Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 7

Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 7
leikur sér að orðunum eins og drengur sem tekur í sundur leikföng sín þartil hann eyðileggurþau. Það er engin skynsemi til í hinum ytri heimi, milli hans og tilfinninga mannsins er óyfirstíganlegt hyldýpi sem ekkertfær brúað nema kvölin sem fylgir honum hvert sem hann fer. Þessa bölsýnu lífsskoðun undirstrikar Vallejo enn frekar í næstu Ijóðabók sinni, Poemas humanos, eða Ijóðun- um um manninn. Þar fellur aðal- áherslan á sterilt og firrt líf mannsins í stórborginni, smæð hans og valdleysi þrátt fyrir mannfjöldann, fátæktina, óttann og einsemdina sem sífellt ógna honum. Þessi Ijóö yrkir Vallejo í París, hann kemurþangaðá millistríðsárunum, lífið hefur ekki fallið í sömu skorður og fyrr °9 kreppan mikla er í uppsiglingu. í borginni ríkir örbirgð og vaxandi atvinnuleysi, vaxandi einsemd, vax- andi tómlæti. Vallejo er peningalaus Þegar hann fer til Evrópu og býr við miklar þrengingar í þessari háborg Hstanna, einkum þó fyrstu árin. Seinna meir fór hann að skrifa um bókmenntir í hlöö sem gefin voru út af rómansk- amerískum innflytjendum, en þeir voru fjölmennir í París. Hann giftist svo franskri stúlku, Georgette. Nýkominn til Parísar^þvælist hann úr einum íverustaö í annan, sefur stundum í almenningsgörðum, borðar eintómar kartöf lur. Sagt er að hann haf i komið sér upp sérstökum aðferðum til aö komast betur af með það litla sem bann hafði; hann forðaðist að setjast hiður til aö slíta síður frakka sínum og bafði eitthvert ákveðið lag á því aðfara ut úr metró (þar svaf hann einnig stundum) þannig að hann hlíföi skóm sínum! þótt þungt sé í Vallejo (h)ljóöið um hlveruna tekst honum að gera sína ei9in kvöl að algildum sannleika ^onnsins í nútímalífi borgarinnar. Sjálfur skrifaöi hann á þessa leið: „Það vel kunnugt að því persónu- oundnara sem næmi listamannsins er Peim mun algildara og sameigin- legra veröurverk hans.“ Og þó svo Ijóð hans séu oft bitur og örvæntingarfull hefur Vallejo einnig til að bera ríka samúð með manninum en hún á rætur sínar í djúpri skynjun hans á þján- ingunni og er líklegast að einhverju leyti arfur frá hans trúarlegu mótun í bernsku. Vallejo er því langt í frá að vera einfaldur, þvert á móti er hann mjög samsettur og jafnvel mótsagna- kenndur, býr yfir allskyns togstreitu. Hann tjáir kaldranalega hart vonleysið á einum stað og síðan blessar hann eins og Kristur allt sem lifir og dregur andann og þjáist. Eða eins og hin eilífa mater dolorosa sem grætur yfir börnum sínum. Hann blessar jafnvel hina ríku, - en Vallejo gerðist kommún- isti á Parísarárum sínum þótt Ijóð hans séu ekki pólitísk að því leyti aö þau eru engin herhvöt, þar er ekki að finna bjartsýna þróunarhyggju marxismans. Heldur eru þau fyrst og f remst nakin og persónuleg, og geta sem slík orðið mjög nærgöngul lesandanum. Auk þess bregða þau upp lifandi mynd af vissum aðstæðum, hugmyndum og kenndum þessa tímaskeiðs. En það er ekki síst meðferðin á tungu- málinu og óvænt samhengi hlutanna sem gerir Ijóð Vallejos svo merkileg og sterk, auktilfinningarinnar sem ereins og stríóur flaumur; Ijóðin eru það sem þau lýsa. Og það sýnir frábært næmi hans og f rumleik að áhugi bókmennta- manna hefur aukist jafnt og þétt á þessu perúska skáldi allrasíðustu ára- tugina og enn eru menn að uppgötva eitthvað nýtt í fórum hans. Hann var þó ekki mikils metinn á sinni tíð og svo fór að Poemas humanos var gefin út að honum látnum, ásamt síöustu Ijóðum hans sem saman bera heitið: Spánn, tak frá mérþennan kaleik. Þau Ijóð greina frá borgarastríðinu á Spáni og enn tekst Vallejo að skapa algildan og Ijóörænan sannleika um baráttu mannsins og fórnir. Þar verður goösagan lifandi: lífið berst við dauðann, allt gjörvallt mannkyniðberst við dauöann í einni allsherjar einingu, þar verður útópían að veruleika, paradís mannsins endurheimt: Og aöeins dauðinn mun deyja! Einn af þeim mörgu sem hafa skrifaö um Vallejo, Guillermo Sucre, segir í þessu sambandi: „Af þeim sem skrifuðu um þetta efni er Vallejo einn af fáum sem litu á spænska stríðið sem eitthvað meira en pólitíska og hug- myndafræöilega baráttu: það varð um leið sannverðugt og algilt drama andans og okkar tíma.“ Árin 1936-38 fer Vallejo hamförum í yrkingum, þá verðurtil stærstur hlutinn af Poemas humanos og Spánarljóöin. Að vorlagi 1938 leggst hann veikur, það var ári fyrir endalok spænska borgarastríðsins en þegar fyrirséð um dapurlegan endi þess. César Vallejo deyr þetta vor, en dánarorsök er ókunn. T alið var að Spánarstríðið hefði oröið honum að aldurtila ásamt langvinnri vannæringu. Og þegar gagnaugað slær sinn þunga taktfasta slátt þegar svíóurundan svefni hnífseggjarinnar langar mann að eiga athvarf í þessu Ijóöi. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.