Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
✝ Bragi Ein-arsson fæddist
á Ísafirði, 26. maí
1932. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 25.
september 2011.
Foreldrar hans
voru Einar Krist-
björn Garibaldason
sjómaður, f. 1889, d.
1968, og Margrét
Jónína Einarsdóttir,
f. 1895, d. 1959. Systkini Braga
voru þau Einar Garibaldi, f. 1919,
d. 1969, Hannibal Guðmundur, f.
1920, d. 1988, Óskar Pétur, f.
1920, d. 1996, Lúðvík, f. 1921, d.
1997, Jónína Margrét, f. 1927, d.
2001, og Baldur, f. 1932, sem er
einn eftirlifandi þeirra systkina.
Afi Braga í föðurætt var Gari-
baldi Einarsson, bóndi og sjómað-
ur, sem fórst ásamt konu sinni
Margréti, þremur börnum þeirra
og fleira heimilisfólki, alls 7
manns, í snjóflóði í Engidal í Úlfs-
dölum, norðan við Siglufjörð í
apríl 1919.
Eftirlifandi kona Braga er
2011, og sonur Einars Þórs, er ný-
fæddur og óskírður, f. 2011.
Bragi Einarsson fór ungur til
sjós, aðeins 15 ára og hafði verið
sjómaður samfellt í um það bil
hálfa öld, þegar hann lét af því
starfi og settist í helgan stein.
Hann var háseti, bátsmaður, stýri-
maður og skipstjóri á fjölda báta
og skipa. Þar komu m.a. við sögu
skip eins og Finnbjörn og Mímir,
síðutogararnir Ísborg og Sólborg,
Straumnesið, Gunnvör, Hrönn og
síðast en ekki síst skuttogarinn Júl-
íus Geirmundsson, eitt af helstu
aflaskipum flotans. Sjómennska
Braga var fjölbreytt, náði yfir
landróðrabáta, síldarbáta, síðutog-
ara og skuttogara. Veiðigrein-
arnar voru allt frá skaki og línu-
veiðum, rækjuveiðum, síldveiðum
og snurvoð, til úthafskarfaveiða og
botnvörpuveiða. Veiðisvæðin ekki
einungis utan við Vestfirði eða
þvert um íslenska landhelgi, held-
ur líka fjarlæg mið: Grænland, Ný-
fundnaland og Smugan. Fyrir ævi-
starf sitt var Bragi heiðraður á
sjómannadaginn á Ísafirði fyrir
fimm árum.
Útför Braga fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, laugardaginn
1. október 2011, og hefst athöfnin
kl. 14.
Gróa Aradóttir, f.
1935 á Ísafirði. For-
eldrar hennar voru
þau Guðrún Ágústa
Steinþórsdóttir og
Ari Hólmbergsson.
Bragi og Gróa eign-
uðust fjögur börn: 1)
Guðrún Ágústa, f.
1956. Maður hennar
er Hallur Páll Jóns-
son, f. 1948. Þeirra
synir eru Bragi, f.
1976, d. 1998, og Haukur, f. 1989.
2) Einar Daníel, f. 1957. Synir
hans og Helgu Árdísar Kristian-
sen, f. 1965, eru Marteinn Már, f.
1993, Bragi, f. 1995, og Baldur, f.
1995. 3) Margrét Jónína, f. 1959.
Maður hennar er Sveinn Sigurður
Sveinsson, f. 1957. Þeirra börn eru
Sveinn Bragi, f. 1983, Íris Gróa, f.
1987, og Garibaldi, f. 1993. Dóttir
Írisar er Margrét Rún Steindórs-
dóttir, f. 2007. 4) Ólína Bragadótt-
ir f. 1960. Sambýlismaður hennar
er Ture Johansson. Synir hennar
eru Örvar Ari Bjarnason, f. 1979,
og Einar Þór Birgisson, f. 1990.
Dóttir Örvars er Anna Lína, f.
Nú þegar haustar mætir gam-
all maður örlögum sínum og kveð-
ur ættingja og vini. Að baki er
löng starfsævi, sjómennska í hálfa
öld, lengi framan af við mun erf-
iðari starfsskilyrði en tíðkast í
dag. Það þarf mikið úthald og
þrek til að stunda svo erfið störf
við óblíða náttúru nærfellt alla
ævi. Aldrei var þó kvartað undan
erfiði, vosbúð eða vinnuaðstæðum.
Sá sem hefur verið svo langan
tíma til sjós er bundinn undarlega
sterkum böndum við hafið. Það
hefur sett mark sitt og mót á
manninn og hverfur aldrei úr
sinni. Samt fer svo að lokum að
jafnvel hinn hraustasti sjómaður
verður að taka pokann sinn.
Bragi gat sér sérdeilis gott orð
sem skipsfélagi, fyrir dugnað og
ósérhlífni og gott lundarfar; eig-
inleika sem við viljum helst að
samstarfsmenn okkar allir hafi.
Hann var glettinn og léttlyndur að
eðlisfari og farsæll í starfi. Hann
var traustur og vandur að virðingu
sinni, öldungis laus við allt prjál og
bruðl. Hann var einstaklega ljúfur
afi sem barnabörnin öll minnast
með virðingu og söknuði, og ekki
síður minnast þau þeirra mörgu
skemmtilegu daga er þau gistu hjá
ömmu og afa á Ísafirði, og upplifðu
þar margskyns ævintýri. Hann
var sérdeilis góður nafna sínum og
elsta barnabarni og minnisstætt er
þegar afi kom úr einni sjóferðinni
frá Þýzkalandi, færandi hendi dýr-
indis reiðhjól, tvímenningshjól svo
blindur nafni hans gæti hjólað eins
og aðrir krakkar.
Bragi hafði yndi af ferðalögum
og fóru þau Gróa í ótal ferðir er-
lendis, oft með skipsfélögum af
Júlíusi Geirmundssyni eða með
börnum og barnabörnum. Minnið
fór smám saman að gefa sig síð-
ustu árin, en því sló Bragi auðvitað
upp í grín og henti gaman að öllu,
allt fram á síðasta dag.
Bragi og Gróa bjuggu alla tíð á
Ísafirði, ef frá eru talin sex ár í
Kópavogi fyrir fáeinum árum. Þá
kom á daginn að Ísafjörður var sú
ramma taug sem hlaut að draga
þau til sín aftur. Enginn slítur þau
bönd sem hann er bundinn heima-
högum sínum. Lengst af var heim-
ili þeirra í Aðalstræti 10, en síð-
ustu árin á Urðarvegi 80, þaðan
sem vel sést yfir Skutulsfjörðinn.
Nú situr þar ekki lengur gamall
sjómaður við stofugluggann og
skyggnist um til að fylgjast með
ferðum skipa um höfnina. Hann
röltir ekki lengur með sixpensar-
ann, ögn hokinn í baki, niður á
bryggju að hitta gamla félaga;
hann er sjálfur lagður af stað í sína
hinstu ferð.
Ég vil að leiðarlokum þakka
tengdaföður mínum, Braga Ein-
arssyni, ljúfa samfylgd, greið-
vikni, umhyggju fyrir barnabörn-
um og einstaklega góð kynni alla
tíð.
Hallur Páll Jónsson.
Ég minnist afa míns sem fal-
legs manns, glaðlynds og hjarta-
hlýs. Mér er minnisstætt þegar
við sátum tveir í sólinni við Mið-
jarðarhafið fyrir ekki svo löngu og
ræddum um fólk og fiska og hann
sagði mér sögur að vestan, frá sjó-
mennskunni og lífinu á Bökkun-
um. Við höfðum farið með mömmu
og ömmu til Krítar, fyrir þremur
sumrum. Þrátt fyrir þverrandi
heilsu og hrakandi minni tapaði
hann aldrei lífsgleðinni og já-
kvæðninni og naut þess að sitja í
sólinni og vaða í sjónum, rétt eins
og við nutum samverunnar í síð-
ustu utanlandsferðinni hans, sem
höfðu verið fjölmargar á lífsleið-
inni.
Ég minnist þess nú er ég ungur
drengur heimsótti afa og ömmu
vestur á Ísafjörð, í Downing
Street eins og það var kallað, Að-
alstræti 10, þar sem amma og afi
bjuggu lengst af. Við áttum það
leyndarmál krakkarnir með afa
hvar amma faldi suðusúkkulaðið
og þrátt fyrir að hann hafi ekki
þekkt eldhússkápana jafn vel og
fiskimiðin rann hann alltaf á lykt-
ina og laumaði að okkur afa-
súkkulaðinu án þess að amma sæi
til. Hann fór með mig niður á smá-
bátahöfn að dorga, um borð í Júll-
ann þar sem hann sýndi mér allt
milli stefnis og skuts. Borgarbarni
eins og mér þótti þetta bæði fram-
andi og spennandi heimur.
Ég sé hann afa ljóslifandi fyrir
mér þar sem hann gengur Aðal-
strætið broshýr og stígur ölduna
og mig að herma eftir göngulag-
inu sem mér þótti svo flott. Hann
kunni að sjá það fallega í fólki og
jafnan jákvæðu hliðina á tilver-
unni. Ég virði hann fyrir lífsvið-
horf sitt sem einkenndist af hlý-
hug til annars fólks og hversu
góður hann var honum bróður
mínum verð ég honum ævinlega
þakklátur fyrir.
Þótt það væri sárt var gott að fá
að kveðja hann daginn sem hann
fór. Hvíl í friði afi minn.
Haukur Hallsson.
Bragi Einarsson
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Labradorhvolpar til sölu
Vænlegir veiðihundar og frábærir
heimilishundar. Faðir veiðimeistari,
móðir reyndur veiðihundur. Til
afhendingar 9. október, ættbókar-
færðir hjá HRFÍ. Hagstætt verð.
heklugot.blogspot.com,
brich@simnet.is, s. 664 1821.
20.000 kr. í fundarlaun
Sárt saknað! Askur er stór bröndóttur
fress, ljósbrúnn/gylltur á maganum,
með rauða og hvíta hálsól og merki-
spjald. Örmerktur. ALLAR ábendingar
vel þegnar. 20.000 kr. fundarlaunum
heitið. S. 694-4680 eða 899-3694.
Enskur springer spaniel
Ættbók frá HRFÍ
Til sölu hvolpar undan mjaðmamynd-
uðum, augnskoðuðum verðlauna-
hundum. Hvolparnir eru tilbúnir til
afhendingar örmerktir, bólusettir og
ættbókarfærðir. Seljast á 120.000.
S. 695 1714.
Garðar
Garðklippingar
Klippum hekk og annan gróður.
Fellum einnig lítil og meðalstór tré.
Fagmennska og sanngjarnt verð.
ENGI ehf. Sími: 615-1605, email:
grasblettur@gmail.com
Gisting
Gisting við Akureyri
Neðri hæð í tvíbýli gegnt Akureyri.
Myndir á: gisting.blog.is
S. 663 4646.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, sími 897 5300.
Húsnæði íboði
Til leigu á Vesturgötu
björt og glæsileg 110 fm íbúð til
leigu á Vesturgötu.
Upplýsingar í síma 897 5744.
4ra herb. íbúð til leigu
110 fm íbúð í steinhúsi á góðum stað
við Langholtsveg til leigu strax, á 150
þús. á mánuði. Þrjú svefnherbergi,
stofa, hol o.fl. Suðursvalir. Mála þarf
1-2 herbergi og eldhús.
Uppl. í síma 616 9070.
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í
kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes-
og Grafningshreppi. Allar nánari
upplýsingar í síma 896-1864.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Námskeið
Skrifaðu sögu, handrit eða leikrit
Marteinn Þórsson, leikstjóri og hand-
ritshöfundur, stendur fyrir 6 mánaða
frásagnarnámskeiði/„workshop“
1.11.2011–1.5.2012. Sjá nánar á
www.hifa.is.
Til sölu
Evrur til sölu
3% yfir seðlagengi.
Sími 857 6711.
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Fjarstýrð leikföng, gadgets o.m.fl.
Fjarstýrðar þyrlur, flugvélar, bílar,
bátar, gadgets og fl. Einnig mikið
úrval af vörum fyrir skotveiðimann-
inn. Netlagerinn slf. Sími 517-8878.
Netverslun Tactical.is
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Múmín-
vörurnar
Frá Pluto
Órói
Verð 1.750
Byggingavörur
Glugga- og hurðasmíði
Smíða glugga, hurðir og opnanlega
glugga í öll hús úr völdu efni. Stuttur
afgreiðslufrestur. Sanngjarnt verð.
EÐALGLUGGAR OG HURÐIR,
sími 899-4958.
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Gallerý Augnakonfekt,
Opnum í Bæjarlind 6, fimmtudaginn
6. október. Frábær opnunartilboð.
Sími 552 - 9922.
Gallerý Augnakonfekt,
Opnum í Bæjarlind 6, fimmtudaginn
6. október. Frábær opnunartilboð.
Sími 552 - 9922.
Gallerý Augnakonfekt,
Opnum í Bæjarlind 6,
fimmtudaginn 6. október.
Frábær opnunartilboð.
S.552 - 9922.
...þegar þú vilt þægindi
Útivistarsett - tilboð
fyrir dömur og herra.
Jakki, flíspeysa og buxur.
Tilboð kr. 33.000.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartími: mánud.- föstud.
kl. 11.00 - 17.00.
Pantið vörulista okkar á
www.praxis.is
Bátar
Hraðgangandi Rib farþegabátur
til sölu. Með vagni. Tilbúinn í vinnu.
Ástand sem nýr.
Upplýsingar í s. 867 4097.
Bílaþjónusta
! "
#
! !!
!
Húsviðhald
Málara- og húsasmíðameistarar
geta bætt við sig verkefnum
Vinsamlegast hringið í s. 896-5430
eða hafið samb. á netfangið
r.e@internet.is
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
! " #$% ####