Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 4

Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 4
BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Töluvert hefur verið um uppsagnir í byggingariðnaði og þær eru mun fleiri en þær sem hafa komið fram í fjölmiðlum, að sögn Friðriks Á. Ólafs- sonar hjá Samtökum iðnaðarins, SI. Verkefnaskortur sé svo mikill að rótgróin verktakafyrirtæki séu farin að segja upp lykilstarfsmönnum og þá sé augljóslega fokið í flest skjól. Friðrik segir að nánast engin verk- efni séu á markaðnum og ekkert sé í pípunum. Eina ljósið í myrkrinu sé verkefnið Allir vinna, sem snýst um endurgreiðslu á virðisaukaskatti og tiltekinn skattafrádrátt, en það standi aðeins til áramóta. Vonandi verði það þó framlengt. Friðrik er forstöðumaður meist- aradeildar SI og ræðir reglulega við byggingarverktaka um allt land. Hann segir þungt hljóð í flestum. Ástandið sé orðið svo slæmt að fyr- irtæki séu farin að segja upp þeim starfsmönnum sem hafa mestu reynsluna og þekkinguna. „Og þá spyr maður bara: Hvað er eftir? Er eitthvað eftir?“ Ekkert fyrirtæki geti starfað án lykilstarfsmanna. Fari þeir sé fyrirtækið farið. Friðrik segir að þessir starfsmenn séu með langan uppsagnarfrest enda hafi þeir margir verið í áratugi hjá sama fyrirtækinu. Í nánast öllum til- vikum hafi þeim verið sagt að vonandi sé hægt að draga uppsagnirnar til baka. Þótt fyrirtækin sjái ekkert framundan haldi þau í vonina. „Það sem við viljum að fari í gang er uppbygging á fyrirtækjum sem munu skila einhverju til þjóðarbúsins þannig að við förum að ná okkur út úr þessu,“ segir hann. Erfitt sé að spá fyrir um hvort upp- sagnir halda áfram í haust og vetur. „Og það er líka spurning hvort það eru einhverjir eftir til að segja upp,“ segir hann. Ekki bjart á Vestfjörðum Um ástandið á landsbyggðinni seg- ir Friðrik að það sé mjög misjafnt eft- ir sveitarfélögum. Hann er nýkominn af fundum á Vestfjörðum og Norður- landi. Hann segir að félagsmenn SI telji útlitið ekki bjart á Vestfjörðum en þar hafi menn fundið fyrir því að almenningur hafi tekið við sér þegar átakið Allir vinna hófst. Ástandið á Sauðárkróki sé betra og nokkuð gott á Siglufirði og Akureyri. Á hinn bóg- inn séu erfiðleikar á Húsavík og í Ólafsfirði. Áhyggjur af fjárlagafrumvarpi Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar, segir að atvinnuleysið innan þeirra raða sé heldur að síga niður. „En maður hefur þó á tilfinningunni að það sé svikalogn,“ segir hann. Undanfarið hafi ekki borist tilkynn- ingar um að félagar í Eflingu hafi misst vinnuna í hópuppsögnum. „Við óttumst að verkefnastaða sé að versna í haust. Það sé ekkert nýtt að koma inn.“ Helst gangi útflutnings- fyrirtæki vel, enda krónan veik. Sigurður segist óttast að í fjárlaga- frumvarpinu verði mikið skorið niður og vísar til fregna af því að niður- skurður á Landspítalanum gæti orðið um 600 milljónir. Uppsagnir sem fylgt hafi niðurskurði hafi gjarnan bitnað á láglaunahópum. Sigurði líst ekki þá umræðu sem fylgt hafi hópuppsögnum. Fyrirtæki geti ekki aðeins horft í eigin rann og sagt upp fólki vegna aðstæðna á markaði. Þreyja þurfi þorrann og á endanum muni landið rísa. Mörg fyr- irtæki hafi skilað þokkalegum arði og þá hljóti að vera svigrúm til að veita starfsmönnum skjól á erfiðum tím- um. Deyfðin svífur yfir vötnunum  Nánast ekkert að gerast í byggingariðnaði og fá verkefni í pípunum  Þungt hljóð í félagsmönnum SI  Allir vinna er árangursríkt  Formaður Eflingar óttast verkefnaskort og niðurskurð í fjárlögum Morgunblaðið/RAX Vinna Atvinnuleysi í ágúst var 6,7%, 11.294 voru atvinnulausir. Atvinnu- leysi eykst jafnan þegar líður á veturinn og nær hámarki upp úr áramótum. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 „Ég hvet alla til þess að klæða sig eftir veðri og koma og mótmæla. Við erum nú Íslendingar og þolum ýmislegt,“ segir Valþór Ólason, einn forsprakka hópsins Samstaða Íslendinga 1. október, en hópurinn stendur fyrir mótmælum á Aust- urvelli við setningu Alþingis í dag. ,,Við Íslendingar förum á Menning- arnótt og Gay Pride í tugum þús- unda og upp í hundrað þúsund. Hvers vegna ekki að mæta og mót- mæla fyrir heimilin og fyrir okkur sjálf?“ Valþór segir að ætlunin sé að fylla Austurvöll og sýna samstöðu gegn aðgerðaleysi stjórnvalda. ,,Það hafa hátt í 3.500 ein- staklingar skráð sig á Facebook síðuna okkar, en í fyrra skráðu sig ekki nema 1.900 og þá mættu hátt í 10 þúsund. Því geri ég ráð fyrir að sjá allt að 20 til 30 þúsund manns á Austurvelli á morgun [í dag].“ Þingsetningarathöfnin hefst klukkan 10:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Mótmælendur gætu átt von á létt- um skúrum og 8-13 metrum á sek- úndu. Hiti verður á bilinu 7-9 stig. robert@mbl.is Býst við miklum fjölda á mótmælin Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is Erling Blöndal Bengtsson sellóleik- ari afhenti Tónlistarsafni Íslands til varðveislu fyrsta sellóið sem hann eignaðist sem barn. Afhendingin fór fram við formlega athöfn í Tónlist- arsafni Íslands í gær. Í ræðu sem Erling hélt við athöfn- ina sagði hann að hann hefði alist upp á miklu tónlistarheimili. ,,Faðir minn var fiðluleikari og gaf mér fiðlu þegar ég var þriggja ára. En þegar ég ætlaði að spila á fiðluna vildi ég alltaf hafa hana milli fóta mér eins og selló. Því ákváðu for- eldrar mínir að láta smíða fyrir mig selló,“ sagði Erling. Þetta sama selló afhenti hann Tónlistarsafni Íslands í gær. Danskur fiðlusmiður, Hans Dahl að nafni, smíðaði sellóið í Kaup- mannahöfn og lék Erling fyrst á það á tónleikum árið 1936 þá fjögurra ára gamall. Sellóið ásamt myndum og öðrum munum sem Erling hefur ákveðið að afhenda safninu verður almenningi til sýnis frá og með mánudeginum 3. október. Finn fyrir Íslendingnum í mér Allt frá fyrstu árum sínum sem sellóleikari hefur Erling heimsótt Ísland og haldið hér tónleika. Erling er af íslenskum ættum en móðir hans Sigríður Nielsen var ættuð frá Ísafirði. Aðspurður hvers vegna Erling hafi ákveðið að afhenda Tónlist- arsafni Íslands sellóið sagði hann að Ísland hafi verið honum mikils virði allt hans líf. ,,Tónlistarlíf mitt hefði ekki verið eins án Íslands,“ sagði Erling. ,,Það voru Íslendingar sem styrktu mig ungan mann til náms við Curtis Institude í New York og kann ég þeim miklar þakkir. Nú svo er ég hálfur Íslendingur. Móðir mín var frá Ísafirði og ég finn mikið fyrir Ís- lendingnum í mér þannig að mér fannst það rökrétt að afhenda Tón- listarsafni Íslands sellóið.“ ,,Tónlistarlíf mitt hefði ekki verið eins án Íslands“  Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari afhenti Tónlistarsafni Íslands fyrsta sellóið sitt til varðveislu Morgunblaðið/Kristinn Athöfn „Ég finn mikið fyrir Íslendingnum í mér,“ sagði Erling Blöndal Bengtsson við athöfnina í gær. Í haust hófst átakið Nám er vinn- andi vegur sem gerði 1.000 manns kleift að stunda nám í eina önn en fá um leið atvinnu- leysisbætur. Þeir sem eru í láns- hæfu námi hjá LÍN munu um ára- mótin geta fengið námslán. Hrafnhildur Tómasdóttir, sviðsstjóri vinnumiðlunar- og ráðgjafarsviðs Vinnumálastofn- unar, segir að verið sé að skoða möguleika á námstyrkjum eða námslánum fyrir þá sem eru í námi sem ekki er nú lánshæft. Um 200-300 af hópnum eru í námi sem ekki er lánshæft. Um 33% fóru í háskólanám, 13% fóru í frumgreinadeildir og fullorðinsfræðslu og 54% fóru í framhaldsskóla, langflestir í iðn- og tækninám. Ýmis önnur úrræði eru í boði og segir Hrafnhildur að árangur- inn sé ásættanlegur. Um 40-50% hafi farið af atvinnuleysisskrá eftir að hafa nýtt sér úrræði. Þúsund hófu nám í haust VINNANDI VEGUR Opið virka daga kl. 9-18 og lau. kl. 10-16 Laugavegi 29 - Sími 552 4320 - www.brynja.is - brynja@brynja.is Bréfalúgur, dyrahamrar og húsnúmer Póstkassar margar gerðir Morgunblaðið/Júlíus Mótmæli á Austurvelli Alþingi verður sett kl. 10:30 í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.