Húsfreyjan - 01.04.1960, Page 37

Húsfreyjan - 01.04.1960, Page 37
Ferðaþáttur LAUGARDAGINN 27. júlí 1957 lögðum við hjónin á stað austur á Stöðvarfjörð. Við flugum með Sólfaxa í sólskini og blíðviðri. Farþegar voru margir með flug- vélinni. Á leiðinni austur sáum við tals- vert af hálendinu. Til Egilsstaða vorum við komin eftir klukkutíma og tuttugu mínútur. Þar beið áætlunarbíll, sem flutti fólkið niður á firði. Farið var um Fagra- dal. Mér þótti leiðin skemmtileg á meðan ég sá Egilsstaðaskóg. Þegar komið var niður á Reyðarfjörð, reyndum við að hafa upp á frænku minni, sem er búsett á Búðareyri. Hjá henni drukkum við kaffi og mér fannst gott að hvíla mig áður en lengra var haldið. Þarna urðum við að bíða í rúmlega tvo klukkutíma. Bíllinn, sem við fórum með, gat ekki farið fyrr en áætlunarbillinn frá Akureyri var kominn með póstinn, því að hann átti að taka póst til Fáskrúðsf jarð- ar. Þangað komumst við ekki fyrr en seint um kvöldið og gistum hjá systur- syni mínum og konu hans. Daginn eftir, sem var sunnudagur, fengum við okkur jeppa til Stöðvarfjarðar. Vorum við rúm- an klukkutíma á leiðinni, en þar tók á móti okkur góður vinur minn, sem var búinn að útvega okkur samastað á meðan við dvöldum þarna hjá þeim góðu hjónum Kristborgu Jónsdóttur og Sighvati, manni hennar, á Borg. Þau búa einmitt þar, sem ég átti einu sinni heima. Mér var mikið gleðiefni að sjá allar framfarirnar, sem yrði of langt mál upp að telja. Áður var nokkuð af óræktuðu landi utan við þorp- ið. Nú eru þar slétt og falleg tún. Tvær ár renna gegnum þorpið fram í fjörðinn. Þær hafa verið brúaðar, enda gat verið erfitt að komast yfir þær í vatnavöxtum, einkum á vorin. Við heimsóttum vini og kunningja og var alls staðar tekið með mestu vinsemd. Einn daginn fórum við inn að Stöð, sem er innsti bærinn í firðinum. Þar eru stór og víðáttumikil tún og mjög fallegt. Þaðan á ég einnig góðar minningar. Nú býr bróðurdóttir mín þar stórbúi með manni sínum og börnum. Síðasta kvöldið, sem við vorum þarna, var yndislegt veður. Fjöll og hús spegl- uðust í firðinum og létt lognaldan gjálfr- aði við fjörusteinana. — Næsta morgunn var lagt af stað heimleiðis. Frændi minn bauð mér að flytja okkur austur á Fá- skrúðsfjörð. Var það vel þegið. Eftir stutta viðdvöl á Fáskrúðsfirði var haldið upp á Hérað. Þar hefði ég viljað sjá mig betur um, en tíminn leyfði það ekki. Ekki fannst mér vegirnir vera vel greiðfærir, en vonandi er nú búið að laga það, enda voru vegagerðarmenn á tveimur stöðum, þar sem við fórum um. Margir biðu á flugvellinum eftir fari suður, enda var Sólfaxi kominn. Eftir stutta stund vorum við komin upp í há- loftin. Nú var dimmt yfir og flogið skýj- um ofar. Mér varð illt í höfði og var með óþægindi í eyrunum, en það lagaðist furðu fljótt. Klukkan 8 síðdegis var lent á Reykjavíkurflugvelli. Þá var þar regn- suddi og kalsaveður. Þetta ferðalag austur á kærar æsku- stöðvar bættist mér nú í sjóð minning- anna. Guðný Stefánsdóttir, Grindavík. Borðið fisk og sparið Fiskhöllin Tryggvagötu 2 Sími 11240 HÚSFRKYJAN 37

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.