Húsfreyjan - 01.04.1960, Page 8

Húsfreyjan - 01.04.1960, Page 8
hafði dvalið um tíma í Danmörku og lært matreiðslu og fleira í sambandi við heim- ilishald. Síðustu mánuðina þar var ég í Ankerhus-kennslu-kvennaskóla hjá frú Magdalene Lauridsen. Um þær mundir var þar að hef jast umferðarkennsla í mat- reiðslu, og hvatti frú Magdalene mig mjög að fara heim til Islands og takast á hend- ur umferðakennslu þar. Kvaðst hún jafn- vel mundu fara með mér, ef ástæður leyfðu, en af því varð þó ekki. Ég var fátæk af peningum, fatnaði og öðrum vísdómi en þeim, sem tilheyrði matargerð og heimilishaldi. Strax eftir heimkomu mína til landsins leitaði ég á fund formanns Búnaðarfélags Islands í Reykjavík, hr. Þórhalls Bjarnar- sonar, biskups, í þeim vændum að fá nokk- urn styrk til kennslunnar. En biskupinn var þá kominn norður á Akureyri í ein- hverjum erindum. Ég hélt þá til Akur- eyrar til þess að ná tali af honum, en var þó nokkuð kvíðandi og hikandi að ganga á fund biskupsins sjálfs og ekki sízt þar sem hann var til húsa hjá amt- manninum, Páli Briem. En biskupinn tók mér vel og ljúfmannlega og hlustaði með þolinmæði á mál mitt, þegar ég var að útskýra fyrir honum fyrirætlun mína og hvernig ég ætlaði að framkvæma hana. Nemendurnir áttu að sjá mér fyrir fæði, húsnæði og ferðakostnaði, en kaup fyrir kennsluna vildi ég fá hjá Búnaðar- félagi Islands. Þá sagði blessaður bisk- upinn: ,,Við getum nú máske látið yður hafa 100.00 kr., ef þér viljið endilega reyna þetta.“ Og svo bætti hann við: „En konurnar vilja þetta ekki.“ Með það skild- um við, og þóttist ég þó nokkru bættari við að hefja starfið, þótt fjárstyrkurinn væri lítill. Guðrún systir mín bjó þá á Halldórs- stöðum í Kinn. Ég dvaldi hjá henni nokk- urn tíma þetta sumar, og ræddi ég þá oft við ýmsar konur um þessa fyrirhuguðu umferðakennslu. Virtist mér konum líka vel, að þetta væri reynt. Ég lagði af stað í fyrstu kennsluför mína í október 1903. Farangur minn var á Draflastöðum í Fnjóskadal, og bjó ég hann niður í gamalt koffort og kassa, hæfilegan fyrir olíuvél til matsuðu. Auð- vitað varð ég að flytja þetta á reiðings- hesti, því að þá var ekki ferðazt í skraut- máluðum bílum og þotið með geysihraða. Fyrsti kennslustaðurinn var Halldórsstað- ir í Kinn. Mér fannst ferðalagið heldur dapurlegt. Fylgdarmaðurinn reið á und- an og teymdi trússahestinn, en ég reið á eftir honum. Þannig var ég oftast flutt milli kennslustaða á meðan ég hafði um- ferðakennsluna á hendi. Fólkið á Halldórsstöðum átti ekki meir en svo von á komu minni, en gerð voru boð á bæina í kring, og söfnuðust brátt nægilega margar konur til námsins í það húsrúm, sem unnt var að veita. Voru þær 10—14, og var sú tala nemenda venju- legust á námskeiðunum. Kennslan fór fram í miðbaðstofunni á Halldórstöðum. Þar var eitt lítið borð, og olíuvélin — sjálft suðutækið — látin standa á kassa. Þetta gekk furðuvel. En einhvern veginn fannst mér sem eldra frændfólkið mitt á Halldórsstöðum treysti ekki of vel smalastúlkunni frá Drafla- stöðum, þar sem hún stóð og prédikaði fyrir fólkinu og sýndi því nýjar aðferðir við matargerð. Þegar kennslan hafði staðið í 2 daga, sáum við út um gluggann, þar sem við vorum við matargerðina, að kona kemur ríðandi á fráum fáki utan fellið. Hún reið í söðli og var í síðu pilsi, eins og þá var siður hefðarkvenna. Þessi kona var Krist- björg í Yztafelli, og erindið var að kynn- ast kennslu minrii. Ég hálfkveið komu hennar, satt að segja hugsaði, að henni mundi sjálfsagt þykja lítið koma til þess- arar tilraunar minnar. En þetta fór á betri veg en ég hugði. Hún kom inn og settist í nemendasæti, hlýddi á kennsluna og gerði uppskriftir af matarréttunum og tók þátt í öllu, er fram fór í sambandi við kennsluna. Áður en námskeiðinu lauk, sagði Krist- björg, að varla hefði konum fallið meira happ í skaut í sambandi við matargerð 8 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.