Teningur - 01.05.1988, Síða 50
NLJTÍMA ÞJÓÐSAGA
SKRÁÐ HEFUR BJÖRGÓLFUR ÓLAFSSON
Á öldum áöur er þjóöin bjó í dreiföum
sveitum landsins var sú dægradvöl
helst aó hlýöa á sögur. Og mikil íþrótt
þótti að geta sagt góöar sögur. Sagðar
voru sögur um flest milli himins og
jarðar, um sumt í himnum, um fleira
neöan jarðar. Margar lifðu sögurnar í
sveitunum mann fram af manni, öld
eftir öld, nýjar mynduðust en aðrar
gleymdust. Sögurnar breyttust og
öðluðust nýtt líf í hvert sinn sem þær
voru sagðar, allt þar til spakir menn
komust að því að fólkið beiö þess með
óþreyju að geta flust til borga og þeir
héldu að í borgum gætu sögur ekki
lifað og þeir óttuðust að þar gleymdust
þær. Og því ferðuðust þeir um landið
þvert og endilangt og söfnuðu
sögunum saman, kölluðu þjóðsögur
og lokuðu þær inni í bókum. Og þjóðin
tók ánægð við bókunum og stakk
þeim upp í hillu.
En að halda að þar með hverfi
þjóðsagan væri mikil fákænska. Því á
meðan þjóðin lifir, grætur og hlær,
eygir glæsta drauma og sýtir brostnar
vonir myndast í umhverfi hennar iða
kynjamynda þar sem allt litróf mann-
legra tilfinninga leikur lausum hala.
Þjóðsagan lifir, en rétt eins og
mannfólkið og umhverfið skiptir hún
um svip.
Því skulum við, ég og þú lesandi
góður, takast í hendur, lygna aftur
augum, tæma hugann og líða um
borgina að næturþeli, draga djúpt
andann, mjög djúpt og leyfa auðugu
andrúmsloftinu að leika um skilningar-
vitin og okkur vitrast ungur maður í
afskekktri sveit og ungi maðurinn flyst
til borgarinnar og höndlar hamingj-
una, en síðar kveður ógleðin dyra og
maðurinn örvæntir og sagan verður
ævintýri líkust er norn bjargar sögu-
hetju okkar á elleftu stundu og allt
getur gerst og ekkert er sem sýnist:
Einu sinni ekki alls fyrir löngu var
ungur maður Ólafur að nafni. Ólafur
ólst upp í koti afa síns og ömmu í einni
afskekktustu sveit landsins. Þegar
hann nálgast fullorðinsárin dreymdi
hann um að flytjast á brott og reyna
fyrir sér í borginni, en af því gat ekki
orðiö því karl og kerling voru orðin
gömul og þurftu Ólafs við. En dag einn
síðla veturs hné karl dauður niður en
kerling lagðist í kör. Henni fór hrak-
andi með hverjum deginum og sjö
dögum eftir lát karlsins sagði hún Ólafi
að nú væru dagar hennar taldir. Hún
kvaðst hafa lifaðfábrotnu lífi, aldrei þó
þurft að líða skort og alla tíð veriö
hamingjusöm því allt frá fæðingu hefði
heilladís fylgt henni og vakað yfir
velferð hennar. Engar átti hún eignir
sem nokkurs væru virði en ekki mundi
hún þó skilja hann aleinan og alls-
lausan eftir í þessum heimi því
eftirleiðis fylgdi heilladísin honum.
Hennar ósýnilegi máttur mundi stýra
honum á braut gæfunnar en aldrei
mundi hún birtast honum nema svo
ólíklega vildi til aö hann rataði fram á
ystu nöf örvæntingarinnar. Að lokum
bað amma Ólaf að lifa í sátt og sam-
lyndi við menn og náttúru, lauk aftur
augunum og dó.
Þótt afi og amma Ólafs hefðu lifað og
hrærst í hugarheimi fortíðarinnar var
Ólafur maður 20. aldarinnar og
minntist hjals ömmu sinnar um
heilladísir með góðlátlegri kímni,
svipað og þegar börn borgaranna
heyra sögur af álfum eða tröllum. Nú
fluttist Ólafur líka til borgarinnar,
byrjaði nýtt líf og freistaði gæfunnar og
þó að honum hefði þótt innilega vænt
um afa sinn og ömmu veröur ekki
annað sagt en þungu fargi hafi veriö af
honum létt við fráfall þeirra. Ólafur
f ékk prýðisgóöa vinnu á lager hjá einni
stærstu heildverslun landsins og
samdi ágætlega við samstarfsmenn
sína þrátt fyrir hlédrægni sína. Já vel
á minnst - hlédrægni Ólafs. Það var
einmitt hún sem dró athygli Álfdísar
að honum. Álfdís var ekki bara svona
sæt og kát stúlka eins og er á hverri
heildsalaskrifstofu og allir strákarnir á
lagernum eru bálskotnir í og blístra á
eftir og gefa undir fótinn, því hún var
einnig dóttir forstjórans og eiganda
fyrirtækisins og því líka barnabarn
stofnanda heildsölunnar sem af hékk
risastór mynd á skrifstofu forstjórans.
Og Ólafur vakti einmitt athygli Álfdísar
fyrir, að því er henni virtist, áhugaleysi *
hans á henni. Álfdísi fannst ótækt að
strákur ynni á lagemum sem ekki var
skotinn í henni og gaf sig því meira að
honum en annars hefði orðið. Og
Álfdísi leist nokkuö vel á Ólaf, altént
nógu vel til að tæla hann bakviö
stæður af klósettrúllum á lagernum
þegar árshátíö heildsölunnar stóð
sem hæst. Næstu daga þoröi Ólafur
vart aö líta framan í nokkurn mann,
48