Húsfreyjan - 01.04.1960, Qupperneq 23
Ofnasmiðjan hefur undanfarið framleitt
mjög mikið af hilluútbúnaði, sem er mjög
eftirsóttur til ýmissa nota, t. d. í vefn-
aðarvöru- og matvöruverzlanir og geymsl-
ur. Einnig eru hillurnar notaðar fyrir bæk-
ur. Þess konar hillur eru afar hentugar í
búr og einnig í frystiklefa. Hillustigi er
festur á vegginn og á hann er siðan krækt
uglum, sem halda hillunum uppi, og er bil-
ið milli hillanna breytilegt um 41^ sm.
Uglurnar eru af 6 mismunandi lengdum,
frá 15—40 sm, svo að hægt er að hafa hill-
urnar misbreiðar. Sjálfar hillurnar má fá
úr stáli með gljábrenndri lakkhúð eftir
pöntun frá Ofnasmiðjunni, en einnig má
nota tréhillur, og geta menn þá haft mis-
munandi við í þeim, eftir þvi í hvaða til-
gangi á að nota þær. Þá fæst einnig sér-
stakur hilluútbúnaður ætlaður fyrir
þungavörur.
Af smærri búsáhöldum, sem ,,Smiðjan“
framleiðir, má nefna ýmsa smábakka úr
stáli, öskubakka, smádiska, áleggsdiska
og skálar, glasabakka og fleira. Fat eða
matarbakki, sem hentugur er t. d. fyr-
ir kjöt og fisk er
skemmtilegur á
borði, og að sjálf-
sögðu mjög ending-
argóður. — Kostar
hann 190 kr. og er
24 X 44 sm að stærð.
Þá má nefna
ólgustillinn, sem
margar konur hafa
sjálfsagt kynnzt, og
finnst kannske ó-
missandi. Það er
lítil plata úr ryð-
föstu og sýruheldu
stáli með smábroti
eða fellingu, og sé
henni hvolft í pott,
sem sjóða á í mjólk
eða mjólkurmat,
gefur hún til kynna
með smábanki, þeg-
ar mjólkin er farin
að hitna óþarflega
HÚSFREYJAN
skarpt, og er því auðvelt að gæta þess,
að ekki sjóði upp úr. Allar konur þekkja,
hve gremjulegt það er að missa mjplkina
upp úr pottinum, þvi að auk þess sem
verðmæt næring fer til spillis, veldur
þetta auknu erfiði við hirðingu potta og
suðuvéla. Þessi smáhlutur kostar aðeins
12 krónur.
Þvegillinn hefur einnig verið á mark-
aðnum í nokkur ár, og margar konur not-
að hann sér til þæginda. Það er eins kon-
ar gólfþvottasvampur á skafti, útbúinn
svo að vinda má svampinn lauslega, án
þess að bleyta hendur sínar, og strjúka
yfir gólfin án þess að beygja sig að ráði,
og er hann heppilegur á gólf, sem lítið eru
óhrein, en aðeins laust ryk, sem strjúka
þarf í burtu. Sumir nota þvegilinn á gólf-
teppi, og aðrir til að strjúka yfir loft og
veggi við hreingerningu. Skipta má um
svamp, þegar sá gamli er slitinn, og fást
svamparnir á sömu stöðum og þveglarnir.
Verð þvegilsins er 150 krónur.
Ofnasmiðjan hefur í hyggju að hefja
innan skamms framleiðslu á eldhúsvift-
um, sem notaðar eru yfir eldavélunum til
að draga út matarlykt og gufu, þegar
verið er að elda. Viftunni fylgir sérstakur
skermur, eins konar trekt, eimhetta sem
fest er á vegginn yfir vélinni og á að safna
gufunni að viftunni. Er ætlunin að útbúa
hana þannig, að hún taki ekki meira rúm
frá veggnum en venjulegur veggskápur,
en svo megi draga hana fram, þegar soðið
er eða steikt á vélinni, svo að hún verki
23
L