Húsfreyjan - 01.10.1962, Side 21
mannneldisþattur
Matur, sem borinn er fram sem hlaup,
er mjög girnilegur og lystugur. En margar
húsmæður veigra sig við að útbúa þannig
rétti, þótt þeir séu auðtilbúnir, þegar lærð-
ar hafa verið mjög einfaldar grundvallar-
regur.
Hlaup er næstum því hægt að útbúa úr
hvaða vökva sem er, svo fremi að bragð
vökvans eigi við það, sem í hann er sett, en
flestar matartegundir má framreiða þannig.
Hvítvín og ávaxtasafi á vel við ávexti, tó-
matsafi á vel við grænmeti, skeldýr (rækj-
ur, humar), kjúklinga og kálfskjöt, kjötsoð
með ýmsum kjötréttum, að ógleymdu fisk-
soði (sem allt of margar húsmæður henda í
vaskinn) með fiski og skeldýrum.
Soðið eða annar vökvi, sem notað er, þarf
að vera bragðsterkt. Matarlímið dregur dá-
lítið úr bragðinu. Þegar soð er skírt, er hægt
að sjóða örlítið edik, lárberjalauf, salt og
pipar með í vökvanum til að krydda hann
betur.
Aðferðin við að skíra soðið er ætíð sú
sama, hver sem vökvinn er. Vindið matar-
límsblöðin upp úr vatninu, sem þau hafa
legið í bleyti í og þau látin í vökvann,
áður en hann er hitaður og skírður. Þvoið
eggjaskurn með klút, vættum í ediki. Látið
eggjahvítur og mulda eggjaskurn út í hlaup-
vökvann. Potturinn settur yfir sterkan hita
og þeytt látlaust í, þar til sýður upp með
börmunum. Hlemmur settur á pottinn og
látið bíða í nál. 15 mínútur. Hellt á klút og
síað.
Áætla þarf 6—7 blöð af matarlími í V2 1
af vökva eða álíka margar tsk. af matar-
límsdufti í hlaup, sem hvolfa á, annars held-
ur minna. Látið matarlímsblöðin liggja í
bleyti í köldu vatni, í 15—20 mínútur; kreist-
ið þau upp úr vatninu og leysið þau upp í
heitum vökvanum eða bræðið þau yfir gufu.
Hrærið matarlímsduftið út með köldu vatni,
1 msk. á 1 tsk. af dufti, bræðið það síðan á
sama hátt og matarlímsblöðin.
Skolið mótið að innan með köldu vatni,
setjið dálítið af vökvanum á botninn, látið
hálfhlaupa, leggið það, sem einkum á að
vera til skrauts, ofan á hlaupið, festið því
með örlitlum hlaup-vökva, látið hálfhlaupa.
Látið annað sem á að vera í hlaupinu í mót-
ið, og hellið svo hlaupvökvanum í. Betra
er að útbúa hlaup daginn áður en á að bera
það fram, er þó ekki nauðsynlegt.
Hlaupið verður að vera vel stíft, þegar
það er losað úr mótinu. Rennið hníf með-
fram börmunum og hristið mótið varlega,
svo að loft komist milli barms og hlaups.
Hvolfið fatinu yfir mótið og síðan höfð enda-
skifti á fati og móti. Bezt að mótið sé barma-
fullt, þá raskast hlaupið síður, þegar því er
hvolft.
Grœnmeti í hlanpi
8 dl grænmetissoð Blónikál
10 blöð matarlím Gulrætur
2 eggjahvítur Steinselja
Eggjaskurn Agúrka
Laukhringir Sítróna
Grænar braunir
Húsfreyjan
21