Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 ✝ Ágúst EinarBirgir Björns- son fæddist 22.2. 1935 á Sjónarhóli í Hafnarfirði. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 2. sept- ember 2011. Foreldrar hans voru; Guðbjörg Jónsdóttir, f. 20.10. 1894, d. 21.11. 1993, og Björn Ei- ríksson, f. 9.9. 1894, d. 7.5. 1983, Sjónarhóli í Hafnarfirði. Systk- ini Birgis voru fimm: Bjarni Vestmar Björnsson, f. 14.11. 1925, d. 27.12. 1986, Bára Björnsdóttir, f. 16.5. 1927, d. 9.5. 2006, Bragi Vestmar Björnsson, f, 18.6. 1929; Jón Boði Björns- son, f. 4.12. 1931, og Guðlaug Berglind, f. 21.2. 1937. Hinn 18.4. 1959 kvæntist Birgir Ernu Finnu Ingu Magn- úsdóttur, f. 10.3. 1939. For- eldrar Ingu voru Laufey Jak- obsdóttir, f. 25.9. 1915, d. 2004, og Magnús Björgvin Finn- bogason, f. 21.7. 1911, d. 1993, Grjótagötu í Reykjavík. Börn þeirra Birgis og Ingu eru 1) Magnús, f. 21.7. 1959, kvæntur Ingibjörgu Guðmundsdóttur, synir þeirra eru Pétur og Birgir Björn, fyrir á Magnús soninn Sindra. 2) Sólveig, f. 29.12. 1961, gift Finnboga Kristinssyni, son- ur þeirra er Jóhann Júlíus. Fyr- leikmaður og fyrirliði 2. flokks karla í FH sem vann fyrsta Ís- landsmeistaratitil félagsins í handknattleik 1954. Síðan hefur Birgir unnið marga titla með meistaraflokki, sem var flagg- skip FH til margra ára. Hann lék 500 meistaraflokksleiki með FH á 20 ára ferli sínum og var fyrirliði allan tímann. Einnig þjálfaði hann liðið í mörg ár. Hann varð 27 sinnum Íslands- meistari með FH. Birgir lék 29 landsleiki fyrir Ísland, var m.a. fyrirliði landsliðsins er Ísland tók í fyrsta sinn þátt í heims- meistarakeppni í handbolta 1958. Birgir var einnig þjálfari landsliðsins um tíma og átti sæti í landsliðsnefnd HSÍ. KA á Akureyri réði hann til sín til þjálfunarstarfa 1978 og kom hann liðinu í efstu deild, einnig þjálfaði hann Þórsara með góðum árangri. Hann kom svo aftur til Hafnarfjarðar 1989 þegar hann var ráðinn til að veita íþróttahúsinu í Kapla- krika forstöðu. Birgir var einn af stofn- endum Golfklúbbsins Keilis og var m.a. formaður klúbbsins í tvö ár. Birgir fékk margar við- urkenningar fyrir störf sín í þágu íþróttanna, m.a. er hann heiðursfélagi í FH, fékk gull- merki HSÍ, Keilis, ÍBH, KA og heiðurskross ÍSÍ. Birgir verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði dag, 8. september 2011, og hefst athöfnin kl. 15. ir á Sólveig soninn Finn Hansson, bú- settan í Færeyjum, kvæntan Guðrunu Joensen og eiga þau 3 börn, Aron Hans, Emmu og Lilju, fyrir á Finnur dótturina Natösju. 3) Laufey, f. 25.9. 1966, gift Björgvini Óskarssyni, börn þeirra eru Ágúst Elí og Inga María. Birgir var vélfræðingur að mennt. Hann starfaði m.a. hjá Vélsmiðjunni Kletti, rak Bíla- leiguna hf. og verslunina Hjólið í nokkur ár. Síðan starfaði hann hjá Loftleiðum á Keflavík- urflugvelli, Steypustöð Breið- holts og Slippstöðinni á Ak- ureyri. Birgir varð forstöðumaður íþróttahúss FH í Kaplakrika 1989 og starfaði þar til 67 ára aldurs. Þá fór hann til Englands og lærði kylfusmíði hjá Golfsmith og starfaði við það sér til ánægju. Birgir var virkur þátttakandi í starfi Sjálf- stæðiflokksins á sínum yngri ár- um og var meðal annars formað- ur Stefnis – félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Birgir er þekktastur fyrir þátttöku sína í íþróttum, hann byrjaði ungur að æfa fimleika með FH og sneri sér síðar alfar- ið að handboltanum. Hann var Einn sólríkan maídag óku ný- bakaðir foreldrar með son sinn frá fæðingardeild Landspítala að Fæðingarheimilinu við Eiríks- götu. Þar sást dökkhærður mað- ur sitja á steingirðingu fyrir framan húsið og var greinilega að bíða eftir einhverju. Þar var kom- inn Birgir Björnsson úr Hafnar- firði sem hafði beðið dagpart fyr- ir framan Fæðingarheimilið eftir fréttum af fæðingu barnabarns síns. Hann kíkti á nýfædda drenginn, dásamaði hann, sá Sjónarhólssvipnum bregða fyrir og fullvissaði sig um að allt væri í góðu lagi áður en hann sneri aft- ur heim í Fjörðinn til Ingu ömmu. Birgir reyndist drengnum og öllum barnabörnum sínum góður afi og innrætti þeim þau gildi sem hann stóð sjálfur fyrir. Hann fylgdist grannt með hvað væri að gerast í lífi barnanna og var alltaf tilbúinn ef þau þörfnuðust hans. Hann var góður félagi krakk- anna, æfði og spilaði golf með þeim, bauð þeim með á hand- bolta- og fótboltaleiki, lagaði golfkylfur, hjól og annað sem þurfti að laga. Hann hlustaði stoltur á þau flytja tónlist, var óþreytandi við að fylgjast með kappleikjum, mótum og æfing- um, sama hvar og í hverju þau voru að æfa og keppa. Hann hrósaði þeim fyrir það sem vel var gert og leiðbeindi um það sem betur mátti fara. Skildi bet- ur en nokkur annar óþrjótandi kraftinn og íþróttaáhugann og þegar keppnisskapið verður stærra en barnið sem ber það. Þá miðlaði afi af reynslu sinni og þekkingu þar til allt leit betur út og þjálfaði þau í að standa keik undir áskorunum og sigrum í líf- inu. Hann kenndi afkomendum sínum hugrekki og æðruleysi, að undirbúa sig undir þau verkefni sem væru framundan og leysa þau síðan af hendi eins vel og hægt væri. Það gerði hann sjálfur allt til enda og kvaddi lífið í faðmi fjölskyldunnar á jafn fallegan og eðlilegan hátt og lífið sjálft hefst. Ég kveð Birgi Björnsson með virðingu og þakka alla hlýjuna og velvildina í gegnum tíðina. Sam- verustundanna er sárt saknað og að hann birtist ekki lengur og segi: „Ég er að athuga hvort það sé ekki allt í lagi með ykkur og strákana. Hvað eru strákarnir eru að gera núna?“ Ingibjörg Guðmundsdóttir tengdadóttir. Átta ára stelpa hleypur á harðaspretti heim, hrindir upp útihurðinni, brunar inn ganginn, sest og lítur fram eftir ganginum inn í eldhúsið sem er við hinn enda gangsins. Við eldhúsborðið situr maður, sem stelpan hafði aldrei séð nema á mynd, skelli- hlæjandi. Baðhurðinni er lokað frekar vandræðalega og ekki laust við að litla stelpan felli nokkur tár. Svona hafði hún ekki ætlað sinn fyrsta fund með þess- um fræga handboltakappa sem systir hennar sagði vera kærast- ann sinn. Fáum mánuðum síðar fékk stelpan stórt leyndarmál í afmælisgjöf, Inga systir ætlaði að trúlofast fræga handbolta- kappanum á afmælisdegi litlu systur og þann dag var ekki brunað inn ganginn heldur svif- ið. Birgir var ekki hávaxinn en í mínum huga er hann einn af þeim stærstu, hjarthlýtt hörku- tól, barngóður, mikill fjölskyldu- maður sem ekki bara hugaði að sínum nánustu heldur var öll stórfjölskyldan undir hans verndarvæng. Birgir var keppn- is- og skapmaður mikill. Hann sat oft í þungum þönkum og var þá örugglega að hugsa um leik- kerfi og hvernig leggja skyldi upp næsta leik svo sigur ynnist. Ekki var árennilegt að trufla hann á þeirri stundu og lærðist fljótt að kíkja í dyragættina og athuga stöðuna áður en lengra var haldið. Birgir var mín fyrirmynd. Ég vildi spila með FH eins og hann og hefur handboltinn síðan verið stór þáttur í lífi mínu. Það var hrein unun að sitja með Birgi, skoða gamlar handboltamyndir og hlusta á frásagnir hans. Hann hafði ótrúlegt minni, mundi úr- slit allra leikja, hvar og hvenær þeir voru spilaðir, hverjir voru í liðinu og hverjir skoruðu mörk- in. Birgir var hafsjór af ómet- anlegum fróðleik. Því miður náð- um við ekki að klára verkefni sem við byrjuðum á en vonandi nær hann að senda svör við fá- einum spurningum þaðan sem hann er nú. Birgir var fyrirliði landsliðsins sem tók þátt í HM í handbolta í Magdeburg 1958 og þegar HM var haldið í Þýska- landi 2007 ákváðu þau Inga að koma með og upplifa stemn- inguna. Þetta var einskonar píla- grímsferð fyrir Birgi. Þarna hitti hann gamla samherja og vini úr boltanum. Það voru forréttindi að fá að vera með þeim hjónum, verða vitni að þeim miklu tilfinn- ingum og þeirri gleði sem braust út hjá Birgi þegar bestu hand- boltalið heims áttust við á leik- vellinum og hallirnar voru bók- staflega að rifna af fagnaðar- látum. Keppnismaður og þjálfari var Birgir til æviloka. Hann gaf ekk- ert eftir þegar síðasti mótherj- inn tók sér bólfestu í líkama hans. Birgir barðist af miklu æðruleysi, lagði upp sóknarað- gerðir fyrir liðið sitt. Hann vissi að besta liðið átti hann heima, Ingu, börnin og barnabörnin sem gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að vinna leikinn. En þessi mótherji reyndist sterkari á endasprettinum og Birgir kvaddi allt of snemma. Á kveðju- stund er söknuðurinn sár en við erum þakklát fyrir alla hans væntumþykju og umhyggju- semi. Elsku Inga, Magnús, Sólveig, Laufey og fjölskyldur, hugheilar samúðarkveðjur frá fjölskyld- unni á Blómvanginum. Ykkar missir er mikill en þið eruð rík af minningum um góðan dreng Blessuð sé minning Bigga Björns. Helga. Hann var ekki hár í loftinu drengurinn sem var sendur með merkimiða um hálsinn í sveit að Fossi á Síðu rétt eftir stríð. Lífið á Fossi á Síðu mundi eflaust telj- ast frumstætt í dag en þar þroskaðist Birgir næstu sumrin og undi hag sínum vel við sveita- störfin og ádráttinn og þá oft í vaðmálinu einu fata. Það er mín trú að þar hafi líf hans mótast og þroskast til frambúðar Við Birgir og fjölskyldur okk- ar vorum alin upp sem frænd- systkini. en fyrri maður móður minnar Bjarni Eiríksson, hafði verið einn af Sjónarhólsbræðr- unum en hann fórst með togar- anum Róbertsson í Halaveðrinu mikla 1925 og þau áttu saman eina dóttur, Guðrúnu Bjarna- dóttur. Birgir bjó hjá foreldrum mín- um á Hverfisgötu 53 einn vetur er móðir hans varð veik. Það var alltaf mikið líf í kringum Birgi. Hann var hraustur að eðlisfari og glaðvær og jákvæður ungur drengur. Við fermdumst saman í Frí- kirkjunni sumardaginn fyrsta 1949, en trúin var alla tíð hluti af lífi Birgis. Það má segja að dag- legt samband okkar hafi byrjað upp úr því en þá hófum við að æfa handbolta saman hjá Hall- steini og vorum í sama skólan- um. Birgir var líka ágætur leik- fimismaður eins og fleiri af bræðrum hans. Það var heldur ekki nein ládeyða í sundlauginni þegar Birgir var þar að busla. Hann hóf nám í vélvirkjun í Vélsmiðju Hafnarfjarðar um 1951 og var faðir minn Magnús Kristófersson meistari hans. Ég vann einnig í Vélsmiðjunni á þeim tímum er ég var ekki í skóla, svo það má segja að líf okkar hefi víða skarast. Seinna lauk hann námi úr Vélskólanum Birgir var að eðlisfari metn- aðarfullur maður og gæddur leiðtogahæfileikum og var ávallt fyrirliði FH-liðsins öll þau ár sem við vorum saman í handbolt- anum er náði yfir 20 ára tímabil. Fyrir utan hefðbundna leiki með FH lékum við Evrópuleiki sam- an og í fyrstu Heimsmeistara- keppninni í handknattleik er Ís- land tók þátt, sem haldið var í Austur-Þýskalandi. Birgir var þjálfari hjá FH auk ýmissa fé- laga utan FH að ógleymdu landsliðinu. Það varð eflaust hans mesta gæfuspor er hann tók að sér þjálfun kvennaliðsins á Akranesi en þar hitti hann verðandi konu sína, Ingu Magnúsdóttur. Allir þeir sem kynnst hafa Ingu gera sér fljótt grein fyrir hvílíkt gæfuspor það var í lífi Birgis að eignast konu eins og Ingu. Hún tók ávallt fullan þátt í áhugamál- um Birgis og þau voru síðar sam- an í golfinu og var þar eins og ávallt í lífi hans, hans stoð og stytta, sem oft gat verið ærið starf í viðburðaríku lífi Birgis. Guð gaf okkur góðan dreng, þar sem Birgir var annars vegar, en Guð gefur og Guð tekur, en því lögmáli verðum við að hlíta. Sárin verða oft djúp á kveðju- stund. Ég sendi Ingu og fjöl- skyldu hans og systkinum mínar innilegustu samúðarkveðjur og megi Guð blessa ykkur öll um ókomna tíð. Kristófer. Þá er fallinn í valinn yfir- meistari okkar FH-inga. Þetta er orðatiltæki okkar FH-inga í gegnum áratugi. Þetta þýddi einfaldlega að við mfl.-leikmenn heilsuðumst þannig og sættum okkur aldrei við annað en að verða meistarar. Þegar ég var 8 ára gamall þá fór ég oft sendiferðir með skrif- uð á miða einhver skilaboð frá föður mínum sem þá var þjálfari allra flokka í FH og einmitt oft- ast til fyrirliðans Birgis Björns- sonar á Reykjavíkurvegi 1, Því framundan var leikur í Háloga- landi í Reykjavík. Þannig kynnt- ist ég öllum þessum gullaldar- mönnum FH í handbolta og fékk svo að fara með þeim á leiki. Þetta voru ógleymanleg ár fyrir ungan dreng og lofaði ég mér hátt og í hljóði að verða betri en þeir. Oft var gestkvæmt á heimili pabba og mömmu á Tjarnar- brautinni og þá voru þessir drengir næstum daglega mættir og var maður eins og fluga á vegg og gleypti í sig allt sem þeir sögðu. Þetta var eins og félags- heimili í þá daga. Árin liðu og ég orðinn 16 ára gamall og fæ ég tækifæri hjá Birgi og pabba sem voru þá þjálfarar mfl. karla og á ég þeim allt mitt að þakka. Birgir hélt miklum aga á hópnum og var metnaðarfullur og vildi að menn legðu sig 100% fram á æfingum og í leikjum. Stundum vorum við ekki alltaf sammála um hvernig ætti að gera hlutina og kom fyrir að ég spurði Birgi hvort við gæt- um ekki gert þetta öðruvísi, og eftir að hann hlustaði á þennan gutta sagði hann einfaldlega við gerum þetta svona og ekki orð um það meira. Við hlýddum. Seinna á lífsleiðinni unnum við Birgir saman í íþróttahúsi Kaplakrika og urðum miklir vin- ir. Birgir lagði allt í það að FH eignaðist alvöru íþróttahús og útiaðstöðu og fylgdi byggingar- framkvæmdum eftir sem for- stöðumaður. Hann var sanngjarn og vel lið- inn af öllum og ekki hvað síst yngri flokkunum hjá FH. Ógleymanlegar stundir áttum við leikmenn hjá Bigga og Ingu á Reykjarvíkurveginum hvort sem það var á Sjónarhóli eða neðar í götunni. Alltaf voru þau til staðar fyrir okkur og félagið og læt ég aðra félaga mína skrifa um það í minningargrein um Birgi. Ingu, börnum og fjölskyldu vil ég og fjölskylda mín votta okkar dýpstu samúð og við FH-ingar gleymum aldrei Birgi Björns- syni og hans framlagi. Geir Hallsteinsson og fjölskylda. Það er farið að hausta. Tíminn flýgur og vinirnir eld- ast og hverfa. Okkar kæri og tryggi vinur Birgir er lagður af stað í sína hinstu ferð. Hann veiktist snemma vors og allir vonuðu að hann þessi sterki, vel þjálfaði og duglegi maður næði sér, en vá- gesturinn gaf ekki langt hlé. Birgir lést heima í faðmi sinnar yndislegu eiginkonu Ingu Magn- úsdóttur og barna þeirra, Magn- úsar, Laufeyjar og Sólveigar, sem voru foreldrum sínum alla tíð mikill styrkur. Birgir var hægur maður í dag- legri umgengni, en fastur fyrir ef á þurfti að halda. Við vorum svo lánsöm að eign- ast þau hjón og þeirra börn sem vini og var það mikil blessun, þau hafa staðið við hlið okkar í blíðu og stríðu og ekki hægt að tíunda allt það sem þau hafa gert fyrir okkar, alltaf tilbúin, ef á þurfti að halda. Við höfum notið samvista við Ingu og Birgi í mörgum ferðum bæði innan- lands og utan, farið saman í margar keppnisferðir með landsliði eldri kvenna í golfi svo og í heimsóknir til félaga okkar í Þýzkalandi, og aldrei hefur borið skugga á okkar vináttu. Við stöndum í mikilli þakkar- skuld við þennan elskulega vin okkar, sem genginn er, svo og alla hans fjölskyldu, þau voru alltaf reiðubúin að aðstoða okkur og rétta hjálparhönd. Lítil vísa til þeirra hjóna varð til í okkar síðustu golfferð. Til Ingu og Birgis: Hún ber sáttarhug til manna hennar góðu verk það sanna. Hann er vinur vina sinna vart er tryggari dreng að finna. Við þökkum vini okkar fyrir alla hjálpsemi og vináttu og sendum Ingu og allri fjölskyld- unni okkar einlægustu samúðar- kveðjur. Lucinda og Eiður Ágúst. Vinur. Ég get ei fundið orð við hugans hæfi; Ó, hvíta blað, á þig ég vildi skrifa svo margt og margt um eyðslu vorrar æfi sem oss er gefin samt til að lifa. Svo yrkir Einar Ben. til vinar síns Hannesar Hafstein, hann vantar orð, en var samt jöfur ís- lenskrar tungu. Þegar við fé- lagarnir setjumst niður til að skrifa nokkur orð um góðan dreng og frábæran félaga Birgi Björnsson er okkur orðavant. Samstarf okkar og Birgis nær yfir áratugi og starf hans í FH verður aldrei fullþakkað. Ferill hans í handknattleik er einstak- ur. Hann vann fleiri titla en nokkur annar sem leikmaður og þjálfari. Hann lék yfir 500 leiki með meistaraflokki í handknatt- leik, afrek sem enginn hafði unn- ið. Birgir var mikill félagsmála- maður og sat í ýmsum stjórnum og nefndum fyrir FH. Við fé- lagarnir unnum saman á mörg- um sviðum, en helsta áhugamál- ið hin seinni ár var uppbygging félagsins þannig að það gæti staðið undir þeim væntingum og markmiðum að sinna æsku Hafnarfjarðar. Foreldrar Birgis þau Guð- björg og Björn Eiríksson arf- leiddu Fimleikafélag Hafnar- fjarðar að húsi sínu Sjónarhóli, höfðingleg gjöf, sem sýndi hug þeirra til félagsins. Í nýjum húsakynnum FH er að finna glæsilega félagsaðstöðu Sjónar- hól, sem vígð var 13. desember 2010 á brúðkaupsafmæli Sjónar- hólshjónanna og með þeirri at- höfn voru ýtrustu óskir þær er fram komu í gjafabréfinu upp- fylltar. Það voru stoltir FHingar sem fögnuðu þennan dag með fjölskyldunni frá Sjónarhóli. Eitt mesta gæfuspor Birgis steig hann þegar hann kvæntist eft- irlifandi konu sinni Ingu Magn- úsdóttur. Þau hjónin hafa verið einstak- lega samtaka á lífsleiðinni og átt miklu barnaláni að fagna og hafa börn þeirra og barnabörn skipað sér í hóp farsælla íþróttamanna. Við félagarnir sjáum nú á eftir frábærum vini sem við höfum unnið með í starfi félagsins okk- ar. Við og eiginkonur okkar sendum Ingu og allri fjölskyld- unni innilegustu samúðarkveðj- ur. Fimleikafélag Hafnarfjarðar kveður í dag einn af sínum glæstustu sonum, en minningin um Birgi Björnsson mun lifa um ókomin ár. Bergþór Jónsson, Ingvar Viktorsson. Birgir Björnsson lagði upp í sína hinstu ferð frá heimili sínu. Heima vildi hann kveðja um- vafinn ást fjölskyldu sinnar. „Þar sem hjarta mitt er, þar er heimili mitt.“ Á heimili Birgis og Ingu ríkir sannarlega hjartahlýja, gest- risni og fágæt rausn. Inga hin umhyggjusama hús- móðir sér um að veita gestum og gangandi viðurgjörning eins og allir væru að koma svangir af fjöllum, eða völlum. Þar á bæ hefur orðið velkomin sérstaka merkingu. Unglingarnir þeirra vita hversu velkomnir þeir eru, tekið er á móti þeim eins og öðrum með hlýju faðmlagi. Birgir spurði þau frétta af því sem þau höfðu fyrir stafni, hlust- aði og ræddi við þau um hugð- arefni þeirra. Afkomendur þeirra Birgis og Ingu bera ekki einungis svip þeirra og hjartalag, einnig hæfi- leika þeirra og glæsileika. Það voru ekki bara börnin, barnabörnin og barnabarna- börnin sem honum var umhugað um, hann sinnti líka vandalaus- um unglingum sem þurftu stuðn- ing og hann vitjaði vina, ekki síst þeirra sem veikir voru eða þurftu á hjálp að halda. Hann var sannur vinur og góður félagi. Það, að fá að vera með fjöl- skyldunni þessa síðustu daga, sannfærir okkur um að æðru- leysi og ást er það sem máli skiptir. Birgir Björnsson er fallinn frá eftir hetjulega baráttu þar sem hvergi var gefið eftir til síðustu stundar. Allt var á hreinu eins og venjulega hjá honum. Við varðveitum minningu um góðan mann, sem við kveðjum með virðingu og þakklæti . Elsku Ingu og fjölskyldu, systkinum Birgis og þeirra fólki, sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Edda Magnúsdóttir og fjölskylda. Birgir Björnsson  Fleiri minningargreinar um BIrgi Björnsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.