Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 19

Teningur - 01.05.1988, Blaðsíða 19
að segja að þaö minnti á glugga, samt sem áður vil ég ekki fullyrða þaö. En þegar þið taliö um landslag annars vegar og „interior" hinsvegar þá eru þessar andstæður eins og hver annar efniviöur fyrir mér, eins og t.d. deigið er fyrir bakarann. Svo helgar andinn meöalið. Kannski er hægt að rekja þetta inní sálarlíf mitt, ég veit þaö ekki. Bílalakk og steinsteypa. Höfóa vinnu- brögö iönaðarmanna til þín? Það er hugsanlegt, ég hef komiö víða við í lífsstarfinu. En mér finnst gaman að svona „spontan" vinnubrögðum. Að búa til mót, hella í og fá út lista- verk, það er spennandi. Eins þegar einhver annar framkvæmir verkið fyrir mig líkt og sprautuverkið sem þú minntist á áðan sem var gert af fag- mönnum á þeim vettvangi. Það gefur verkunum ákveðna fjarlægð gagnvart mér, sem mér líkar stundum, ekkert puttanudd. Hvernig færö þú hugmyndir? Mjög snögglega. Vissulega er alltaf aðdragandi, maður er stöðugt að velta hlutunum fyrir sér. Ákveðin kvöm sem aldrei stoppar. En lausnirnar koma yfirleitt snögglega og það gerist bókstaflega undir öllum kringum- stæðum. Yfirleitt líöur samt langur tími þar til þær hljóta endanlega náö og margt fer aftur í sorpið. En teikningar eins og þú sýndir eitt sinn á Nýlistasafninu? Það er alveg útilokað fyrir mig að setjast niður klukkan níu að morgni og ætla að fá hugmyndir. Það er þá ekki nema til að fullvinna hugmyndir, gera mér grein fyrir formi og stærðum og þess háttar. Yfirleitt breytast þær ekki samt mikið frá fyrstu gerð. En varð- andi þessar teikningar sem ég geri þá le99 ég afskaplega lítið myndrænt uppúrþeim. í raun og veru hefur mér alltaf leiðst teikning, svona effekta- nudd. Stundum geri ég einstaka seríur eins og þá sem ég sýndi í Nýlistasafninu, geng útfrá einhverri hugmynd. Listin er svo mikið meira en bara vinna, eins og svo margir vilja æeina. Að minnsta kosti öðru vísi vinna.annarsværiégtilsjós. Þaðeru Yfirlit, Nýlistasafniö 1983. Málverk og Ijósmyndir, teikning, steinsteypuskúlptúr. oft átök og ég tek hlutskiptið nærri mér. Þanning er þetta með mig. Hver er hugur þinn til útiskúlptúra ? Ég hef aldrei unniö mína skúlptúra meö það fyrir augum að hafa þá utan- dyra. Við Noröurlandahúsið í Fær- eyjum fékk ég einu sinni verkefni, og þá vann ég útfrá skissum sem ég átti Kjarvalsstaöir 1987. Steinsteypa og setti skúlptúrana út. Ég er afskap- lega gagnrýninn á útiverk eins og þeim hefur verið komið fyrir í borgarlandinu. Mér finnst líka þessar samkeppnir sem hafa verið undan- farið út í hött. Ég veit ekki hvort ég ætti að vera aðfara út í þá sálma hér, það yrði of langt mál. Þessar sam- 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.