Húsfreyjan - 01.04.1960, Síða 29
ferð, oftast svo sem 10—15 mínútur til
að byrja með, verður sá sem hjálpar að
hafa góðan tíma og sjúklingurinn að vera
úthvíldur.
Hægindastól er komið fyrir við rúmið
með stólbakið upp að vegg eða skáp,
þannig að stóllinn færist ekki til, þegar
sezt er í hann. Ábreiða er lögð yfir stól-
inn og koddi hafður til taks, ennfremur
skammel undir fæturna, ef stóllinn reyn-
ist of hár.
Sjúklingurinn er klæddur í sokka og
buxur, síðan er tekið undir bakið og fæt-
urna og hann látinn setjast framan á.
Meðan sjúklingurinn er. að átta sig á
breytingunni, er hann færður í slopp og
inniskó.
Eigi hann ekki slopp, má notast við
ábreiðu, sem brotið er ofan á eftir lang-
veginum (kragi) og látin yfir herðar sjúk-
lings og handleggi, en síðan fest með lás-
nælum að framanverðu og um úlnliðina.
Stutt er nú með báðum höndum undir
handarkrika sjúklings, meðan hann legg-
ur hendur sínar á axlir hjálparmanns og
þannig er honum hjálpað í stólinn.
Ábreiðan er lögð utan um hann, koddi
settur við bakið og skammel undir fæt-
urna og hann látinn setjast framan á.
ling meðan hann er óvanur að sitja í stól,
heldur skal í laumi athugað, hvort hann
e.t.v. þreytist. fölnar upp og svitnar, því
þá þarf undir eins að hjálpa honum í
rúmið aftur. Annars má nota tímann til
að snúa dýnunni og búa um rúmið.
Smám saman lengist fótaferðartíminn
og stóllinn er daglega færður fjær rúm-
inu, þar til að því kemur, að sjúklingur-
inn getur gengið inn í næsta herbergi.
Eigi sjúklingurinn bágt með gang, þarf
að fjarlægja lausar ábreiður af gólfum,
svo að hann detti ekki um þær. Ennfrem-
ur getur hann þurft á göngustaf að halda.
Sér til dægrastyttingar þarf sjúklingur-
inn að fá eitthvað um að hugsa: lestur
eða handavinnu, saum, hekl, prjón, teikn-
ingu, eða annað sem hentar honum.
Heimsóknir vina og vandamanna eru
kærkomnar undir þessum kringumstæð-
Langlegusjúklingar og gamalmenni
Bæði ungir og gamlir geta orðið fyrir
langvarandi, jafnvel ólæknandi sjúkdóm-
um. Það sem áður hefur verið sagt um
hreinlæti, hirðingu húðarinnar o.s.frv.,
gildir auðvitað alveg sérstaklega fyrir
þann, sem liggja þarf rúmfastur árum
saman.
Taka verður einnig tillit til þeirrar, sem
hjúkrunina hefur á hendi, hún þarf að fá
frí öðru hvoru, bæði til að létta sér upp
og sinna eigin erindagjörðum. Fjölskyldu-
meðlimir verða, er þannig stendur á, að
skiptast á um vaktir. — f sumum tilfell-
um, t. d. eftir örkuml, hefur það mikla
þýðingu, að sjúklingurinn læri að hjálpa
sér sem allra mest sjálfur.
Hér læt ég staðar numið. — Ég hef
leitazt við að draga fram þýðingarmestu
atriði heimahjúkrunar, eins og þau gerast
nú á dögum. Margt er að vísu ósagt, t.d.
um ýmsar hjúkrunaraðgérðir, en slikt
verður varla lært af bókum, a.m.k. ekki
án þess að myndir fylgi. —
Kærar kveðjur!
HÚSFREYJAN
kemur út 4 sinnum á ári,
Ritstjórn:
Svafa Þórleifsdóttir
Laugavegi 33A - Sími 16685
Sigríður Thorlacius
Bólstaðahlíð 16 - Sími 13783
Elsa E. Guðjónsson
Laugateigi 31 - Sími 33223
Sigríður Kristjánsdóttir
Stigahlíð 2 - Sími 35748
Kristjana Steingrímsdóttir
Hringbraut 89 - Sími 12771
Afgreiðslu og innheimtu annast
Svafa Þórleifsdóttir, Laugavegi 33 A.
Verð árgangsins er 35 krónur. í lausasölu
kostar hvert venjulegt hefti 10 kr. Gjald-
dagi er fyrir 1. október ár hvert.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
HÚSFREYJAN
29