Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 25
SIGURLAUG GUNNLAUGSDOTTIR
BYLTING ER FÆÐING LJÓSSINS
Það sem hér fer á eftir eru kaflar úr
viðtali sem birtist upphaflega í apríl
1985, í El Caimán Barbudo (Skeggj-
aöa krókódílnum), bókmenntatímariti
sem kemur út á Kúbu. íslenska þýð-
ingin er byggð á enskri útgáfu
viðtalsins í tímaritinu New Inter-
national: A Magazine of Marxist
Politics and Theory 1987. Viðtalið tók
Bernardo Marqués, en viðmælandi
hans, Tomas Borge, er innanríkis-
ráðherra í Nicaragua, en hann var
meðal stofnenda Þjóðfrelsisfylkingar
Sandinista árið 1961.
í heild sinni snýst samtal Borge og
Marqués um samspil menningar og
samfélags, eða öllu heldur sið-
menningar og stéttabaráttu. Ritstjórn
Tenings hefur heimilað mér að birta
rúmlega það sem snýr að menningar-
málum, en ég vildi reyna að hala inn
það forskot sem borgarastéttin á
íslandi hefur í umfjöllun um menninar-
viðburði í Mið-Ameríku og Karíba-
hafinu. Það er slæmt fyrir mína stétt
að borgarastéttin ein skuli til dæmis
túlka leiklistarhátíó í Havana á
Kúbu. Fyrir vinnandi stéttir er lífs-
spursmál að skilja að byltingarnar
sem eiga sér staö fyrir framan nefið á
okkur eru ekki skrípaleikur heldur
menningarviöburöir og inngangur að
framtíðinni.
Þú sagóir fyrir nokkrum árum í
Bluefields að með söngva eins og
Carlos Mejia Godoy semur hefóu
Nicaraguanar ekki getað komist hjá
Því að gera byltingu. í þessari
staðhæfingu felst að listum sé einnig
ætlað byltingarsinnað hlutverk. Má ég
biðja þig að skýra þetta.
Ég sé sterk gagnkvæm tengsl milli
byltingarog lista. Tónlist Carlos Mejía
Godoy virkaði eins og sveit baráttuliöa
í vitund Nicaraguana, áróðurssveit,
án þess þó að glata sérkennum
sínum sem list, uppruna sínum eða
hörundslit okkar. Ég held að í róm-
önsku Ameríku beinist tónlistin að því
að opna flóðgáttir byltingarinnar.
Fagurfræðilega sinnaðir gagn-
byltingarmenn, - það er að segja
smekklausir þöngulhausar, skrif-
finnar, - neita hins vegar þeim
möguleika. Þeir hafna rétti listamanna
til listsköpunar.
Tónlist á Kúbu og í Nicaragua hefur
sömu samnefnara: í miöju mikilla
félagslegra umbrota skapar og tjáir
alþýðan sig gegnum trúbadora, Ijóð-
skáld, leikritaskáld - það er að segja
gegnum spámenn. Þetta er hin æva-
gamla barátta milli hins gamla og
þess nýja. Byltingar koma með ný-
sköpun vegna þess að bylting er
ekkert annað en meiriháttar breyting í
vitund mannsins; hún opnar mögu-
leikann á samspili milli mannsins,
tunglsins, sólarinnar og dráttar-
vélanna.
Leiklist...
Ég held að leiklist sé á mótunarstigi í
Nicaragua, því hún er náttúrlega ekki
auðvelt viðfangsefni. Við höfum hafið
gönguna, en við erum rétt að byrja.
Við höfum rætur, fjölþættar rætur sem
við verðum að notfæra okkur til að
skapa skóginn.
Ég veit ekki á hvaða stigi kúbönsk
leiklist er, en ég hef séð leiklist
alþýðunnar í Kólumbíu. Leikrit sem
töluðu til venjulegs fólks, um
vandamál sem þaö stendur and-
spænis, hverfulleika þess, dagleg
þrætuefni, kynlífshömlur, stétta-
baráttuna, áhyggjuefni þess. Við
eigum að gefa meiri gaum að
leiklistinni vegna þess að við erum rétt
að byrja að sjá hana bera brum: Það
er tjáning sem endurheimtir hefðir frá
árunum eftir landafundina og alda-
langt afskiptaleysi slævði eða týndi
niður. Við verðum að láta hendur
standa fram úr ermum; það er fullt af
áhorfendum og sviðið risastórt.
Þú hefur sagt að þú munir aldrei gefa
Ijóóin þín út. Hvers vegna?
Ég hef sagt að ég sé Ijóðskáld á laun.
Ég hugsa að ég ætti að skýra það
betur, en einhvern tíma seinna. Ég
skal segja þér að ég hef leynda ást á
svo mörgu.
Einhvers staðar, í einhverju blaöi, var
sagt að ég væri á laun hrifinn af
surrealisma og það er rétt. Það var
einnig sagt að ég væri á laun hrifinn af
Kúbu. Það eru ekki til meiri ósannindi.
Ást mín á Kúbu er ást sem öllum er
kunn, á fólkinu þar, á þeirri fegurð
sem byltingin hefur komið til leiðar.
Ást mín er ást sem gengur um
göturnar og er ekki hrædd við að
nefna þetta nafn.
Á sextugsafmæli Ernesto Cardenal
sagðir þú aó þér þætti mest koma til
Epigrammanna eftir hann, þetta væru
ástaljóð sem þú vildir hafa skrifað. Þú
23