Birtingur - 01.01.1958, Blaðsíða 35

Birtingur - 01.01.1958, Blaðsíða 35
og niðurlægjandi og tók klukkustundir. Við vorum alltaf á hnjánum. Loks máttum við rísa upp; komið var með hina hópana og sagt við okkur: „Þetta eru ykkar búðir, komið ykkur fyrir eins og þið bezt getið.“ Búðirnar voru snævi þaktar undir berum himni og í þeim miðjum var staur, sem á var letrað: „Gulag ja N 90“ og ekkert ann- að. Hjá okkur gekk það betur. Við vorum heppnir. Ég var handtekinn aftur, eins og oft vill verða eftir að maður hefur verið það einu sinni. En það var eftir öðrum lagabókstaf og undir öðrum kringumstæðum. Þegar mér var sleppt, var mér veitt upp- reisn eins og í fyrra skiptið og leyft að halda fyrirlestra við háskólann. Þegar stríðið brauzt út var ég kvaddur sem majór en ekki undir agann eins og þú. Já, staur með áletruninni Gulag 92 ja N 90 og ekkert annað. I fyrstu mölvuðum við berhentir greinar af frosnum trjánum til að byggja okkur skýli. Þú trúir því ekki, en smám saman fórum við að komast af. Við byggðum sjálfir klefana, stauragirðinguna, fangelsin, útsýnisturna, allt gerðum við sjálfir. Við unnum í skóginum, hjuggum tré, við beittum okkur átta fyrir sleðann. Við bárum tréstofna á öxlunum og óðum snjóinn upp í háls. Lengi vel vissum við ekki, að stríðið hafði brotist út. Því var haldið leyndu fyrir okkur. Og svo er allt í einu sagt við okkur: „Þeir sem vilja, geta farið til vígvallanna, þeir sem lifa það af verða frjálsir.“ Og það var áhlaup eftir áhlaup, við hentum okkur á rafmagnaðar gaddavírsgirðingar, á sprengjuvörpur, mán- uðir og aftur mánuðir og enn mánuðir af vítiseldi. Það var ekki tilviljun, að við vor- um kallaðir „þeir feigu“. Dauðinn hirti okk- ur, einn eftir annan. Hvernig lifði ég þetta af? Samt, þetta var paradís hj'á hörmungum fangabúðanna; en ekki vegna þessara hroða- legu lífsskilyrða, af allt öðrum ástæðum. Já, þú hefur séð hann svartan. Svo sannarlega var stríðið eins konar hreinsandi stormur, eins og hressandi gust- ur, forboði björgunar. Og ekki eingöngu mið- að við fangavistina, heldur jafnvel í sam- anburði við allt þitt líf á árunum eftir þrjátíu, meðan maður naut frelsis, þæginda háskólalífsins, bóka, velmegunar, öryggis. Ég held að sameignarstefnan hafi verið röng umbót og misheppnast, en að menn hafi ekki viljað viðurkenna það. Til að breiða yfir þessi mistök varð með öllum ráðum að sjá svo um, að fólkinu gleymdist að dæma og hugsa, það varð að þvinga það til að sjá það sem ekki var til og sanna því andstæðu raunveruleikans. Þetta er ástæðan fyrir hinni dæmalausu grimmd Iejovtímabilsins, birtingu tilskipunar, sem vitað var um fyr- irfram, að ekki yrði farið eftir, innleiðslu kosninga, sem ekki voru byggðar á kosn- ingagrundvelli. Svo þegar stríðið brauzt út urðu þessar raunverulegu hörmungar, raun- veruleg hættan og ógnunin um raunveru- legan dauða að kostum í samanburði við hina ómennsku stjórn lyganna, takmörkun hins djöfullega máttar hins dauða bókstafs var eins konar léttir. Það voru ekki bara þeir sem voru í útlegð, heldur líka allir hin- ir. Innan lands og í víglínunni hentu þeir sér í vímu, í tilfinningu sannrar gleði útí deiglu sannrar baráttu, banvænnar, en þeir vonuðu, að hún færði þeim frelsið. Stríðið er einn hlekkur í byltingarkeðj- unni. Beinna afleiðinga af þessu umturnun- 29 Birtingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.