Birtingur - 01.01.1958, Qupperneq 32

Birtingur - 01.01.1958, Qupperneq 32
endur Leikfélagsins hafa síður en svo misst móðinn þótt verr gengi að leiða verk Tsé- kov, Shaw, og Browning-þýðinguna til sig- urs heldur en hið netta og smávægilega skemmtileikverk Þjóðleikhússins um Tehús Ágústmánans eða Tannhvassa tengda- mömmu, nei kjarkurinn bilaði ekki heldur fáum við nú að sjá Glerdýrin eftir Tenn- essee Williams, fína sýningu Gunnars Han- sen sem verðskuldar lof handa leikstjóra og samstilltum leikendum Helgu Valtýsdóttur, Gísla Halldórssyni og Kristínu önnu Þór- arinsdóttur, og Jóni Sigurbjörnssyni og leiktjaldamálaranum Magnúsi Pálssyni. Það er sama sagan í Þjóðleikhúsinu. Það er eins og leikhúsgestir margir hverjir álíti það móðgun við sig ef það er ekki alltaf verið að kitla þá í nefið með flíruskaparins fiðurkústum svo þeir fái notið þess í mag- anum að hlæja og hlæja. Það er eins og þorrinn sé með kreppu í maganum, sem einungis verði aflétt með ofsalegum hlátri. Og af því að það kostar nú talsvert mikið að fara í leikhúsið þá eru hin furðulegustu tilefni sveigð til móts við þessa brýnu þörf að hlæja. Úr því maður talar um leiklist mætti kannski geta þess að starf leikarans er fimm sinnum verðmætara en sköpunarverk rithöfundarins samkvæmt mati Ríkisút- varpsins. Rithöfundur skrifar sögu: ef þekktur leikari les hana í útvarpið, segjum það taki hann 19 mínútur, honum eru greiddar fjögur fimm hundruð krónur. En mannræfillinn sem samdi söguna fær rúm- lega 100 krónur fyrir efnið samkvæmt samningi sem gilti síðast þegar ég vissi til. En ef rithöfundur les sjálfur söguna myndi hann fá samanlagt fyrir efni og flutning talsvert miklu lægra en leikarinn fyrir það eitt að lesa. Það er sama hversu vel höfund- ur les sitt eigið verk, upplestur hans er aldrei metinn til jafns við flutning leikar- ans. Og það er sama hve snjöll saga hans er, hún er einskis metin í þeim stað. (Skrifað í marzlok). Birtingur 26

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.