Birtingur - 01.01.1958, Blaðsíða 33

Birtingur - 01.01.1958, Blaðsíða 33
boris pasternak: úr #/dr. zivago" þorgcir þorgcirsson þýddi Boris Pasternak er rússneskt ljóðskáld, f 1890. Faðir hans var þekktur listmálari og móðir hans góður píanóleikari. Pasternak lagði í æsku stund á tónlist, og er Skrjabin sagður hafa eggjað hann mjög á að gerast tónskáld. Að loknu stúdentsprófi hóf Pasternak heimspekinám við háskólann í Marburg og tók á þeim árum tryggð við framsækin öfl þýzkra bókmennta, hefur t d þýtt smásögur eftir Kleist á rússnesku, og æskuminningar sínar tileinkaði hann Rilke. Arið 1914 gaf hann út fyrstu ljóðabók sína: Tvíburi í skýjum. Pasternak var ásamt Majakovskí frumherji ljóðbyltingar á fyrstu árum ráðstjórnarinnar, en eftir að sósíalrealismi varð allsráðandi í bókmennt- unum samkvæmt valdboði pólitíkusa, varð hljótt um Boris Pasternak. Hann hefur þó haldið áfram að yrkja og unnið stórvirki í ljóðagerð, en einnig skrifað skáldsögur og fengizt töluvert við þýðingar, m a á verkum Shakespeares. Á árinu sem leið komst nafn Pasternaks skyndilega á forsíður dagblaða um allan heim vegna deilu sem reis milli rússneskra valda- manna og ítalsks útgefanda út af skáldsögunni „Doktor Zj ivago“ eftir Pasternak. Var reynt að hindra útgáfu bókarinnar, en tókst ekki. Nokkru fyrir áramót kom hún út á ítölsku (II dottor Zivago. — Feltri- nelli, Milano 1957) og er væntanleg á fleiri tungu- málum á næstunni, svo sem frönsku, ensku og sænsku. Bókmenntaritstjóri sænska stórblaðsins Dagens Ny- heter gerir hinn 6. des s 1 að tillögu sinni, að Pasternak verði veitt bókmenntaverðlaun Nóbels við næstu úthlutun. E. B. Það var sumarið 1943, skömmu eftir gagn- sóknina við Kúrsk og frelsun Órel. Gordon, nýorðinn undirlautinant og Dúdorov major voru á leið til heirdeilda sinna. Sá fyrrnefndi var að koma úr sendiför til Moskvu, sá síð- arnefndi úr þriggja daga leyfi. Þeir höfðu hitzt á leiðinni og verið nótt í Sern, smáþorpi illa leiknu en þó ekki gjör- eyddu. Óvinirnir höfðu farið eldi um hérað- ið, flestir íbúarnir höfðu verið teknir af. Mitt í rústum, múrmylsnu og steinabrot- um fundu þeir uppistandandi hlöðu og lögð- ust þar til hvíldar í rökkrinu. En þeir gátu ekki sofnað og mösuðu alla nóttina. Dúdorov, sem hafði blundað um þrjúleytið, vaknaði í dögun við hreyfingar Gordons. Þær voru klunnalegar og hann stakkst og grófst í þurrt heyið eins og hann væri í vatni. Hann tók föggur sínar saman í pinkil, síðan renndi hann sér í átt til dyr- anna jafn þunglamalega. Hvert ertu að fara? Það er ekki fram- orðið. Ég fer niður að ánni. Ég þarf að þvo dá- lítið. Ertu vitlaus? I kvöld verðum við komnir til herdeildarinnar og Tanka þvottakona lætur okkur hafa það sem við viljum til skiptanna. Af hverju ertu svona bráðlátur? Ég vil ekki bíða. Ég er sveittur, mér finnst ég vera skítugur. Það er heitt. Ég ætla að skola úr þessu í snatri; ef ég vind það vel þornar það á augabragði í sólskin- inu. Á meðan baða ég mig og þá er ekki annað eftir en að klæða sig. Þú getur ekki verið þekktur fyrir það, það veiztu. Þú ert offiséri. Það er ekki framorðið, allir eru sofandi. Ég fel mig bak við runna. Það sér mig eng- 27 Birtingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.