Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 51

Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 51
síst af öllu kvenmann, en Álfdís hló meó sjálfri sér að ævintýrinu - þar til hálfum mánuði síðar þegar rauöa sprænan lét á sér standa. En fljótlega fann Álfdís að ekki þroskaðist bara barn Ólafs í maga hennar heldurgréri og ást til hans um sig í hjarta hennar. Og Álfdís var ákveðin ung kona sem vissi hvað hún vildi og því dró hún Ólaf upp að altarinu þrátt fyrir heldur óheppilegt ætterni hans fyrir dóttur eins umsvifamesta heildsala lands- ins. Árin liðu og Ólafur varð hamingju- samur maður. Hann tók metorðastiga fyrirtækisins í einu stökki, eignaðist stórt hús, fallegan sumarbústað og góðan bíl. En umfram allt átti hann tvö börn og indæla konu. Lífið lék í lyndi allt þar til skömmu eftir sjö ára brúð- kaupsafmælið er Ólafur varð þess áskynja að Álfdís varð æ fáskiptari í hans garð. Og dag einn sagðist Álfdís vera búin að missa áhuga á hjóna- bandi þeirra. Næstu daga trúði Ólafur því statt og stöðugt að allt kæmist í samt lag en þá kom reiðarslagið - Álfdís fór fram á skilnað. Ólafur skildi ekki hvað hafði farið úrskeiðis. Hann reikaði um borgina klukkustundum saman frávita af örvilnan. Allt var búið. Lífið yrði ómögulegt. Hann mundi missa konu sína og bæði börnin, stöðuna hjá fyrirtækinu, einbýlishúsið, sumarbústaðinn og nýja bílinn. Allt var búið og Ólafur tók stefnuna á höfnina ákveðinn að fyrirfara sér. Hann gekk rakleiðis fram á bryggju- sporðinn, hallaði sér fram, taldi í sig kjark, hikaði örlítið, brynnti fáeinum rnúsum, vó salt milli þessa heims og annars, rétti úr sér en hallaði sér svo aftur f ram og var í þann veginn að fara fram af er hann heyrði undarlegt hljóð ekki ólíkt dúfnakurri. Ólafur rétti úr sér °9 leit til hliöar. Skammt frá honum var eitthvað sem líktist veru, og hreyfði hún sig líkt og hún vildi að Ólafur kæmi til sín. Án þess að hugsa °9 eins og í leiðslu eða í álögum ókennilegra afla gekk Ólafur að verunni og sá hvers kyns var. Þetta var kerling æfagömul. Húð hennar var grá, hárstrýið tjásulegt, munnvikin lafandi og augnaráðið sljótt. Og svo guggin var hún og hrörleg ásýndum að Ólafi fannst sem aldur hennar væri ekki innan mannlegra marka heldur hvarflaði að honum að hún hlyti að vera jafngömul sveitinni sem hann ólst upp í. Ólafur varð hvumsa við þessa sjón og stundi upp úr sér: Hver ert þú? Hver er ég, kreisti kerling úr sér. Ég er heilladís ungra manna. Ég erverndar- engill þinn. Ég er galdranorn. Já, galdranorn. Og ég get hjálpað þér. Segðu mér raunir þínar og ég mun cjræða sár sálar þinnar. I fyrstu var Ólafur tregur til að segja norninni frá högum sínum en með lagni tókst henni smám saman að veiða upp úr honum alla söguna. Þá fór hún að hristast eins og hún hlægi og sagði að ekki yrði erfitt að bjarga þessu. Oft hefði hún lent í verri málum. Ólafur spurði hvernig hún gæti bjargaö sér. Allt getur komist í samt lag á morgun, stundi nornin. En kerling vill fá eitthvað fyrir snúð sinn, bætti hún við. Ef þú sefur hjá mér í nótt og innir karlmannlega skyldu þína vel af hendi ferðu heim til þín í fyrramálið og konan þín tekur á móti þér og allt verður eins og áður var. Ólafur velti fyrir sér tilboði nornar- innar, lífslöngunin hlaut aö sigra og hann hvarf með henni inn í hrörlegan skúr þar skammt frá. Segir nú ekki meira af samskiptum þeirra, þar til Ólafur rumskar næsta morgun. í svefnrofunum minntist Ólafur fjölskyldu sinnar. Hann sá fagra konu sína, börnin, einbýlishúsið, bílinn, sumarbústaðinn og forstjóra- stólinn og hann brosti og um hann fór vellíðunartilfinning sem fljótt breyttist í andstyggð á eigin líkama. Hann hafði selt líkama sinn á mjög svo ógeð- felldan máta. Allt fór að hringsnúast fyrir Ólafi. Sumarbústaður hans á fögrum sumardegi fékk rotnunarþef þann sem var inni í skúrnum, frygðar- stunur nornarinnar blönduðust dillandi hlátri Álfdísar, mjúk leðursætin í nýja bílnum fengu áferð hreistrugs holds nornarinnar og viðbjóðsleg brjóst hennar sem löfðu niður eins og nælonsokkar, voru komin á augna- yndi hans, dótturina sem var lifandi eftirmynd Álfdísar. En í huga Ólafs var þó engin eftirsjá því nú beið hans hamingjusamt líf og auðvitað var ein hræðileg nótt ekki hátt kaupverð fyrir það. Ólafur skalf af andstyggö um leið og hann Ijómaði af ánægju. Aldrei hafði hann órað fyrir því að í einu sálartetri gæti svo innilegur fögnuður hrærst með svo algjörum viðbjóði. Ertu vaknaður? Heyrði Ólafur spurt málmkenndri og bældri röddu eins og háls spyrjandans væri fylltur ryði. Ólafur reis upp í rúminu og sá í norn- ina, nakta og ógeðslega þar sem hún sat við borð með spegil fyrir framan sig og málaði sig með viðvaningslegu handbragði eins og táningsstúlka fyrir fyrsta stefnumót sitt. Hann svaraði henni ekki heldur settist á rúmbríkina og fór að tína á sig spjarirnar. Hvað ertu gamall? kumraði í norninni. Ólafur svaraði ekki, en hélt áfram að klæða sig. Hvað ertu gamall? kumraði aftur í nominni. Ólafur stóð upp fullklæddur og svaraði: 35 ára. Skrokkur nornarinnar fór að hristast en Ólafur gekk að hurðinni í skúrnum og leit við áður en hann gekk út. 35 ára skríkti nornin og hristist svo mikið að furða var að þessi hrörlegi skrokkur héldist saman í svo miklum hristingi. 35 ár skríkti nornin aftur. Þú ert 35 ára. Og þú trúir ennþá á galdranornir. 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.