Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Að kvöldi laugardagsins 8.
október var mér færð sú fregn,
að Ingþór, góðvinur minn til
fjölda ára, væri látinn. Við höfð-
um hvorki hist né haft síma-
samband um alllangt skeið og
því kom harmafregnin um veik-
indi hans og andlát okkur í opna
skjöldu. Fyrir réttum sex vikum
var hann staddur í borginni
þeirra erinda að fagna afmæli
sonar síns ásamt börnum,
barnabörnum og fjölskylduvin-
um. Eftir að komið var heim á
Patreksfjörð hafði hann kennt
sér aukinna óþæginda og sárra
verkja í baki. Ekki reyndust
hefðbundin verkjalyf nægja til
að lina vanlíðan og þrautir,
þannig að afráðið var að hann
mundi leita sér lækninga fljót-
lega.
Börn hans áttuðu sig á að að-
eins væri eitt að gera. Dætur
Ingþór Hallberg
Guðnason
✝ Ingþór Hall-berg Guðnason
fæddist 18. sept-
ember 1942 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
8. október 2011.
Útför Ingþórs
fór fram frá Foss-
vogskirkju 17.
október 2011.
hans þær Björg og
Ásdís óku í skyndi
vestur, vitjuðu föð-
ur síns og fluttu
hann samdægurs
sjúkan og sárkval-
inn á bráðamóttöku
í Reykjavík. Við
rannsókn kom í ljós
að um krabbamein á
háu stigi var að
ræða. Á sjúkrabeði
hafði hann aðeins
örfárra daga dvöl þar til er yfir
lauk. Systkinin skiptust á að
vaka yfir föður sínum og voru til
staðar á andlátsstundu.
Það eru góðar minningarnar
sem tengjast Ingþóri. Hann var
fastheldinn á vini – eins og
margir í hans stjörnumerki –
nákvæmur og skipulagður í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur. Í
góðra vina hópi var hann hinn
mesti stemningsmaður, opinn og
glaðsinna, gamanmál og spaugs-
yrði lágu honum létt á tungu.
Auk þess var hann sannkallaður
höfðingi heim að sækja.
Ingþór var hugsandi maður
og andlega sinnaður. Ekki bein-
línis trúaður, heldur opinn og
leitandi efasemdarmaður, vit-
andi það að oft má efast um ef-
ann sjálfan. Oft var rætt um lífið
og tilgang þess, einnig það óhjá-
kvæmilega sem alla hendir, að
deyja jarðlífinu í þeirri vissu að
lífið haldi áfram og að viðskiln-
aðurinn sé aðeins ein af mörgum
birtingarmyndum lífsins eina
sem umlykur allt – og er allt.
Félagslyndur var Ingþór og
vann af alhug Kiwanishreyfing-
unni allt það gagn sem hann
mátti. Hann var einn stofnfélaga
Kiwanisklúbbsins Elliða árið
1972 og gegndi þar fjölda trún-
aðarstarfa um langt árabil.
Á árum áður var mikill sam-
gangur á milli fjölskyldna okkar,
enda eiginkonur okkar náskyld-
ar og dætur beggja á svipuðu
reki. Ég sé fyrir mér Ingþór
kornungan og framsækinn, sí-
vinnandi og harðduglegan með
konunni sinni ungu, Valgerði
Guðmundsdóttur, komandi sér
upp heimili á æskuslóðum Val-
gerðar á Baugsvegi í Skerjafirði
og síðar í Urðarbakka í Breið-
holti.
Á þeim tíma voru húsbyggj-
endur gjarnan allt í öllu, en
dugnaður og samheldni þeirra
Ingþórs og Völu fleytti þeim yfir
alla þá hjalla sem á vegi hús-
byggjenda verða. Til þeirra var
alltaf gott að koma. Gestrisni og
glaðvært viðmót mætti þeim
sem þar áttu leið um.
Fjölhæfir einstaklingar – eins
og Ingþór – koma víða við og
finna hæfileikum sínum farveg
við fjölda starfa á langri starfs-
ævi. Við kveðjumst nú með
söknuði en þökkum Ingþóri þær
mörgu minningar sem löng og
farsæl kynni leiða af sér.
Ég votta börnum Ingþórs og
aðstandendum öllum mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Sigvaldi Snær Kaldalóns.
Í dag er kvaddur góður
drengur og Kiwanisfélagi okkar
til margra ára.
Ingþór gekk í Kiwanisklúbb-
inn Elliða árið 1972 og var einn
af stofnfélögum, hann gegndi
mörgum trúnaðarstörfum innan
Kiwanishreyfingarinnar var
forseti Elliða árið 1974 til 1975,
svæðisstjóri Þórssvæðis 1979
til 1980, umdæmisféhirðir 1981
til 1982, umdæmisstjóri um-
dæmisins Ísland Færeyjar árið
2001 til 2002.
Ingþór var glæsimenni, kurt-
eis og þægilegur í allri um-
gengni, við eigum margar góð-
ar minningar um
samverustundir með honum í
gegnum árin þá sérstaklega
meðan hann bjó enn á Reykja-
víkursvæðinu en þrátt fyrir að
hann flytti búsetu sína út á
land hélt hann alltaf tryggð við
sinn gamla klúbb og sótti fundi
eftir því sem kostur var síðustu
árin.
Það voru sorgarfréttir sem
bárust þegar okkur var til-
kynnt að hann hefði verið flutt-
ur fársjúkur á Landspítalann í
Fossvogi þar sem hann and-
aðist laugardaginn 8.10.
Við Elliða-félagar og eigin-
konur okkar vottum börnum
hans okkar dýpstu samúð og
þökkum Ingþóri samfylgdina.
F.h. Kiwanisklúbbsins Elliða,
Guðmundur Heiðar
Guðmundsson.
Það kemur upp margt í huga
manns þegar maður minnist
Eddu eins og hún var oftast
kölluð. Ég kynntist henni fyrir
tæpum tuttugu árum síðan þar
Hafdís Edda
Eggertsdóttir
✝ Hafdís EddaEggertsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. október 1947.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 8. október
2011.
Útför Hafdísar
fór fram frá Digra-
neskirkju 17. októ-
ber 2011.
sem hún var í
kristilegu hjálpar-
starfi í Jerúsalem í
samfélagi þar sem
ég kom einnig. Það
sem ég tók fyrst
eftir var hennar
mikla gleði, friður
sem geislaði frá
henni á samkom-
um. Hún var ekki
hrædd við að lyfta
höndum og segja
hallelúja, einnig dýrð sé Guði
og amen, um leið sá maður
hennar brosandi andlit sem
lýsti hennar sannfærandi trú.
Þessi trú var svo sönn og
eðlileg. Ég hafði þá gleði að
hafa Eddu með í þrem hóp-
ferðum til Ísraels. Hún var
alltaf svo hamingjusöm að
geta verið stuttan eða lengri
tíma í Jerúsalem. Það sem
Edda þráði mest af öllu, var
að vinir og ættingjar gætu öðl-
ast þennan frið og gleði sem
trúin var henni. Hún fór á
samkomur þar sem hún fann
samhljóm í þeirri trú sem var
henni svo mikils virði. Edda
fann sig heima í samfélaginu
Vonarhöfn í Hafnarfirði, þar
sem hún átti góða vini. Edda
gerðist einnig samherji í
Hjálpræðishernum í Reykja-
vík, þar gat hún frjálslega lof-
að frelsara sinn, einnig kraup
hún oft þar við bænabekkinn.
Eftir að Edda greindist með
alvarlegan sjúkdóm, aftraði
henni ekki að taka þátt í
kristilegu hjálparstarfi á
Lækjartorgi í Reykjavík um
helgar, þar sem vegfarendum
var boðið kaffi og um leið
fengu tækifæri að segja frá
hinum sanna friði og gleði sem
getur gefið nýtt líf.
Nokkuð oft hittumst við á
kaffiveitingastöðum og hafði
Edda mestan áhuga á að tala
um Ísrael og hve hún þráði að
fara þangað aftur. Til fyrir-
heitna landsins var hennar
mesta þrá, einnig að sem flest-
ir gætu öðlast sanna trú.
Margir sakna gleði hennar
og kærleika. Hún átti trú sem
kom fram í lífi hennar. Nú hef-
ur Edda öðlast sanna hvíld. Ég
trúi, að einn dag eigum við eft-
ir að hitta Eddu þar sem hún
verður framarlega í lofgerð-
inni, sem ekki tekur enda.
Þakka fyrir að hafa kynnst
henni.
Ólafur Jóhannsson.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Húsnæði íboði
HERBERGI TIL LEIGU
fyrir kvk. Eldhús og bað með
þvottavél, nálægt Hlemmi.
Uppl. í s. 661 5219.
Geymslur
Húsbílar, hjólhýsi, ferðavagnar
og bílar
Erum að opna geymsluhúsnæði á
Suðurnesjum. Upphitað. Góð
lofthæð. Sími 898 7820.
Gónhóll Eyrarbakka
mttp://www.gonholl.is
Vetrargeymsla
Geymdu gullin þín í Gónhól.
Húsbíl-húsvagn-tjaldvagn o.fl.
Skráðu sjálf/ur:
http://www.gonholl.is
Uppl. og pantanir í s. 771-1936.
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Frysti- og kæliklefar til sölu
Myndin sýnir stærð: 2 x 3 x 2,5 m.
SENSON, sími 511-1616.
senson@senson.is
Rýmum! 30% afsláttur
á vönduðum úrum. Þessa viku
rýmum við fyrir nýjum úrum og
seljum eldri úr með afslætti.
Gríptu gæsina, eignastu vandað
úr með 2ja ára ábyrgð.
ERNA, Skipholti 3, s. 5520775,
www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
SÖLUSKOÐANIR BIFREIÐA
Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn
greina ástand hans áður en þú
gengur frá kaupunum. Skoðunin
kostar frá kr. 9.900. Ekki þarf mikið
til að hún borgi sig margfalt. Fáðu
aukna vissu í bílakaupin með
söluskoðun Frumherja.
Tímapantanir í síma 570 9090.
Frumherji –
örugg bifreiðaskoðun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Bílar aukahlutir
BÍLAKERRA Bílavagn
Árgerð 2008. Góð kerra með raf-
magnsspili, skoðar skipti. Verð
990.000. Upplýsingar í síma 6952015.
Bill.is
577-3777,
Malarhöfða 2.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýju og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
GUÐMUNDAR ÁRNASONAR,
Holtagerði 14,
Kópavogi.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Salóme Gunnlaugsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
HALLDÓR BJARNASON,
Stórakrika 1A,
Mosfellsbæ,
lést föstudaginn 7. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 19. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag langveikra
barna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðjón Pedersen, Oddur Örn Halldórsson,
Bjarni Halldórsson, Kirstín Lára Halldórsdóttir,
Lárus Halldórsson, Anna Dúna Halldórsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
MARÍU J. JAKOBSDÓTTUR,
Víðivangi 12,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhann G. Bergþórsson, Arnbjörg G. Björgvinsdóttir,
Kristján G. Bergþórsson, Sóley Örnólfsdóttir,
Bergþóra M. Bergþórsdóttir, Björn Sveinsson,
Steindóra Bergþórsdóttir, Sæmundur Stefánsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og hlýju vegna fráfalls ástkærrar
konu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SIGRÍÐAR LÖVE
bókasafnsfræðings.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins á Mörk fyrir einstaka hlýju og vinsemd.
Jón Steingrímsson,
Steingrímur Jónsson, Guðrún Olga Einarsdóttir,
Þóra Jónsdóttir, Júlíus Lennart Friðjónsson,
Vigdís Löve Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.