
að þú getir staðið upp og gengið
um stoltur og glaður frá því lífi
sem þú ert að segja skilið við.
Minning um þig á ávallt eftir að
lifa í hjarta mínu og fara frá mér í
börnin mín.
Þinn sonur,
Sigursteinn.
Tengdafaðir minn, Kristján
Pálsson, var að mörgu leyti með
merkilegri mönnum sem ég hef
kynnst. Hann var svo fjölbreyti-
legur. Hann var dulur og hlé-
drægur, en samt svo opinn og
skemmtilegur. Hann flíkaði ekki
hæfileikum sínum, en samt stóð
honum ekkert í vegi.
Ég man það eins og það hefði
gerst í gær þegar við hittumst
fyrst. Strax frá fyrstu stundu var
ég orðinn einn af fjölskyldunni,
en fjölskyldan var það sem hann
Kristján Pálsson
Elsku fallegi Magnús minn.
Það er svo erfitt að byrja að
skrifa þessa grein og þurfa að
hugsa til þess að ég fái aldrei
aftur að sjá fallega brosið þitt
eða fá yndislega faðmlagið þitt
aftur. Þó við höfum ekki náð að
hittast eins oft og ég hefði vilj-
að þá töluðum við alltaf reglu-
lega saman í síma og öll símtöl-
in byrjuðu eins: „Halló elskuleg,
mikið ofboðslega sakna ég þín.“
Mikið ofboðslega á ég eftir að
sakna þess að geta ekki spjallað
við þig um allt og ekki neitt. Þú
varst mér svo ótrúlega mikil-
vægur og ég ætla að vona að þú
vitir hversu mikils virði þú ert
mér og hefur alltaf verið. Það
var alltaf hægt að leita til þín,
þú áttir alltaf svör við flest öllu
og hefur hjálpað mér í gegnum
svo ótal margt. Þú varst alltaf
svo jákvæður og dásamlegur og
skilur eftir þig stórt tóm í hjart-
anu mínu, sem er núna svo möl-
brotið án þín. Ég var alltaf svo
stolt af þér fyrir að láta
draumana þína rætast. Saknaði
þín brjálað þegar þú ákvaðst að
flytja til Flórída og byrja að
vinna þar sem flugmaður, en
var líka svo glöð fyrir þína
hönd. Þegar ég hugsa til baka
um allar minningarnar sem við
áttum get ég ekki annað en
brosað. Seint skal ég ná að
skilja það afhverju þú varst tek-
inn frá okkur svona ungur, en
verð að sama leyti að reyna að
trúa því að lífið okkar sé fyr-
irfram ákveðið og guðirnir sæki
sér þá bestu strax því þeirra
bíður meira og stærra hlutverk
Magnús Róbert
Ríkarðsson Owen
✝ Magnús RóbertRíkarðsson
Owen fæddist 17.
nóvember 1970.
Hann lést í Fort
Lauderdale 31. júlí
2011.
Minningarathöfn
um Magnús fór
fram í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði 12.
ágúst 2011 og á
sama tíma fór jarð-
arför hans fram í Bandaríkj-
unum.
fyrir ofan. Ég kveð
þig með svo mikilli
sorg í hjarta, en
minning þín lifir
áfram í hjartanu
mínu og í drengj-
unum þínum fjór-
um sem eru allir
hver öðrum yndis-
legri, alveg eins og
pabbinn. Elsku
Maggi minn, ég
elska þig og sakna
þín meira en orð fá nokkurn
tíma lýst. Vonandi líður þér vel
þar sem þú ert og ég veit að þú
horfir niður til okkar með vindil
í hönd og fallega brosið þitt.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín systir,
Sylvía Rós.
Elsku hjartans Maggi minn.
Þó það sé liðinn rúmur mán-
uður síðan ég fékk hringinguna
þá trúi ég varla ennþá að þetta
sé raunveruleikinn. Ekki þú,
það er bara einhvern veginn
þannig. Maður býst aldrei við
að svona gerist í sinni fjöl-
skyldu hjá fólki sem er í blóma
lífsins.
Það voru aðeins 5 dagar í að
við næðum að hittast þegar
hringingin kom. Draumaferðin
sem hafði verið plönuð ári áður
og var svo stutt í að yrði að
veruleika. Allir fullir af tilhlökk-
un, bæði þú og við hér heima.
Pabbi að komast út í fyrsta sinn
að sjá barnabörnin og tilhlökk-
unin ólýsanleg. Þú ætlaðir að
koma með fjölskylduna þína
upp í hús til okkar og öfugt. Til
stóð jafnvel hjá þér að koma
sjálfur hjólandi uppeftir á flotta
mótorhjólinu þínu þannig að þú
gætir hjólað með Magna og
Guðna þar sem þeir ætluðu að
leigja hjól. Elsku Maggi minn,
ég veit að þú varst með okkur í
anda þarna úti núna allan tím-
ann og hefur einnig farið með
strákunum í hjólaferðina sem
þeir fóru í en við fjölskyldan
áttum yndislegan tíma með fjöl-
skyldu þinni og vinum þó að-
stæður hefðu mátt vera öðru-
vísi heldur en að kveðja þig í
hinsta sinn.
Þegar ég fyrst byrjaði að
vinna í Reykjavík árið 1998 þá
varstu svo yndislegur að leyfa
mér að búa hjá þér. Þær stund-
ir sem við áttum saman mun ég
geyma í hjarta mínu og mun ég
aldrei gleyma. Ég brosi innra
með mér þegar ég rifja upp
fyrirlesturinn um að „alvöru
karlmenn straujuðu skyrturnar
sínar“ ásamt öllu þínu brosi
sem lífgaði upp tilveruna á
hverjum degi.
Nokkrum mánuðum seinna
fór ég að búa og þú lést draum
þinn rætast, fórst út og lærðir
flug ásamt því að eignast fjöl-
skyldu. Hlutirnir voru ekki
lengi að gerast hjá þér, allt í
einu varstu orðinn flugstjóri og
vannst við það til dánardags.
Mikið ofboðslega er ég stolt af
þér og þú mátt vita það, elsku
Maggi minn, að þær heimsókn-
ir sem þú komst í til okkar á
leið þinni yfir hafið voru og eru
mjög dýrmætar hjá okkur fjöl-
skyldunni. Fyrir okkur voru
þetta jólin því brosið færðist yf-
ir andlitið á öllum um leið og þú
lést vita að von væri á þér. Við
fórum á fullt að undirbúa jóla-
veislu, alveg sama á hvaða árs-
tíma þú komst því mamma og
pabbi vildu alltaf hafa uppá-
haldsmatinn þinn á borðum
ásamt harðfiski, íslensku
nammi og fleira í þeim dúr.
Ekki má gleyma vöfflunum en
þú vildir alltaf fá þær helst
brenndar og mamma sá til þess
að hafa nokkrar þannig spes
fyrir þig og pabba. Þessar
heimsóknir og minningar mun-
um við eiga í hjörtum okkar.
Mikið ofboðslega sakna ég
þín sárt. Ég þakka þér fyrir
þær frábæru samverustundir
sem við áttum saman og lifi á
yndislegum minningum sem þú
gafst okkur. Ég mun gera allt
sem ég get til að hlúa að
drengjunum þínum og fjöl-
skyldu. Þeir eru bara yndisleg-
astir og missir þeirra mikill.
Hvíl í friði, elsku hjartans
Maggi minn.
Þín systir,
Guðrún Sólveig.
Elsku Maggi, þín verður sárt
saknað, elsku frændi. Þú ert
alltaf ennþá innst inni í hjart-
anu mínu. Ég vildi að ég gæti
komið til þín núna og sagt þér
hversu mikið ég elska þig og
sakna þín. Þú komst bara til Ís-
lands þegar þú heyrðir að ég
væri að fæðast og ég skoða
reglulega myndina af okkur
þegar ég var sjö daga gömul.
Ég man ennþá röddina þína
sem sagði við mig: „Hvernig
hefurðu það, elskuleg?“ og þeg-
ar þú komst í heimsókn í nóv-
ember 2007 og ég var að kenna
þér að nýmjólk væri bláa
mjólkin og gula léttmjólkin en
auðvitað hlógu allir að mér, þú
sagðist alveg hafa vitað það af
því þú hefðir búið á Íslandi, og
þú með þitt fallega bros, og
mér leið alveg eins og kjána.
Svo líka þegar þú komst 2010
og þú leyfðir mér að koma og
skoða flugvélina og leyfðir mér
að gera hana klára til brott-
farar, ég var alltaf að tala um
það hvað það var gaman. Ég
gleymi aldrei öllum góðu stund-
unum sem við áttum saman. Þú
munt alltaf eiga stórt pláss í
hjartanu mínu og ég veit að þú
ert alltaf hérna hjá mér og allri
fjölskyldunni þinni. Ég elska
þig.
Þín frænka,
Magnea Dís.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
EYÞÓR GUÐMUNDSSON
frá Hrafnabjörgum,
Furuvöllum 6,
Egilsstöðum,
sem lést föstudaginn 2. september, verður
jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 10. september
kl. 14.00.
Kristjana Valgeirsdóttir,
Herborg Eydís Eyþórsdóttir, Magnús Jónsson,
Guðmundur Heiðar Eyþórsson, Svana Magnúsdóttir,
Valgeir Sveinn Eyþórsson,
Brynjar Þorri, Arnór Snær og Eyþór Magnússynir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang-
afi og langalangafi,
GUNNÞÓR RAGNAR KRISTJÁNSSON,
áður til heimilis í Skarðshlíð 29,
sem lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnu-
daginn 4. september, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 9. september
kl. 13.30.
Jakobína Þórey Gunnþórsdóttir,
Kristján Gunnþórsson, Jónína S. Helgadóttir,
Þóroddur Gunnþórsson, Lilja Marinósdóttir,
Sveinmar Gunnþórsson, Kristín Pálsdóttir,
Eyþór Gunnþórsson, Soffía Valdemarsdóttir,
Jóhanna Gunnþórsdóttir, Brynjólfur Lárentsíusson,
Ragnar Gunnþórsson,
Haraldur Gunnþórsson, Hallfríður Hauksdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.