Morgunblaðið - 01.10.2011, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hann Paul gamli Young er ein af
skærustu og eftiminnilegustu
stjörnum hins svokallaða eit-
ístímabils, án efa. Frumburður hans
árið 1983, No Parlez, sló þvílíkt í
gegn og lögin „Come Back and
Stay“, „Wherever I Lay My Hat
(That’s My Home)“ og „Love of the
Common People“ glumdu linnulítið í
útvörpum það árið og langt fram á
það næsta. Og reyndar út þann ára-
tuginn ef út í það er farið. Ekki var
þá verra fyrir pilt að fá að syngja
fyrstu línurnar í styrktarlagi Band
Aid, „Do they know it’s Christ-
mas?“jólin 1984. Paul Young var
stórstjarna og hefur hann lifað góðu
lífi á tveimur fyrstu árum sínum
sem slík allar götur síðan.
Fílaði pönkið
– Hvernig kom það eiginlega til að
þú kemur alla leiðina hingað til að
syngja?
„Ja … tímasetningar gengu bara
vel upp. Ég er að æfa með tveimur
böndum um þessar stundir sem ég
túra með, í Danmörku og Þýska-
landi, og ég átti þess kost að koma
þessum tónleikum á.“
– Þegar þú ert að byrja þinn feril
er pönkið yfir um og allt í kring. En
þú fórst ekki þá leið?
„Nei. En samt náði ég alltaf að
vera utangarðs (hlær). Þegar pönkið
var í hæstu hæðum árin 1976/1977,
Sex Pistols, Damned og allt það þá
voru pönkararnir flestir sextán eða
sautján ára. Ég var hins vegar orð-
inn tuttugu og eins. Og á þessum ár-
um er það mikill aldursmunur. Ég
fílaði ástríðuna, orkuna og æsinginn
í kringum pönkið en sjálfan langaði
mig til að búa til tónlist sem krefðist
ögn meiri hljóðfæragetu en tíðkaðist
þar.“
– Og þú slærð síðan rækilega í
gegn. Var það eitthvað sem þú varst
búinn að vinna að dag og nótt eða
var þetta slys?
„Ég átti að minnsta kosti ekki von
á þessum rosalegu vinsældum! Á
þessum tíma voru pönkararnir allir
að breytast í nýrómantíkera og
þarna var ég allt í einu að vinna með
þessa sálartónlist sem ég hafði alltaf
verið að vinna með. Ég hafði aldrei
passað almennilega inn en þarna
opnaðist glufa og ég smaug inn.“
– Og hvernig leist þér á, þegar þú
varst kominn „inn“?
„Alveg frábærlega! Ég var mjög
sáttur. Ég var á réttum stað og á
réttum tíma eins og sagt er.“
Þúsundþjalasmiður
– Þú ert ekki við eina fjölina felld-
ur í tónlistinni og ert að spila með
tex-mex bandi …
„Já, það er bara eitthvað sem ég
fíla. Ég reyni ekki að pæla of mikið í
þessu, ég reyni bara að hlusta á
hjartað. Tex-mexið liggur annars
ekki svo langt frá þessu sálartónlist-
ardæmi sem ég hef verið að fást við.
Ef þú hlustar t.d. á það sem Ry Coo-
der var að gera á áttunda áratugn-
um heyrir þú að það liggja þræðir
þarna á milli.“
– Og þú ert að vinna að nýrri sóló-
plötu var ég að frétta?
„Meira svona lög og lög, ég er
ekki alveg búinn að ákveða hvernig
útgáfuformið verður. Ég hef verið
að vinna þetta eitthvað með þýskum
tónlistarmönnum en einnig dönsk-
um. Þetta kemur í ljós allt saman.“
– Og þá ertu víst líka liðtækur í
eldhúsinu. Þú ert algjör þúsund-
þjalasmiður!
„Ha ha … ég var einmitt að koma
aftur heim eftir fimm daga törn þar
sem við vorum að mynda fyrir mat-
reiðslubókina mína. Ég er þá ný-
kominn úr upptökum á þætti sem
gæti hugsanlega orðið að mínum
eigin matreiðsluþætti. Það er samt
allt á frumstigi. Ég hef mikla ástríðu
fyrir matargerð og það er hægt að
gera svo margt við þetta …“
– Eins og?
„Jaa … ég væri t.d. alveg til í að
opna minn eigin stað. Lítinn
stað …“
„Ungur“ bæði nemur og temur
Eitísstjarnan Paul Young heldur
tónleika í Hörpu á þriðjudaginn
Kappanum margt til lista lagt
Söngvari Paul Young hefur í nógu að snúast í dag þó að frægðarsólin hafi verið hæst á lofti á 9. áratugnum.
Þegar önnur vopn
brugðust beittu
þau töfrum leikhússins
HRAFNAR,
SÓLEYJAR
MYRRA&
„HÉR ER ÞRILLER SEM Á
EFTIR AÐ HRÆÐA ÚR ÞÉR
LÍFTÓRUNA“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
- CHICAGO READER
HHHH
- NEW YORK TIMES
HHHH
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM
STEVEN SODERBERGH KEMUR MAGNAÐUR ÞRILLER
LADDI
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
VICTORIA BJÖRK FERRELL
HANNES ÓLI ÁGÚSTSSON
ÍSAK HINRIKSSON
SIGRÍÐUR BJÖRK BALDURSDÓTTIR
PÉTUR EINARSSON
NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
FORSÝND LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 20 Í EGILSHÖLL
Hugh Jackman er frábær í einni óvæntustu mynd ársins
CONTAGION kl. 5:50 - 8 - 10:20 2D 12 DRIVE kl.5:50VIP -8-10:20 2D 16
CONTAGION kl. 1:30 - 3:40 - 8 - 10:20 2D VIP ALGJÖR SVEPPI kl. 12 - 2 - 4 - 6 2D L
HRAFNAR,SÓLEYJAROG MYRRA kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 2D L CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D 7 HORRIBLE BOSSES kl. 10:20 2D 12
SHARK NIGHT kl. 10:10 3D 16 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 1- 3:30 2D L
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. kl. 12 - 2 - 4 - 6 3D L
REAL STEEL FORSÝNING kl. 8 2D 16 SHARK NIGHT kl. 10:40 3D 16
CONTAGION kl. 8 - 10:30 2D 12 ALGJÖR SVEPPI kl. 2 - 4 - 6 2D L
HRAFNAR,SÓLEYJAROGMYRRA kl. 2 - 4 - 6 2D L DRIVE kl. 8 - 10:30 2D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 2 - 3 - 4 - 5 - 6 3D L CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:20 2D 7
/ EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA
SÝND Í EGILSHÖLL
ÞAÐ GETUR VERIÐ ERFITT AÐ LOSA SIG
VIÐ LEIÐINLEGAN YFIRMANN EN
ÞEIR ÆTLA AÐ REYNA...
SÝND Í ÁLFABAKK, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr.
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
HANN HLÆR FRAMAN Í ÓTTANN
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR MISTER BEAN
ROWAN ATKINSON
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK