Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.09.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Evrópskir kvenfrumkvöðlar í Hörpunni Tveggja daga ráðstefna evrópskra hugvitskvenna um nýsköpun, EUWINN 2011, var sett í gær. Samtök frumkvöðlakvenna hér á landi standa fyrir ráðstefnunni sem er í Hörpu. EUWINN 2011 er fjölmennasta samkoma frumkvöðlakvenna Evrópu í ár. Hún er haldin á tveggja ára fresti og lýkur í kvöld með því að veittar eru viðurkenningar þeim konum sem þykja hafa skarað fram úr. Bola Olabasi er breskur lögfræð- ingur og frumkvöðull sem stofnaði alþjóðanet frumkvöðlakvenna, Glo- bal Women Inventors & Innovators Network (GWIIN) árið 1998 í kjöl- far þess að hafa komið á árlegri at- höfn þar sem veitt eru verðlaun til uppfinningakvenna í Bretlandi. Hún stofnaði svo tengslanet evrópskra frumkvöðlakvenna, European Wo- men Inventors & Innovators Net- work (EUWIIN) árið 2006. Olabasi segir aðspurð að það hafi verið greinileg þörf fyrir tengslanet sem þessi. Mikið hafi vantað upp á viðurkenningu á sköpunarverkum og uppfinningum kvenna. „Okkur vantar fleiri fyrirmyndir. Fleiri leiðtoga,“ segir Olabasi. Aukin þekking byggð upp Um árangur af starfinu segir hún að það sé mikilvægt náðst hafi að byggja upp aukna þekkingu í sam- skiptum kvennanna. Þær læri mikið hver af annarri. Fleiri vörur hafi komist á markað sem ella hefðu ekki náð þangað. Enn sé þó langt í land. Olabasi segist gjarnan vilja sjá hærri prósentutölur en vettvang- urinn sé mikilvægur fyrir konur í frumkvöðlastarfi. Olabasi segist ekki viss um að það sér raunverulegur munur á þeim áskorunum sem blasi við kynjunum þegar kemur að uppfinninga- og frumkvöðlastarfi. Konur séu að ná karlmönnum þó þær þurfi oft að leggja helmingi harðar að sér. Með því að skapa samstarfsvett- vang sé hægt að vinna að því að brjóta niður þessar hindranir með aukinni þekkingu. Margir þröskuldar á leiðinni Þegar rætt er um þær hindranir sem blasi helst við konum í frum- kvöðlastarfi nefnir Olabasi aðgang að áhættufjármagni sem geti gert konum kleift að vinna á stærri skala. Einnig þurfi að tryggja aðgang að menntun við hæfi. Ekki það að kon- ur séu ekki vel menntaðar heldur þurfi þær einnig að fá menntun við hæfi þegar kemur að frumkvöðla- starfinu. Vita hvar þær fái viðeig- andi upplýsingar og hvernig þær geti nýtt þær til framþróunar. Einn- ig komi inn í ótal aðrir þættir á við vöruþróun ofl. Olabasi leggur áherslu á að frum- kvöðlar þurfi að kynna sér betur hvað felist í vernd hugverkaréttinda og hvernig hægt sé að fá tekjur af þeim. Tölur sýni að tiltölulega lágt hlutfall kvenna fái einkaleyfi á upp- finningum sínum og þetta sé eitt- hvað sem framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins sé meðvituð um. Liður í því að auka hlut kvenna sé að koma með þetta framtak til Íslands. sigrunrosa@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Brautryðjandi Bola Olabisi er stofnandi EUWINN, samtaka evrópskra kvenfrumkvöðla og GWIIN alþjóðanets kvenfrumkvöðla. Mikilvægt að nýta hugverkaréttindi Guðrún Sæmundsdóttir, uppfinn- ingakona hjá Auris ehf., er með einkaleyfi á aðferðafræði sem hún fann upp, þar sem jurtir eru nýttar gegn eyrnabólgu. Dóttir hennar var búin að vera mikið á sýklalyfjum og það átti að fara að setja rör í eyrun á henni. Hún prófaði sig áfram með jurtir og endaði með að nota þær með þessum hætti. Það hafði aldrei ver- ið gert áður. Guðrún segist nota virk efni úr jurtum sem hefur sann- ast í gegnum aldirnar að hafi virkni gegn vírusum og bakteríum. Hún hafi byrjað á jurtum eins og basí- liku, kamillu og lavenderolíu. „Við gerðum og höfum einkaleyfi á þessu tæki sem komið er fyrir í eyr- unum. Það er útgufunin í efnunum sem fer í gegnum hljóðhimnuna. Hún er bólgueyðandi og nær að drepa bakteríurnar.“ Tilbúið til framleiðslu Guðrún segir þróunarstarf kom- ið vel á veg. Náttúrulega leiðin sé fullkláruð og í raun allt klárt til að hefja framleiðslu á töppum með náttúrulega efninu. Einnig sé búið að einangra virku efnin úr nátt- úruefnunum og lyfjafræðileg þróun komin vel á veg. Búið er að fá einkaleyfi á hugmyndinni í öllum löndum ESB, Kanada, Japan og fleiri löndum. Auris standi frammi fyrir nokkrum valkostum þegar kemur að því að velja næstu skref. Annað hvort að halda áfram og hefja strax framleiðslu fyrir nátt- úrlega markaðinn eða þróa áfram fyrir lyfjamarkaðinn, eða nýta jafn- vel báða valkostina. Hvað fjár- mögnun varðar segir Guðrún að sýna þurfi fram á árangur til að fá hana og sanna að varan virki. Það sé bara eðlilegt. sigrunrosa@mbl.is Nýtir jurtir gegn eyrnabólgu Morgunblaðið/Kristinn Frumkvöðull Guðrún Sæmundsdóttir fann upp aðferð sem vinnur á eyrna- bólgu, þegar hún reyndi að forða dóttur sinni frá rörum í eyrun. Hin finnska Eija Pessinen er einn gestafyrirlesara á ráðstefnunni. Pessinen sem er ljósmóðir og hug- vitskona fékk gullverðlaun EUWI- IN árið 2009 fyrir uppfinningu sína, Relaxbirth, sem er fæðingarstóll. Hugmynd Pessinen að fæðing- arstólnum fæddist þegar hún var að ljúka ljósmóðurnámi um 1983. Með því að nota fæðingarstólinn við fæð- ingu geti konur nýtt líkamann betur á rembingstímabilinu og dregið verulega úr hættu á því að rifna. Pessinen minnist þess að hafa þá strax velt því fyrir sér af hverju kon- ur eyddu svo miklum tíma í rúminu þegar þær væru að fæða. Þegar hún var síðar að störfum í Níkaragúa þá sá hún hvernig ómenntaðar konur til sveita aðstoðuðu við fæðinguna. Þær fengu konurnar til að slaka á meðan á útvíkkun stóð og til að nýta líkam- ann sem best þegar kom að remb- ingsstiginu og fæðingunni sjálfri. Pessinen segir ellefu ár hafa liðið þar til hún fór aftur að taka á móti börnum. „Þegar ég kom aftur til starfa sem ljósmóðir fór ég að hugsa um af hverju þyrfti að fara svona að við fæðingu, þar sem það tók lengri tíma, konurnar rifnuðu meira og það var meira álag á barnið. Þetta var líka álag á ljósmóðurina.“ Pessinen segir að þessu hafi hún viljað breyta, þó hún vissi ekki strax hvernig. Þar hafi svo margir sam- verkandi þættir hjálpað henni. Tungumálakunnátta frá því hún var við hjúkrunarstörf í Níkaragúa, Þýskalandi og Sviss og svo við- skiptamenntun. Hugmyndina skráði hún svo hjá finnsku einkaleyfastof- unni. Erfiðast hafi verið að vinna að hugmyndinni samhliða vinnu en það hafi orðið auðveldara þegar hún fékk styrk til verksins. sigrunrosa@mbl.is Stóll til að auðvelda fæðingu Morgunblaðið/Kristinn Nýjung Eija Pessinen hefur hannað fæðingarstól sem er notaður í Finnlandi og Svíþjóð. Hún segir konur farnar að biðja um stólinn þegar þær fæða. Guðrún Laukka hlaut silfurverðlaun EUW- INN árið 2009 en hún fann upp gifstappa til viðgerðar á götum á veggjum, hvort sem veggurinn er úr gifsi, steini eða spón. Guð- rún er komin með dreifingaraðila í Finn- landi sem mun sjá um að koma vörunni um allan heim. „Ég á náttúrulega einkaleyfið en ég er búin að vera í þessu síðan 2006. Svo gerist það 2011 að til mín kemur dreifing- araðili og biður um að fá söluréttinn fyrir allan heiminn. Ég ákvað að taka því,“ segir Guðrún. Meðal annars vegna þess hve mark- aðsþátturinn hafi skipt miklu máli. „Það er bara takmarkað hvað ein manneskja getur gert. Ég hef engan fjárfesti á bak við mig.“ Alltaf átt hugmyndina Guðrún getur ekki útskýrt hvernig hún fékk hugmyndina. „Hún hefur alltaf verið til hjá mér. Árið 2005 var ég að gera við göt í vegg hjá mér og eftir fjórða daginn var ég alveg að verða vit- laus á að sparsla. Þetta voru 40 risastór göt því ég var að taka rekka niður. Ég sparsl- aði og sparslaði og alltaf féll það inn. Svo ég dreif mig út í Húsasmiðju. Ég rýk að borðinu, með málningu á hausnum og rosalega geðvond. Ég kannaðist við manninn og sagði: Viltu gjöra svo vel að selja mér gifstappa. Ég er að verða brjáluð! Hann horfir á mig og seg- ir: Um hvað ertu að tala? Ég segi: Viltu bara selja mér gifstappana. Ég veit að þeir eru til. Hann sagði: Nei, Rúna mín, þetta er ekki til. En viltu koma þér upp á skrifstofu og selja þeim þessa hugmynd.“ Guðrún segir þetta hafa verið í ágúst 2005 en hún hafi ekkert gert í þessu fyrr en ári seinna. Þá teiknaði Guðrún upp tappana og bjó til frumgerðina sjálf, með því að skera út í krítar. Síðan tóku við ferðir í Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknarþjónustu Há- skólans og fleiri staði áður en hún fór og sótti um einkaleyfið fyrir hugmyndina. Guðrún seg- ir það erfiðasta við ferlið hafa verið „allar þessar lokuðu bílskúrshurðir sem birtust í förmum“. Mestu máli hafi því skipt að hafa trú á vörunni. sigrunrosa@mbl.is Gifstapparnir verða seldir um allan heim Morgunblaðið/Kristinn Hugvit Guðrún Laukka fann upp gifstappa sem eru nýttir til viðgerða á götum í veggjum. Finnskt dreifingarfyrirtæki er komið með sölurétt að þeim um allan heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.