Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 32

Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Sölustaðir: N1, Iða, Mál og menning, Háma, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams, Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin. www.faerid.com tb rh ön nu n •t br @ ta ln et .is F A S T E I G N A S A L A N fasteign . i s Ólafur B Blöndal Lögg. fasteigna- fyrirtækja og skipasali. Suðurlandsbraut 18 • Reykjavík • Fax 5 900 808 • Sími 5 900 800 OPIÐ HÚS Á MORGUN JÖRFAGRUND 20 - KJALARNESI Sýnum í dag mjög fallegt og vel við haldið 176 fm endraðhús á einni hæð ásamt rými í risi. Innbyggður 30 fm bílskúr sem er að hluta innréttaður sem íbúðarherbergi. Rúmgóð herbergi, mjög gott skipulag húss, mikil lofthæð og góðar og vandaðar innréttingar. Stór sólpallur til suðurs með skjólgirðingum og heitum potti. Verð 35,9 millj. Áhvílandi 13,7 millj. Sigríður Magnúsdóttir sölufulltrúi sýnir húsið í dag á milli kl. 17 og 18 Skaðsemi reykinga og óbeinna reykinga er óumdeilanleg og hefur verið þekkt um árarað- ir. Nýjar rannsóknir eru nú að líta dagsins ljós og beina athygli okkar að skaðsemi svo- kallaðs reykingaryks (3rd-hand smoke). Nú hefur eiturefnaögn- unum sem verða eftir í umhverfinu eftir reykingar verið gef- ið nafnið reykingaryk. Reykingaryk er bæði örsmáar agn- ir úr tóbaksreyk og ósýnilegur reyk- ur. Þessar leifar af reykingum valda mengun sem safnast fyrir í umhverfi þar sem reykt er, hvort sem um bíl eða húsnæði er að ræða. Mengandi efni úr sígarettureyknum sitja eftir í efnum eins og fatnaði, húsgögnum, gardínum, á veggjum, í teppum, í hári og húð þess sem reykir og í ryki í her- bergjum og bílum löngu eftir að þar hefur verið reykt. Ekki er hægt að losna við þessar rykagnir með því að lofta út, láta eldhúsviftuna ganga eða með því að reykja eingöngu í ákveðnum herbergjum í íbúðinni. Börn eru viðkvæmari fyrir reyk- ingaryki en fullorðnir vegna þess að lungu þeirra og heili eru að vaxa og þroskast. Börn geta andað að sér þessum efnum og borðað þau og rannsóknir benda til þess að reyk- ingaryk geti frásogast í gegnum húð. Ungbörn og lítil börn eru sérstaklega viðkvæm og berskjölduð fyrir reyk- ingaryki vegna þess hvernig þau kanna um- hverfi sitt, jafnvel á fjórum fótum, með því að bragða á eða sjúga og naga hluti með menguðu yfirborði eins og á gólfum, hús- gögnum og leikföngum. Rannsóknir sýna fram á að börn geta andað að sér þessum ör- smáu rykögnum þegar einhver sem reykir ann- ast þau þótt hún/hann sé ekki að reykja nálægt barninu. Þetta stafar af því að reykingarykið sest í húð og hár ásamt fatnaði þess sem reykir og berst þannig til barns- ins. Mælingar á cotinine í þvagi hjá börnum hafa sýnt fram á þetta. Þegar móðir með barn á brjósti reykir berast efni úr tóbaki til barns- ins með móðurmjólkinni. Samt sem áður er mælt með því að þær mæður sem reykja meðan þær hafa barn á brjósti geri það frekar en að gefa barninu þurrmjólk vegna verndandi þátta sem fylgja móðurmjólkinni. Mikilvægt er að verðandi mæður sem umgangast aðra sem reykja viti um þá áhættu sem tengist óbeinum reyk- ingum og reykingaryki og geri þeim sem reykja í kringum þær ljóst hvaða áhrif reykingar geta haft á ófædda barnið. Verið er að rannsaka hversu skað- legt reykingaryk getur verið, en rannsóknir benda til þess að þegar reykingaryk safnast fyrir í töluverðu magni geti það verið krabbameins- valdandi. Rannsóknir hafa þegar sýnt tengsl milli lestrarerfiðleika hjá börn- um og magns reykingaryks í um- hverfi þeirra og er það talið stafa af blýmagni í reykingarykinu. Að verja börn fyrir áhrifum reykingaryks Eina leiðin til að verja börn fyrir skaðsemi reykinga og reykingaryks er að umhverfi þeirra sé algjörlega reyklaust, hvort sem það er inni á heimilinu, í dagvistun, á vinnustað eða í fjölskyldubílnum. Jafnvel það að reykja utandyra eða undir viftu er engin trygging gegn því að skaðleg efni setjist á húð og hár viðkomandi og á fötin hans. Er- lendar rannsóknir hafa sýnt að fáir foreldrar vita af þessari hættu og því er verið að vekja athygli íslenskra foreldra á þessum rannsóknum svo þeir geti varið börn sín fyrir áhrifum reykingaryks með því að leyfa engar reykingar í umhverfi barna sinna. Það eru engin örugg mörk fyrir áhrifum af tóbaksreyk. Skaðleg áhrif reykingaryks á börn Eftir Báru Sigurjónsdóttur »Reykingaryk er bæði örsmáar agnir úr tóbaksreyk og ósýni- legur reykur er safnast fyrir og veldur mengun í umhverfi þar sem reykt er. Bára Sigurjónsdóttir Höfundur er sérfræðingur í barna- hjúkrun og verkefnisstjóri hjá emb- ætti landlæknis Afmæli Sigríður Helgadóttir, aldrei kölluð annað en amma Sigga, er níræð í dag. Amma Sigga ólst upp með fimm bræðrum, gifti sig stuttu eftir að yngsti bróðirinn fæddist og eignaðist sjálf fimm syni. Það hefur ekki dug- að henni að sjá um upp- eldi eigin barna, heldur hefur hún gegnt mik- ilvægu hlutverki í lífi okkar barnabarnanna síðastliðna áratugi. Barnabarnabörnin eru líka alveg með það á hreinu hver amma Sigga er, þótt ekki væri nema fyrir þjóð- legan hádegisverð sem borinn er á borð á hverjum miðvikudegi á heimili hennar á Kjarrveginum (amma er jú alltof hress til að fara á elliheimili – mörg ár í það). Grjónagrautur og slátur – þetta finnst eiginlega öllum gott. Hún er kjarnakona sem hefur lifað tímana tvenna. Það voru engin venjuleg húsverk sem biðu nútímakonunnar fyrir rúmri hálfri öld. Heimilishald án þvotta- vélar, þurrkara, uppþvottavélar, ofns, ís- skáps og jafnvel sturtu er nútímakon- unni næstum hlægileg tilhugsun – hugmyndin fráleit. En lífsspeki og já- kvæðni ömmu hefur ætíð verið hennar styrkleiki. Hjá henni breytist rúgbrauðs- sneið með smjöri í danska jómfrúars- nittu, símaskráin verður jafnvel Sigríður Helgadóttir skemmtileg aflestrar og lífið dásamlega er eitt stórt ævintýri sem manni ber að njóta. Amma Sigga er sál- fræðingurinn okkar. Hún hlustar á okkur pústa og hún dæmir aldrei. Þrátt fyrir margvíslega erf- iðleika í eigin lífi, lætur hún okkur aldrei heyra hvað okkar vandamál hljóma ómerkileg við hlið hennar, vegna þess að henni finnst þau ekki hljóma ómerkileg, þau eru bara öðruvísi en hennar. Og í hvert sinn sem við nefnum sigrana, þá sam- gleðst hún eins og enginn sé morgundag- urinn. Amma Sigga hefur kennt okkur að vandamálin eru fyrir okkur að sigrast á. Það er gott að geta pústað, en þegar út- pústun er lokið skal ekki liggja í sjálfs- vorkunn og volæði, heldur hrista af sér slenið, standa aftur á fætur og halda áfram. Hvernig haldið þið að henni hafi tekist að tækla öll þessi 90 ár? Um leið og við óskum ömmu til ham- ingju með áratugina níu, óskum við eftir því að í næstu útgáfu íslenskrar orða- bókar verði orðið „amma Sigga“ sett sem samheiti við orðin „hetja, rauðsokka, kvenskörungur, sálusorgari, snillingur“. En ekki hvað? Kristín, Sigríður, Frosti og Guðrún. Mig langar að minnast St. Jósefsspít- alans í Hafnarfirði með nokkrum orð- um, en hinn 1. september síðastliðinn var allri starfsemi að mestu leyti hætt á spítalanum sem hefur þjónað Hafnfirðingum og öðrum lands- mönnum frá árinu 1926 eða í 85 ár. Starfsemi spít- alans efldist jafnt og þétt og hann dafnaði og varð að því sem hann var orðinn með dugnaði allra þeirra sem við spítalann hafa unnið. Það voru margir sem héldu – og ég var lengi ein af þeim – að verið væri að flytja starfsemi St. Jósefsspítala annað. Að deildirnar fengju annan stað með sama fólki innanbúðar en sú er ekki raunin. Auðvitað vinnur þetta frábæra fólk áfram gott starf annars staðar en starfsemi St. Jósefsspítala er ekki að flytja í heild sinni eins og svo margir halda. Hún hættir. Ég er mjög ósátt við að loka eigi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og hryllir við tilhugsuninni um að sjá spítalann, sem stendur á fal- legum stað í Hafnarfirði, grotna niður og verða að draugahúsi og verst er að allt það góða starf sem þar hef- ur verið unnið fer fyrir bí. Að lokum vil ég segja að þar sem ég er leikskólakennari á ég eftir að upp- fræða litla Hafnfirðinga áfram eins og ég hef gert síðustu fjóra áratugi um fallega bæinn þeirra og þegar við för- um efst á Suðurgötuna segi ég þeim að í 85 ár hafi verið spítali í Hafnarfirði en hann sé ekki til lengur. Blessuð sé minning St. Jósefsspít- ala. ÞURÍÐUR RÚRÍ VALGEIRSDÓTTIR leikskólakennari. St. Jósefsspítali í Hafnar- firði – 5.9. 1926 – 1.9. 2011. Blessuð sé minning hans Frá Þuríði Rúrí Valgeirsdóttur Þuríður Rúrí Valgeirsdóttir Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.