Teningur - 01.05.1988, Page 54
Og þannig horfir listin einnig við mér.
Ég hef alltaf miklu meiri áhuga á list
dagsins í dag en þeirri sem var í gær
og um þetta hef ég oftlega deilt við
gagnrýnendur.
Hlustarþú á tónlist vió vinnu þína?
Já, svotil allan tímann, ég hef stórt og
gott hljóðkerfi í vinnustofunni og kaupi
allar nýjustu plöturnar, allar þessar
nýju bresku grúppur og svo þessa
blökkumannatónlist.
En verk þín virðast varla vera unnin í
danshæfu andrúmslofti?
Þaö er breytilegt. Stundum þarfnast
ég háværrar tónlistar og stundum
þarfnast ég mikillar einbeitingar og
þagnar. Þegar ég er í vinnustuði get
ég ekki haft einhver flókin verk á sem
trufla, heldur frekar létt diskó.
Sum verk þín eru eins og merki?
Já, sum eru gerö sem merki, en það
er ekki eina virkan þeirra.
Hvaóan koma þér mótífin ?
Ég geng um og ferðast um og fer
síðan til vinnustofu minnar og nota í
raun allt það sem ég sé, án þess þó
að kópíera nokkurn tíma. En eitthvað
það sem ég sé á götunni gefur mér
inspirasjón. Ég sé um leið ef ég get
haft einhver not af því.
En finnst þér eitthvaó vera aó verkum
þínum?
Ja, ég er yfirleitt ánægður með hverja
sýningu þegar hún er komin upp, án
þess þó að hún sé neitt endanleg. Nú
þegar ég er búinn að vera myndlistar-
maður í ein átta ár er manni Ijóst að
maður verður alltaf að hugsa fram á
við og ég gæti aldrei sýnt verk sem ég
gæti ekki staðiö fullkomlega við. En
varðandi þessa sýningu þá finnst mér
hún fín og í raun fullkomin sem slík.
Ég gerði nákvæmlega það sem ég
ætlaði mér, samkvæmt þessari hug-
mynd. Næsta sýning veröur svo auð-
vitað allt öðru vísi.
Þú notar talsvert pirringinn?
Já, bæði upphengingin og mörg verk-
anna ganga út á pirring, þau eru trufl-
andi. En sem áður eru þó fleiri þættir
sem spila hér inn í. List mín er ekki
bara abstrakt eða bara neó-geó eða
bara málverk. Allt þetta vinnur saman
og þú átt að geta fundiö margar
kenndir í sýningunni.
Og þú gerír líka „Readymades"?
Já, það eru einstaka hlutir eða form
sem ég rekst á og fúnkera á einhvern
erfiöan hátt með málverkunum. Það
er erfitt að útskýra val mitt en mest er
það formræns eðlis, hnúajárn t.d. rit-
vélarbotn og stundum aöeins ákveön-
ar uppstillingar, hringlaga bakki við
ofn.
Já, það hefur stundum hvarflað aó
mér að gera „Readymades" en mér
hefur ekki fundist það vera hægt?
Jú, jú það er alveg hægt.
Hvernig lístþérá ísland?
ísland, ég veit ekki hvað ég á að segja
þar sem ég hef aldrei veriö þar. En
vinir mínir voru mjög hrifnir af landinu
og skoruðu á mig aðfaraþangað. Þaö
eina sem ég veit er að verk mín voru
þar í fyrrasumar á samsýningu Aust-
urrískra listamanna (í Nýlistasafninu)
og að mér var boöiö að kenna þar við
Myndlistarskólann en ég hef bara ekki
haft möguleika á því. En núna þekki
ég orðið nokkra íslendinga.
52