Morgunblaðið - 18.10.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 18.10.2011, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Elsku Pattý er nú farin frá okk- ur og til annarra ástvina. Það er sár og mikill missir. „Er sú vera til sem er svo full- komin að minningin festist ekki á prenti?“ var spurning sem kom upp í hugann þegar ég settist nið- ur til að skrifa þessi orð fyrir hönd fjölskyldunnar frá Njálsgötunni, en þar var æskuheimili Pattý. Það fyrsta og nánast eina sem kom upp í huga okkar allra, var sú gæska, fágun og umhyggja sem einkenndi hana alla tíð. Eitt sinn þegar Lilli bróðir hennar kom úr aðgerð frá lækni var Pattý búin að kaupa sælgæti og knúsaði bróður sinn og sagði að hann mætti leika með allt sem hún ætti, svo honum batnaði sem fyrst. Þá var hann fimm ára og hún fjórtán. Þannig kom hún fram við alla í fjölskyld- unni og aldrei heyrðist frá henni neitt annað en gott um alla og aldrei hafði neinn annað en gott af henni að segja. Þau voru mörg til heimilis á Njálsgötunni og þegar Pattý fór í fyrsta sinn að heiman á sumarver- tíð í Vestmannaeyjum varð þeim öllum ljóst hversu þessi hægláta stúlka fyllti herbergin í húsinu með sólinni sem bjó í sál hennar. Þegar von var á henni til baka var eftirvæntingin svo mikil að allir voru kallaðir saman til að taka á móti henni og hefði mátt halda að hún hefði verið ótalmörg ár í burtu. Þær eru yndislegar minning- arnar sem við eigum úr sumarfrí- um í Kalmanstjörn í Höfnum en þar kom stórfjölskyldan hennar saman á sumrin enda átti hún ætt- ir þangað að rekja þónokkuð marga ættliði aftur í tímann. Pattý og Stína mamma hennar voru báðar stórmyndarlegar í öllu sem sneri að heimili og gátu galdrað fram hina ótrúlegustu rétti í sveitaeldhúsinu. Eftir- minnilegust eru framandi skreyttu smurbrauðin með epla og appelsínusneiðunum, en slíkt var ekki til siðs þá hér á landi. Reglulega fór Pattý líka í bæinn með þvott af allri stórfjölskyld- unni, og sneri til baka samdægurs með allt þvegið og stífstraujað. Þetta gerði hún allt án þess að berast á, og með sínu hægláta fasi, enda hennar háttur að gefa frekar en þiggja. Þær mæðgur voru mjög nánar og mikið saman, og hefur það eflaust verið Pattý mikill missir þegar Stína svo ótímabært féll frá, en með sínu kunna æðru- leysi og umhyggju tók hún þá við því hlutverki að vera tengiliður fjölskyldunnar. Hún hafði ávallt áhyggjur af líðan og heilsu fjölskyldunnar, og þau voru tíð símtölin frá henni til að reka á eftir því að Herdís og Vallý færu í genaprufuna og Kiddi pantaði tíma hjá hjartalækninum, og Lilli bróðir léti fylgjast vel með sér. Í síðasta skipti sem hún talaði við mig og Lilla bróður sinn áður en hún dó, sagði hún að það þyrfti að laga Lilla bróður og Krúsa vin hennar, og passa Herdísi. Það var svo einkennandi fyrir hana að vera að hugsa um aðra, jafnvel þegar hún var sú sem þurfti á hjálp að halda. Hún var falleg að innan sem utan og kemst líklegast næst því sem hægt er að kalla engil á jörðu. Nú er hún að passa engilinn sinn hann Hannes, og við munum Jóna Steinunn Patricia Conway ✝ Jóna SteinunnPatricia Conway (Pattý) fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1941. Hún lést í faðmi fjöl- skyldu og vina á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 8. október 2011. Útför Pattýjar fór fram frá Víði- staðakirkju 17. október 2011. alltaf heiðra minn- ingu hennar, enda minningin heiður í sjálfu sér. Megi guð og gæfan halda utan um Helga, stelpurn- ar og fjölskyldur þeirra, og styðja í gegnum sorgirnar. Fyrir hönd móð- urættmenna frá Njálsgötunni, Herdís Sigurðardóttir. Elskuleg vinkona mín, Pattý, er farin. Hvílík sorg og söknuður nístir hjarta mitt. Og svona snögg- lega. Ég sem var búin að hlakka svo mikið til að eyða meiri tíma með henni í haust og vetur en nokkru sinni áður. Við vorum búnar að vera vin- konur í 53 ár. Það eru fáir jafn- heppnir að eiga slíka vinkonu sem Pattý var. Það var sama hvenær ég hringdi eða kom í bæinn frá Vestmannaeyjum, alltaf var hún tilbúin að koma með mér hvert sem ég þurfti, hvernig sem á stóð fyrir henni. Við grínuðumst oft með það að nú væri Lilla að koma í kaupstaðarferð og versla, kaupa skólaföt eða húsgögn, legstein eða hvað sem var. Hún var stundum búin að undirbúa komu mína, fara í könnunarferðir, athuga verð o.s.frv. Þegar við vorum yngri, með lítil börn, fórum við bara með þau í strætó um alla Reykjavík og keyptum inn. Ég held að ég hafi sjaldan eða aldrei komið í bæinn svo að við hittumst ekki. Það var notalegt að vita af fjölskyldunni hennar og eiga þar alltaf skjól og athvarf, ýmist ég sjálf eða með alla fjölskylduna. Pattý og hennar yndislega fjöl- skylda reyndust mér ómetanlega vel þegar ég missti minn mann, svo óvænt og snöggt sem það var. Fyrir þá vináttu og alla þá hjálp, sem ég fékk frá þeim, þakka ég nú af heilum hug, Helga, manni hennar, Diddu, Systu, Rut. Og Hannesi, syni hennar, þakka ég líka fyrir allt, en Hannes lést fyrir rúmu ári. Það var mikil sorg. Það er huggun núna að orna sér við endurminningarnar með Pattý. Þær hlýja manni og gleðja. Það var oft gaman hjá okkur, bæði innan lands og utan, ekki síst í Ameríkuferðinni okkar þegar við og Bára vinkona hennar vorum að skemmta okkur í mollunum. Og skruppum þangað á nóttunni ef við vorum í stuði og gátum ekki sofnað. Frá fyrsta degi, er við kynnt- umst á Álafossi, og fram á síðasta dag eru allar minningar um Pattý góðar og skemmtilegar og ég er þakklát fyrir að fá að hafa verið hjá henni fram á síðasta dag. Ég og mín fjölskylda sendum Helga, Diddu, Systu, Rut og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við þökkum fyr- ir allt sem þau hafa gert fyrir okk- ur. Pattý, mín elskulega vinkona, hvíli hún nú í friði. Þökk fyrir allt og allt. Aðalbjörg Bernódusdóttir (Lilla). „Góð vinátta gulli betri.“ Kveðja frá vinkonum. Fyrir rúmum 50 árum hittumst við glaðvær hópur ungra meyja þar sem við störfuðum saman um skeið á Álafossi í Mosfellssveit, þar fór fremst á meðal jafninga elsku Pattý okkar sem með sinni hóværu og svolítið stríðnislegu framgöngu hreif með sér unga sem aldna. Við vorum 8 sem höfum haldið hópinn allar götur síðan og það er skrítið að segja að það séu rúm 50 ár liðin því tíminn hefur flogið áfram og nú er hún Pattý okkar farin yfir til Sumarlandsins. Pattý kom úr Reykjavík ásamt einni okkar en við hinar sveita- stelpur af Suðurlandi og ein úr Vestmannaeyjum, dálítið sundur- leitur hópur sem tengdist samt sterkum vinaböndum. Í gegnum árin hefur margt á dagana drifið og vinkonuhópurinn eignaðist börn og buru eins og gengur, alltaf vissum við þó hvor af annarri og nú mörg undanfarin ár höfum við átt frábærar sam- verustundir og nú síðast á heimili Pattýar 7. september í tilefni af af- mæli hennar í ágúst sl. Já, þessi síðasta samverustund var mjög einkennandi fyrir Pattý okkar, hvernig hún sárlasin sinnti sínu gestgjafahlutverki á sinn hógværa hátt, sýndi okkur myndir og rifjaði upp gömlu góðu dagana. Fyrir þessa stund erum við óend- anlega þakklátar. Og nú er komið að kveðjustund og þá er hugur okkar fyrst og fremst hjá eiginmanni Pattýar, dætrunum og fjölskyldum þeirra sem áttu svo sannarlega um sárt að binda fyrir rúmu ári, þegar elsku Hannes féll frá og er það huggun harmi gegn að þau feðgin hittist í Sumarlandinu. Hafðu bestu þakkir fyrir sam- fylgdina, elsku Pattý okkar, þín verður sárt saknað. Þínar vinkonur, Úlfhildur (Úlla), Aðal- björg (Lilla), Ingibjörg (Inga), Unnur, Heiður, Fríður og Þrúður. Alveg er það ótrúlegt hvað líf okkar getur breyst fljótt. Það var fyrir nokkrum vikum sem við Guðný vorum með þeim hjónum Helga og Patty á Akureyri og nokkrum dögum seinna fórum við saman út að borða hér í Reykja- vik, eins og við vorum vön að gera öðru hvoru. Gat ég ekki séð að Patty væri neitt veik, eða hvað þá heldur með ólæknandi sjúkdóm. Við höfum í gegn um tíðina ferðast mikið saman, aðallega er- lendis og höfum farið um allan heim, hvort sem það var til Kína, Kóreu, Dubai eða Singapore, og einnig áttum við nokkuð margar góðar stundir saman í Los Angel- es. Betri ferðafélaga var ekki hægt að hugsa sér hvert og hvar sem farið var. Við vorum góð saman, og aldrei í öllum þessum ferðum kom neitt upp á sem gat skemmt fyrir. Patty og Guðný áttu margt sameiginlegt, og við Helgi gátum talað saman um allt, bæði ástandið hér heima, og svo okkar áhugamál sem voru alls konar viðskipti, og oft voru nú lögð á ráðin í pottinum í LA. Patty var góð kona og hógvær, og stutt var í glettnina, aldrei í öll þessi ár sá ég hana í vondu skapi. Þau Helgi og Patty kynntust ung og unnu saman í Nóa. Man ég svo vel eftir þeim á dansgólfinu í Glaumbæ fyrir mörgum árum, og þá gustaði nú aldeilis af þeim enda dansarar góðir þar á ferð. Eitt var það sem Patty þráði mikið, en það var sólin. Hún gat farið upp á morgnana á undan öll- um í sólbað, og verið þar mest- allan daginn. Hún þoldi sólina vel og var það hennar draumur að komast í sólbað hvar sem hún var, og hvort sem við vorum á sjó eða landi. Einu sinni vorum við saman í Hong Kong og sundlaugagarður hótelsins var lokaður vegna við- gerða, það þótti vinkonu okkar ekki gott, en ekki var kvartað við neinn. Mig minnir að næsta hótel við hliðina hafi getað bjargað hlut- unum. Það er sárt til þess að vita að við fjögur getum ekki farið saman í fleiri ferðir, en minningin um allar hinar sem við fórum í geymast með okkur og hverfa aldrei. Þetta er fjársjóður sem við eigum og munum alltaf getað rifjað hann upp, líka af því Guðný tók mikið af myndum í öllum þessum ferðum, og er það óborganleg minning sem þar verður geymd. Við viljum færa okkar vinum dýpstu samúð, Helga, Diddu, Systu, Rut, og eiginmönnum þeirra ásamt börnum. Megi góður Guð styrkja þau í þessari miklu sorg sem bankar á dyrnar aftur með stuttu millibili. Guðný og Árni Samúelsson. Þann 8. október lést vinkona mín Pattý eftir erfið veikindi. Ég vil minnast hennar með virðingu og þakklæti. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Ég votta aðstandendum Pattýj- ar innilegustu samúð mína. Ingibjörg Jónasdóttir. Elsku Pattý. Þegar komið er að kveðjustund erum við þakklát fyrir samferð okkar í lífinu. Skemmtilegan tíma á ferðalögum, við eldhúsborðið, með börnum okkar og barnabörn- um. Við kveðjum þig með söknuði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Fjóla og Stefán. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á allar þær raunir sem lagðar hafa verið á æskuvini mína, fjölskyldu Helga og Pattýjar, á undanförnum árum. Nú síðast þegar alvarleg veikindi Pattýjar tóku sig upp á nýjan leik og end- uðu með því að hún varð að lúta í lægra haldi fyrir krabbameini. Á kveðjustundu hvarflar hug- urinn til fyrstu kynna fyrir þrjátíu og sex árum. Við vorum nýflutt í Norðurbæinn í Hafnarfirði og ég bankaði upp á í húsinu á móti. Ég vissi að þar ættu tvær systur heima sem mig langaði að kynn- ast og leika við. Þá tók Pattý á móti mér, há, dökk yfirlitum og glæsileg. Upp frá þeirri stundu varð til sú trygga og góða vinátta við fjölskylduna sem ég hef átt síðan. Alltaf voru vinir barnanna velkomnir á heimilið og oft var líf og fjör. Oftar en ekki kom það í hlut Systu og Diddu að passa litla bróður, rauðhærða fjörkálfinn, hann Hannes heitinn, og síðar Rut þegar hún bættist í hópinn. Sé hægt að tala um konuna á bakvið manninn, þá á það sérlega vel við í tilviki þeirra hjóna. Pattý, konan í lífi Helga í Góu, var sú sem tók að sér flest þau störf sem til féllu í fyrirtækinu alla tíð. Þau hafa algjörlega „unnið með hönd- unum“ allt sem þau hafa byggt upp og eignast. Fyrirtækin blómstra nú í höndum fjölskyld- unnar allrar enda börnin fengið í arf þennan mikla kraft og ósér- hlífni. Á sama tíma bjó Pattý fjöl- skyldunni sérlega fallegt heimili sem bar glöggt vitni mikilli smekkvísi hennar. Alltaf hefur hún líka verið boðin og búin að að- stoða með barnabörnin sem sakna nú sárt ástríkrar ömmu sinnar. Pattý bjó yfir miklu jafnaðar- geði, var ákveðin en mjög traust og ljúf. Enda var hún elskuð og dáð af vinum sínum og mörgum sem starfað hafa með henni. Hún var hógvær en skemmtileg og ræðin í góðra vina hópi. Það var alltaf gaman að spjalla yfir kaffi- bolla og hún fylgdist vel með straumum og stefnum. Samband hennar og barnanna var einstak- lega náið. Dæturnar sjá nú af ynd- islegri og ráðagóðri móður sem var þeim sem hin besta vinkona. Örlæti og innileg samkennd, ekki síst með þeim sem minna mega sín, var rík í lífi Pattýjar. Einatt var hún boðin og búin að rétta fram hjálparhönd. Víst er að fáir hafa reynst hinum ýmsu ein- staklingum og öðrum aðilum jafn gjafmildir og þau hjónin. Full rétt- lætis og náungakærleiks hafa þau lagt drjúgan skerf til samfélagsins í formi alls kyns gjafa, styrkja og annarrar aðstoðar. Velgengni fyr- irtækjanna hefur aldrei nokkurn tíma stigið þeim til höfuðs. Sjálf hafa þau ætíð gætt hófs, verið nægjusöm og jarðbundin, algjör- lega í tengslum við uppruna sinn. Það eru dýrmætir eiginleikar sem lýsa vel þeirra mannkostum. Elsku vinir, það er ólýsanlega sárt að kveðja enn á ný og missir ykkar er mikill. En með ykkar einstöku samheldni og hlýju mun- uð þið styðja hvert annað og sá dagur kemur að minningarnar munu ylja og sólin fer aftur að skína í hjörtum ykkar. Hennar tími var búinn hér á jörðu – við trúum því að mæðginin hafi sam- einast aftur. Blessuð sé minning yndislegrar konu. Rósa Guðbjartsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Jónu Steinunni Patriciu Conway bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐMUNDA STEINUNN GUNNARSDÓTTIR, Árskógum 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 9. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför og sendum sérstakar þakkir til heimahlynningar og starfsfólks líknardeildarinnar fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Marsibil Jóna Tómasdóttir, Jens P. Clausen, María Tómasdóttir, Guðmundur Kr. Tómasson, Elínborg J. Ólafsdóttir, Finnur Tómasson, Hrefna Böðvarsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA SIGRÍÐUR ERLENDSDÓTTIR, Garðvangi, áður til heimilis að Birkiteigi 3, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi laugar- daginn 15. október. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 26. október kl. 14.00. Erlendur Karlsson, Elísabet Andrésdóttir, Vilborg Tryggvadóttir MacNealy, Christopher MacNealy, Sigmar Scheving, Linda Helgadóttir, Davíð Scheving, Harpa Frímannsdóttir, Andrés Már Erlendsson, Linda Malín Erlendsdóttir, Sandra Ösp MacNealy, Andri Scheving, Birgitta Kristín Scheving, Lovísa Scheving, Lilja Scheving, Birgir Scheving. ✝ Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, EGILL ARNÓR HALLDÓRSSON bókasafnsfræðingur og skylmingameistari, sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 8. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 19. október kl. 13.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, AGNAR R. HALLVARÐSSON, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. október kl. 15.00. Magnúsína Ólafsdóttir, Ómar R. Agnarsson, Kristín M. Sigurðardóttir, Hallvarður Agnarsson, Guðrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.