Birtingur - 01.01.1958, Page 14

Birtingur - 01.01.1958, Page 14
arinnar að syngja sálumessu auðvaldsskipu- lagsins („föður míns“) til enda: „Ó láttu nýja strengi storminn herða og stæltum boga leika rekvíem föður míns heitins, hans er bíður lík í húsi voru, að því lokið sé ...“ Um vorið fór ég heim og gaf út Imbru- daga. Ég var þá trúlofaður og fékk konuna heim á eftir mér skömmu eftir að ég var farinn að dreifa Imbrudögum meðal áskrif- enda. En nú var skoilið á atvinnuleysi á Islandi, bókin gaf mér minna í aðra hönd en ég hafði vænzt og lífsbjargarhorfur voru heldur dauflegar, svo að við flúðum land um haustið og settumst að í Stafangri. Þar vann ég fyrst sem lagermaður í leirkerasmiðju, gerðist síðan næturvörður á Hotel Alstor, fluttist að tveim árum liðnum til Oslóar og vann þar sem lagermaður hjá heildverzlun, þangað til við fluttumst heim aftur vorið 1954. Þetta er orðin fjölþætt starfssaga, segi ég, og vantar þó veigamesta þáttinn: hvað leið skáldskapnum ? Þessi ár voru mér algerlega dauður tími í bókmenntalegu tilliti. Það var ekki fyrr en ég var búinn að vera heima um skeið og kyrrð komin á mig, að ég gat safnað mér til að byrja á nýju verki. 1 janúar 1955 sett- ist ég niður við að skrifa Strandið, og í maí var því lokið. Þá voru liðin tæp átján ár síð- an mér vaknaði sú ástríða af bókum vestur í Haukadal (sem aldrei skyldi verið hafa) að koma saman skáldsögu. Loks hafði það tekizt eftir mikið stríð! Ég tek Strandið ofan af hillu og les loka- orðin yfir höfundinum: ,,Ég stend hjá henni (sóleyjunni) og hugsa að seinna — ef til vill í júní, júlí, eða september — muni ég byrja á nýrri skáld- sögu. Hún á að fjalla um mann og konu og um nokkur börn. Og það sem gerist er það að sóleyjarnar vaxa í túninu, og á kvöldin koma lagðsíðar lambærnar niður að læknum til að drekka ... Og annað gerist ekki í þeirri bók.“ Er von á henni í náinni framtíð? spyr ég. Nei, því miður: slík bók væri ekki tíma- bær. Hún yrði aldrei annað en saknaðarljóð horfinna viðhorfa, hjákátleg tímavilla, eða óraunsæ hilling. Þrátt fyrir allt er það tím- inn sem skrifar bækur höfundanna, hvað sem vilja þeirra eða ásetningi líður. Birtingur 8

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.