Birtingur - 01.01.1958, Qupperneq 44
prestsins í Messunni á Mosfelli eftir Einar
Benediktsson og að þau Einar og Ólafía séu
talin hafa fellt hugi saman. Sjálfsævisaga
Ólafíu, sem hún kallar Frá myrkri til ljóss,
er rituð til að sýna eftir hvaða krókaleiðum
hún hafi öðlazt trúarvissuna, sem að hennar
dómi felur í sér hina æðstu hamingju. Við
lesturinn finnst manni, að bókin dylji eins
mikið og hún birtir. Ólafía er fjölorð um
störf sín og þróun hugsunar sinnar, en færra
segir af tilfinningum hennar; þó nóg til þess
að ijóst verður að hún hefur alla ævi borið
miklu dýpri tilfinningar í brjósti til kvenna
en karla. Ástæðan til þess er augljós, hún
elst upp hjá skörungnum Þorbjörgu Sveins-
dóttur en hefur lítið sem ekkert af karlkyns-
ættingjum að segja í æsku.
Lesandinn fær aðeins ófullnægjandi hug-
mynd um þá trúarreynslu, sem Ólafía taldi
hafa gerbreytt lífi sínu. Kjarni sinnaskipt-
anna virðist vera alger undirgefni undir
það sem hún telur vera vilja æðri máttar-
valda og hún hafði áður strítt gegn með
sumum þáttum eðlis síns. Einn áhrifamesti
kaflinn í sjálfsævisögunni er lýsing á komu
að Núpsstað, þar sem dóttir bónda var ný-
dáin eftir fjögurra ára fangavist í vörzlu
föður síns, sem læsti hana inni í kytru á
bæjarlofti fyrir að ala barn í sínum garði.
Þessi fáheyrða grimmd og líknarstarf Ólafíu
sjálfrar í Osló virðast í fljótu bragði algerar
andstæður, en sé betur að gáð kemur í ljós
að um er að ræða baráttu með ólíkum með-
ulum við mannlega frumhvöt, „munaðar-
syndina" kallar Ólafía hana og finnst hún
ímynd alls hins illa.
þolraunir
Ebenezer Henderson: Ferðabók, Snæbjöm
Jónsson þýddi. Snæbjörn Jónsson & Co. h.f.
Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson: Hrakn-
ingar og heiðavegir IV. Norðri.
Jörgen Andersen-Rosendal: Góða tungl.
Konur og ástir í Austurlöndum. Hersteinn
Pálsson þýddi. Bókfellsútgáfan.
Erling Brunborg: Um ísland til Andesþjóða.
Hersteinn Pálsson bjó til prentunar. Norðri.
P. H. Fawcett: í furðuveröld. Hersteinn
Pálsson íslenzkaði. Ferðabókaútgáfan.
Ævintýraþráin á sízt minni þátt í vinsæld-
um ferðasögubókmennta en fróðleiksfýsnin.
Ferðasagan gerir hverjum sem er fært að
kynnast í makindum heima hjá sér baráttu
annarra við framandi umhverfi og torveldar
leiðir.
Fyrir 140 árum gátu ótrauðustu ferða-
langar fengið sig fullsadda af langferðum
um Island. Ebenezer Henderson lenti í hverj-
um lífsháskanum á fætur öðrum, þegar hann
var að færa íslendingum Biblíuna, en hann
taldi það ekki eftir sér vegna málefnisins.
Svo er fyrir að þakka að hann kom hingað
tygjaður fleiru en trúarhita. Hann hafði
aflað sér mikillar þekkingar á sögu og bók-
menntum Islendinga og var náttúruskoðari
af guðs náð. Athyglisgáfa hans, góðvild og
yfirlætisleysi gera ferðabók hans eina þá
merkustu og skemmtilegustu, sem útlending-
ur hefur ritað um Island. Þessi ómetanlega
menningarsögulega og náttúrufræðilega
heimild hefur nú verið þýdd og gefin út af
mikilli vandvirkni. Seint verður þó girt fyrir
villur í slíku verki. Undirritaður rakst á að
ekki er rétt farið með tvö örnefni á Barða-
strönd. Dalurinn sem kallaður er Morárdal-
Birtingur 38