Birtingur - 01.01.1958, Side 41

Birtingur - 01.01.1958, Side 41
sitt í þann hnitmiðaða búning, sem þörf er á ef það á að hafa áhrif í útvarpi, heldur sýndi hann með störfum sínum í útvarpsráði ágætan skilning á hlutverki útvarpsins hér á landi. Meðan hans naut við og kraftar hans voru helgaðir útvarpinu, var ekki hætta á að lágkúran og andleysið legðust þar eins og mara yfir talað orð. Þótt margt sé stórvel gert í þessari bók, ber einn erindaflokkurinn af, lýsingin á Móðuharðindum og afleiðingum þeirra fyrir íslenzku þjóðina. Flutt í útvarp voru þessi erindi listaverk. Þar lagðist allt á eitt, mikil náttúrufræðiþekking, næmt skyn á kjör ís- lenzkrar alþýðu á liðnum öldum og frábært vald á íslenzku máli. Þær myndir sem Pálmi dregur þarna upp af íslenzku þjóðinni í ýtrustu kröm og neyð, milli elds á aðra hönd og íss á hina, lýsingarnar á hungrinu, grimmdinni, hreystinni, þrautseigjunni og hjálpinni, sem ekki kom að tilætluðum not- um vegna þess að íslenzkum yfirvöldum fannst réttara að leggja erlenda gjafaféð á vöxtu en að verja því til að metta hungr- aða, hljóta að verða hverjum sem á hlýddi ógleymanlegar. Pálmi var sannur húmanisti og maður al- hliða upplýsingar. Hann lét ekkert tækifæri ónotað til að hnekkja hjátrú og hindurvitn- um, rækta með hlustendum fegurðarskyn, fræða þá um land sitt og sögu. Þegar það kemur í hans hlut að svara fyrirspurnum um náttúru íslands, verða svörin ekki þurr fræðatíningur, svarinu við spurningunni fylgir, ef tilefni er til, góðlátleg, fyndin og ákveðin leiðrétting á málfari spyrjanda eða athugasemd við lífsviðhorfið, sem skín út úr spurningu hans. Kjarninn í þeirri lífs- skoðun, sem Pálmi Hannesson notaði út- varpið til að boða íslendingum af fágætu listfengi, birtist í þessari setningu úr er- indi hans um íslenzka mold: „Því að hvorki með keti, ull né fiski einu saman verður menning vor treyst, heldur og með þekk- ingu, með menntun og manndómi“. örlagaflækjur Þórbergur Þórðarson: Um lönd og lýði. Helgafell. Peter Hallberg: Vefarinn mikli. Björn Th. Björnsson þýddi. Helgafell. Arnór Sigurjónsson: Einars saga Asmunds- sonar. Menningarsjóður. Guðmundur G. Hagalín: 1 kili skal kjörviður. Saga Mariniusar Eskilds-Jessens fyrrverandi Vélstjóraskólastjóra, skráð eftir sögn hans sjálfs. Norðri. Minningabók Magnúsar Friðrikssonar á Staðarfelli. Hlaðbúð. Ólafia Jóhannsdóttir: Rit I—II. Frá myrkri til ljóss. Aumastar allra. Hlaðbúð. Það má nú segja, að enginn veit sína æv- ina fyrr en öll er. Hvern skyldi hafa órað fyrir því að orðlagðasti afglapi Suðursveitar yrði brautryðjandi nýs tímabils í íslenzkum bókmenntum? Hvernig gat nokkurn grunað, að fósturdóttir frúarinnar í Viðey yrði bjargvættur fallinna kvenna í Osló? Töfrar ævisagnalestrar eru ekki sízt fólgnir í því að fylgja þeim ótrúlegu hlykkjum og flækj- um, sem verða á æviþræði manna. Það sem í fljótu bragði virðist fjarstæðukennt, ligg- ur ljóst fyrir þegar rétt er rakið. Sjálfsævisaga Þórbergs er orðin tvö bindi. Enn einu sinni hefur honum tekizt meistara- lega að finna stíl sem hentar efninu. Sumir sakna þess að hér skuli ekki vera andlegar 35 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.