Morgunblaðið - 18.10.2011, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
um háskólum. Guðmundur segir
fyrirtækið hafa orðið að einbeita sér
að verkefnum sem krefjast ekki mik-
ils gagnaflutnings en vonir séu
bundnar við nýjan sæstreng til
landsins á næsta ári á vegum Emer-
ald Atlantis, sem lagður verður milli
Evrópu og Bandaríkjanna, með við-
komu á Íslandi. Um öflugan streng
er að ræða sem tvöfalda mun flutn-
ingsgetuna yfir Atlantshafið.
Sveinn Óskar Sigurðsson, sem
unnið hefur að áformum um gagna-
ver fyrir Greenstone hér á landi, tek-
ur undir með Guðmundi um að sæ-
strengir Farice hafi verið hindrun í
uppbyggingu gagnavera hér á landi.
Nær hefði verið fyrir ríkið að hafa
þennan flutning gjaldfrjálsan og
gefa Íslandi þannig samkeppnisfor-
skot. Spurður um áform Greenstone
segir Sveinn þau enn vera uppi á
borðinu þó að þau hafi tafist, m.a.
vegna nýrrar yfirstjórnar hjá við-
skiptavini Greenstone. Blönduós er
enn efstur á blaði sem mögulegur
staður undir gagnaverið.
Félagið Titan Global er sömuleiðis
með sín áform í biðstöðu en áfram er
unnið að þeim. Þá er fyrirtækið Sec-
urStore með gagnaver á Akranesi,
auk útibúa í London og Bandaríkj-
unum.
Fagna gagnaveri Verne
Ljósmynd/Víkurfréttir
Flutningur Gagnaverseiningum frá Colt var skipað á land um helgina í Helguvík og verða þær fluttar að gagnaveri
Verne Global á Ásbrú í dag. Alls er um 37 gámaeiningar að ræða og hefst uppsetning þeirra þegar í dag.
Önnur gagnaversfyrirtæki hér á landi telja gangsetningu Verne Global einnig styrkja stöðu þeirra
Gagnrýna stjórnvöld fyrir framgöngu þeirra og telja flutningsgjald um sæstrengi Farice allt of hátt
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Önnur fyrirtæki og félög, sem starf-
rækja gagnaver hér á landi eða hafa
verið að undirbúa rekstur þeirra,
fagna því að gagnaver Verne Global
sé loksins að komast af stað á Ásbrú.
Telja þau að gagnaverið muni
styrkja stöðu Íslands sem fjárfest-
ingarkosts fyrir gagnaver. Ýmsar
hindranir hafi verið í vegi, eins og of
hátt gjald fyrir gagnaflutning um
sæstrengi Farice ehf.; Farice og
Danice, óhagstætt skattaumhverfi
og tregða stjórnvalda gagnvart er-
lendum fjárfestum.
Thor Data Center hóf starfsemi í
Hafnarfirði fyrir tveimur árum. Að
sögn Guðmundar Gíslasonar fram-
kvæmdastjóra hefur starfsemin
gengið vel en ekki af þeim krafti sem
vonir hafi staðið til í upphafi. Strand-
að hafi á gagnasambandinu, sem sé
of dýrt.
„Farice hefur verðlagt Ísland út
úr samkeppninni og einnig hvernig
stjórnvöld hafa hagað sér. Það tók
yfirvöld langan tíma að samþykkja
lög sem gera Ísland samkeppnishæf-
ara á þessum markaði, en tókst á
endanum,“ segir Guðmundur en
Thor hýsir m.a. gögn fyrir norska
fyrirtækið Opera Software. Einnig
er í undirbúningi verkefni með Há-
skóla Íslands og nokkrum norræn-
Unnið hefur verið að því síðan
um helgi að skipa upp 37 gáma-
einingum í Helguvík sem komu
frá breska fyrirtækinu Colt.
Gámarnir munu hýsa fyrsta
áfangann að gagnaveri Verne
Globel á Ásbrú við Keflavíkur-
flugvöll og hefst flutningur og
uppsetning gámanna í dag. Er
reiknað með að uppsetningin
muni taka um sex vikur og þá
geti fyrsti viðskiptavinur Verne
Global, bandaríska fjarskipta-
fyrirtækið Datapipe, farið að
koma sér fyrir með sín gögn.
Gámarnir verða settir upp í
stórri skemmu á vegum Verne
og taka um 500 fermetra rými.
Pláss er fyrir fimm slíkar ein-
ingar til viðbótar í skemmunni
og vinnur Verne Global að því að
fá fleiri viðskiptavini til lands-
ins, einkum smærri og meðal-
stór fyrirtæki, en áfram er unn-
ið að því að afla viðskipta hjá
stórum upplýsingatæknifyrir-
tækjum. Hjá Verne Global starfa
12 manns í dag.
Uppsetning
hefst í dag
GAGNAVER VERNE GLOBAL
ERU EINS
Engir tve
ir einsta
klingar e
ru nákvæ
mlega e
ins. Þett
a skiljum
við hjá V
erði og þ
ess vegn
a viljum
við kynn
ast
viðskipta
vinum o
kkar bet
ur. Við læ
rum að þ
ekkja þá
svo að þ
eir fái ör
ugglega
þá þjónu
stu sem
þeim he
ntar.
Við viljum
sjá til þe
ss að þú
sért með
réttu try
ggingarn
ar, hvort
sem um
er að ræ
ða líf- og
heilsutry
ggingu,
trygging
u fyrir h
úsið, bíl
inn eða
fyrirtæki
ð.
VIÐ VILJ
UM KYN
NAST ÞÉ
R BETUR