Húsfreyjan - 01.04.1960, Síða 22

Húsfreyjan - 01.04.1960, Síða 22
I ar fylgja vöskunum nú, og þykja þeir mik- il framför frá því sem áður var. Um stál- vaska frá Ofnasmiðjunni er getið í bók- inni Eldhúsið, sem nýlega hefur komið út í flokki fræðslurita Búnaðarfélags íslands. Þar er sagt frá helztu gerðum þeirra og stærðum. Einnig er þar sagt frá smá- skúffuskápum, sem Ofnasmiðjan fram- leiðir, og fylgja myndir af þessum bús- áhöldum. Smáskúffuskápurinn er mjög hentugur í mörg eldhús og getur sparað húsmóðurinn mörg sporin. Ofnasmiðjan hefur síðan í stríðslok stöðugt verið að auka framleiðslu sína og færa út kvíarnar, og eru þar nú fram- leidd ýmis stærri og smærri búsáhöld, auk þeirra, sem að framan eru talin. Öll þessi áhöld miða að auknum þægindum á heimilum og létta stórum heimilisstörf- in. Þau munu vera vel sambærileg við sams konar áhöld erlend, bæði hvað snert- ir gæði og verð. Þvottapottur úr stáli, sem tekur 70 lítra. Hann er útbúinn með sérstakri gata- rist í botninum, en þar undir er elementið í snertingu við vatnið, svo að það hitnar tiltölulega fljótt. Potturinn tekur 3 kw, en nýtir þá orku tiltölulega vel. Á botn- inum er einnig stútur og á hann er fest slanga, svo að vatninu má hleypa úr í fötu, vaska eða annað niðurfall. Á pott- inum er sérstakur hitastillir, sem kveikir og rýfur strauminn, þegar vissum hita er náð. Þá hefur Ofnasmiðjan framleitt borð í þvottahús með sérstökum þvottaskál- um, ásamt skolkerum. Fyrirhugað er að framleiða stálskolker á hjólum í þeirri stærð, sem hæfileg þykir til að taka þann þvott, sem soðinn er í pottinum í einu. Nýlega er hafin aftur framleiðsla á vinnustólum eða stólum sérstaklega út- búnum og þægilegum til að sitja á við vinnu. Hafa þeir þegar reynzt mjög vel á skrifstofum og fyrir verksmiðjufólk, sem situr löngum við sama verkið. Stóllinn er með góðri setu og baki, úr pressuðum birkikrossviði, plastlímdum og með plast- húð, sem svo er hægt að lakka í ýmsum litum. Setuna má hækka og lækka og enn- fremur er hún á fjaðurvöltum, svo að hún sveigist fram og aftur eftir þörfum. Bakið má einnig hækka og lækka að vild og færa það nær og fjær setunni eftir því, hve sá, sem situr á stólnum, er fyrirferðarmikill. Þá er fótaskemill einnig færanlegur, svo að hægt er að láta fætur hvíla þægilega, þegar setið er. Fætur stólsins og grind er úr stáli. Hægt er að fá hann á hjólum eða án þeirra. Þessi stóll er lítið eitt dýrari en venjulegur borðstofustóll. 22 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.