Morgunblaðið - 08.09.2011, Síða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011
Leikstjórinn John CameronMitchell tekur heldur bet-ur u-beygju með kvik-myndinni Rabbit Hole ef
litið er til síðustu kvikmyndar hans,
Shortbus. Í þeirri mynd stunduðu
leikarar kynlíf fyrir framan mynda-
vélarnar og var allt sýnt en myndin
fjallaði í stuttu máli um fólk sem
sækir kynlífsklúbb í New York og
eðlar sig með ókunnugum. Hin hráa
og hressandi nálgun Mitchell í þeirri
mynd er víðs fjarri í Rabbit Hole,
undirritaður geispaði af leiðindum
þegar um þriðjungur hennar var lið-
inn og var nær sofnaður undir lokin.
Þó skal tekið fram að undirritaður er
ekki mótsnúinn lágstemmdum kvik-
myndum eða hægum. Þær þurfa
hins vegar að fela í sér nógu sterka
sögu og persónur til að ráða við
hægaganginn. Því er ekki fyrir að
fara í Rabbit Hole.
Í myndinni segir af hjónum,
Beccu og Howie sem leikin eru af
Nicole Kidman og Aaroni Eckhart.
Becca er húsmóðir og eyðir dög-
unum í lítið annað en að sinna hús-
verkum. Howie fer í vinnuna og
stundar líkamsrækt með félaga sín-
um. Viti menn ekki um hvað myndin
fjallar áður en áhorf hefst er það lík-
lega betra því fátt kemur á óvart í
henni. Becca og Howie sækja fundi
með ókunnugum pörum og í ljós
kemur að öll eiga það sameiginlegt
að hafa misst barn. Áhorfandinn átt-
ar sig þá á því af hverju samskipti
Beccu og Howie eru jafnstirð og
raun ber vitni, sonur þeirra lést fyrir
nokkrum mánuðum. Becca er lítið
gefin fyrir fundina og hættir að
sækja þá en Howie heldur því áfram.
Þegar líður á myndina kemur í ljós
að sonur þeirra lést í bílslysi, hljóp á
eftir hundinum sínum út á götu og
varð fyrir bíl. Ökumaður bílsins er
táningur og Becca ákveður einn dag-
inn að hitta hann að máli. Dreng-
urinn biður hana fyrirgefningar og
er hún veitt þar sem um slys var að
ræða. Howie fer hins vegar að
reykja gras með konu einni sem
sækir fundi hinna syrgjandi for-
eldra. Þau takast með ólíkum hætti á
við sorgina, Becca og Howie. Becca
reynir að losa sig við alla hluti á
heimilinu sem minna á soninn en
Howie vill halda þeim og horfir á
myndbönd af syni þeirra að leik.
Becca á í samskiptaörðugleikum við
móður sína og systur sem og alla
aðra, að því er virðist, en Howie virð-
ist eiga auðveldara með að komast í
gegnum hið daglega amstur.
Og þar með er það upp talið. Það
gerist eiginlega ekki neitt í mynd-
inni, því miður. Sumum kann að
finnast það í takt við efnið en und-
irritaður hefði þó heldur viljað að
eitthvað gerðist, að sagan þróaðist í
átt að einhvers konar niðurstöðu. Jú,
reyndar er komist að ákveðinni nið-
urstöðu: Lífið heldur áfram og mað-
ur þarf að lifa því. Myndin er hins
vegar ágætlega leikin, Kidman og
Eckhart standa sig með sóma miðað
við það sem þau hafa úr að moða. Að
vísu er það dálítið ósannfærandi að
maður sem nýverið hefur misst son
sinn sé sólbrúnn og í fantaformi með
óaðfinnanlega klippingu, eins og
Eckhart er í myndinni, eins og fyr-
irsæta í rakspíraauglýsingu. Þá er
Kidman álíka vel förðuð og greidd
en fegrunaraðgerðir hafa sett sitt
mark á andlit leikkonunnar, hrukku-
laus enni og fylltar varir koma ekki
nógu vel út þegar leikkonur brynna
músum og andlitin eiga að afmynd-
ast af sorg en eru þess í stað eins og
gljáfægður marmari.
Gagnrýnendur vestanhafs hafa
flestir ausið þessa mynd lofi og því
bjóst undirritaður við meiru. Nið-
urstaðan varð því þessi: ágætlega
leikin mynd (stjörnurnar tvær fá að-
alleikararnir) en hreint út sagt ótta-
lega leiðinleg.
Viðburðalítil sorgarsaga
Sambíó Kringlunni
Rabbit Hole bbnnn
Leikstjóri: John Cameron Mitchell. Að-
alhlutverk: Nicole Kidman, Aaron Eck-
hart og Dianne West. 91 mín. Bandarík-
in, 2010.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sorg Nicole Kidman og Aaron Eckhart leika hjón, sem nýverið hafa misst son sinn í bílslysi, í Rabbit Hole.
Ólgusjór er fyrsta plata pilt-anna í hljómsveitinni Loc-kerbie en sveitin er frem-ur ný af nálinni. Lögin á
plötunni eiga það sameiginlegt að
vera vel útsett með góðum hljóð-
færaleik sem smellpassa við ein-
kennandi og fallega háa rödd söngv-
arans. Lögin „Snjóljón“, „Ólgusjór“
og „Reyklykt“ þykja mér standa upp
úr á plötunni. Þar blandast vel sam-
an melódískt popp og rokk með vel
sömdum textum. En allir textar
hljómsveitarinnar eru á íslensku
sem mér finnst
alltaf notalegt
„hvarf til fortíð-
arinnar.“
Í lögum Loc-
kerbie má heyra
áhrif frá hljóm-
sveitum á borð
við Aminu og Sigur-Rós þó þau
fengsælu mið séu enn fjarri Locker-
bie. Nafnið fer plötunni vel enda má
segja að hlustandinn sé á ólgusjó við
hlustun. Ekki þó neinu fárviðri þar
sem hann virðist aldrei ætla að ná
landi heldur frekar á báti sem rugg-
ar honum eftir öldunum sem stíga
mishátt upp og niður. Sjóferðin er
fremur ljúf þó að inni á milli sé stigið
ágætlega á bensínið.
Þrátt fyrir nafn hljómsveitarinnar
er hér ekkert stórslys á ferð heldur
ágætis frumraun ungrar sveitar sem
spennandi verður að fylgjast með í
framtíðinni.
Hæfilegur öldugangur
Geisladiskur
Lockerbie/Ólgusjór bbbnn
MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
TÓNLIST
Meðal þess sem verður í brennidepli
á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í
Reykjavík, RIFF, í ár eru kvik-
myndir frá Norður-Afríku og Mið-
Austurlöndum. Í tilkynningu segir
að hrina byltinga hafi farið um Mið-
Austurlönd það sem af er þessu ári
sem sjái ekki fyrir endann á. Til að
varpa ljósi á tíðaranda og menningu
landanna í Norður-Afríku og Mið-
Austurlöndum muni RIFF bjóða
upp á sérstakan flokk með myndum
frá umræddum heimshluta og nefn-
ist sá Arabískt vor. Myndirnar sem
sýndar verða eru Babylon, No More
Fear og 18 dagar.
Í heimildarmyndinni Babylon er
fjallað um þau hundruð þúsunda
manna af yfir 20 þjóðernum sem
hafa verið á flótta á byltingarsvæð-
unum í Norður-Afríku á þessu ári,
einkum á landamærum Túnis og
Líbýu. No More Fear er leikin mynd
um byltinguna í Túnis, sagan sögð
frá sjónarhorni þriggja mismunandi
einstaklinga sem eiga það sameig-
inlegt að hafa lifað í ótta við yfirvöld.
Þeir taka undir hið sameiginlega
heróp byltingarinnar í landinu, þ.e.
að óttast ei meir. 18 dagar er safn tíu
stuttra heimildarmynda eftir jafn-
marga leikstjóra sem fjalla um bylt-
inguna í Egyptalandi. Leikstjór-
arnir, um tuttugu leikarar, átta
kvikmyndatökumenn og lítill hópur
tæknimanna tóku sig saman án fjár-
hagslegs stuðning og gerðu röð af
stuttmyndum sem fjalla hver með
sínum hætti um 25. janúar, daginn
sem Mubarak, forseti Egyptalands,
hrökklaðist frá völdum eftir 30 ára
spillingarstjórn.
Arabískt vor
á RIFF
Óttalaus Úr No More Fear, leikinni mynd um byltingu í Túnis.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE DEVILS DOUBLE Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:20
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 8 - 10:20
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 6
CONAN THE BARBARIAN Sýnd kl. 10:20
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
HÖRKU SPENNUMYND
HANN ER FÆDDUR STRÍÐSMAÐUR
HEFURÐU EINHVERN TÍMANN
VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR?
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING CRASHERS
OG HANDRITSHÖFUNDUM
THE HANGOVER
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND
Í FJÓRVÍDD!
BYGGÐ Á SANNRI SÖGU!
ÞRÆLMÖGNUÐ MYND UM SON
SADDAM HUSSEIN
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
A.K. - DV
FRÁ LEIKSTJÓRA
SUPER SIZE ME
5%
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
THE CHANGE-UP KL. 6 - 8 - 10 14
SPY KIDS 4 4D KL. 6 L
T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT
30 MINUTES OR LESS LÚXUS KL. 4 - 6 - 8 - 10 14
30 MINUTES OR LESS KL. 6 - 8 - 10 14
Á ANNAN VEG KL. 8 10
THE CHANGE-UP KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.30 - 5.50 - 8 L
COWBOYS AND ALIENS KL. 10 14
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.30 L
FRIENDS WITH BENEFITS KL. 10.10 12
Á ANNAN VEG KL. 6 - 8 - 10 10
30 MINUTES OR LESS KL. 8 - 10 14
THE CHANGE-UP KL. 8 - 10.30 14
GREATEST MOVIE EVER SOLD KL. 5.50 L
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
CONAN THE BARBARIAN KL. 10.20 16
ONE DAY KL. 5.30 - 8 L
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
FRÁBÆR ÍSLENSK
GAMANMYND
-K.H.K., MBL
- H.V.A. - FRÉTTABLAÐIÐ