Húsfreyjan - 01.04.1960, Side 21
Heimilisþáttur
Búsáhöld
frá Ofnasmiðjunni h.f.
FYRIRHUGAÐ er að kynna fyrir lesend-
um Húsfreyjunnar, bæði í þessu hefti og
hinum næstu, nokkuð af búsáhöldum
þeim, sem framleidd eru hér á landi.
Fram á siðustu ár hefur þessi framleiðsla
verið mjög fábreytt, en hefur nú aukizt
að nokkrum mun.
Við byrjum á því að heimsækja Ofna-
smiðjuna, Einholti 10, Reykjavík. Hún
er löngu landskunn fyrir framleiðslu sina
á miðstöðvarofnum, helluofnunum svo-
nefndu, sem þegar hafa hitað upp heimili
víðs vegar um landið í hálfan þriðja ára-
tug.
Ofnasmiðjan h.f. var stofnuð 1936, og
hefur Sveinbjörn Jónsson verið fram-
kvæmdastjóri frá byrjun. I fyrstu voru
eingöngu framleiddir ofnar, en á stríðs-
árunum framleiddi verksmiðjan einnig
nokkuð af miðstöðvarkötlum og glerhúð-
uðum pottum. En framkvæmdastjórinn
var ötull og framsækinn og hugðist auka
fjölbreytni framleiðslunnar, þótt vafa-
laust hafi verið við margs konar örðug-
leika að etja. Árið 1947 var svo hafin
framleiðsla stálvaska, og er sú framleiðsla
nú orðin umfangsmeiri en ofnaframleiðsl-
an. Stálvaskarnir hafa bætt mjög öll
vinnuskilyrði í eldhúsum okkar og auð-
veldað allt hreinlæti við uppþvott og mat-
reiðslu. Framleidd hafa verið 2—3 þús.
vaskaborð á ári síðustu 3 árin af 9 mis-
munandi gerðum. Sérstakir plastvatnslás-
HÚSFREYJAN
21