Teningur - 01.05.1988, Qupperneq 60
SJÓNI SANDS
BARA ÞAÐ AÐ SVONA
Góa
Það er naumast í djúpi
að sjá það skraf í draugum
og flær að synda að enni!
Ó hve kinnin grefst
og flær að líta í auga
Á ég að reyna hvort ég skil það,
djúpt að stara í auga
- og marflær enn að verki?
Ó hve augað er svona!
og sandi að skola um kinn!
Og þarna flær að sprikla.
Ertu auga?
Ertu enn að kanna flaum úr Ijósi?
Er þaö þarna, að sjá þaö
allt, að vera sem í skuggsjá?
Kom ég þá að lifa
að allt að verða sótt til upphafs?
Þorri
Hættu!
Fer nokkurt Ijós að koma og orð,
að ævin líði betur?
Góa
Það mun aldrei bregðast.
Skyldan býður góðan daginn
og ölvuð orð þann dag.
Að sjá þvílíka ölvun!
Hlauptu þar til dagur og skraf
að finna flærnar skoða kinn.
Nei sko, að sjá hve djúpgrænt!
og sandur að renna inn.
Og auga svo lángt burt umleikiö
að niöa í nótt!
Er þá lygin svona ölvuð
að allt er það satt
að horfa á dauða kinn!
Látið mig í friði! segir kinnin
rjóð við djúpgrænt á miðju nóni.
Þorri
Sérðu ekki bókstafinn
að telja sannleika á filmu?
Og maðurinn einatt að dæma,
segir orðiö og er að hlæa.
Góa
Það er líkast því
að hvað var um aö vera?
Að það sem gerðist?
Þorri
Hver sagði sagan er bókuð?
Hver sagði réttlæti?
Hver sagði þúsund ár?
Góa
Samt verður alltaf satt að lifa
og ýmiskonar litskrúðugur rógur.
Þorri
Ég veit einsog lífið er lángt
um ótal slys og glæpi.
Góa
En kinnin, en grænan,
en vínandinn, en nóttin?
Og fjöll sáust slaga í hausti
þótt það sé kannski lygi.
Þess vegna svona að hugsa?
Og stund sem aldrei mun hverfa:
Líkt og þau gæfu mér hlaupiö
og héldu svo burt?
Nei, bíðiði við!
Er sandur að grafa kinn?
Er augað dáið?
Þorri
Allt er það lifað
allt er það horfið
og annáll að stimpla slys og glæpi.
Góa
Nema augað.
Ó hve augað er svona!
Ég vil ekki sjá meöan augaö er leikiö
og marflær að slíta þríund
að heimur er samt að fljóta
með sannleik í annari stefnu
en allt eins og sæla eða morð.
Og satt að bara hlæja svona
blindandi. Hvílík grænabirta!
Þorri
Bíddu þar til klukkan verður alveg,
þá blasir annað við.
Góa
En líf er að lifa nón,
aö það er og það gerist.
Ég vil ekki þræta við kaldan grun.
En áfram bros að lifa
eða smástíg leiðsla
í þannig svona djúpri grænu
og reik sem lífið vill samt þola.
Þorri
Ég veit það ekki veit ég hvað
að teymdi slysiö lífið aftur
upp og niður áfram ég fyrir löngu
á degi alltaf í dag og aldrei gleymist.
Hann er löngu týndur og getur ekki...
Góa
Nei, að það var svo einstakt
aftur að bara líf að leika tíma?
58