Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 3

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 3
Mig langar ekki... Veru hefur borist tvö bréf um efni 5. tölublaðs. ,,En þú verður nú að fara að koma með eitt lítið", segja konur oft við mig í einhver}- um ströngum gælutón. Ég er nefnilega að verða þrítug og — guð minn góður — það er svo voðalegt að eignast fyrsta barn eftir það, eins er það svo leiðinlegt fyrir börnin að eiga gamla foreldra og svo er nú gott að vera ,,búinn“ með barnauppeldið á með- anmaðurerungurenn. . .og. . .og. . .Oft hefur mig langað til að grípa fyrir eyrun, en hef þess í stað látið nægja að brosagóðlát- lega þegar rökfimin nær hámarki. Auövitaö eru til aðrar sem hughreysta mann og segja að ekkert liggi á, en samt er maður spældur og hugsar „þetta er bara öfund í þessum kerlingum sem lentu allt of ungar í barneignum". Sko — það er ekki bara að ég sé komin á „þennan aldur", ég er líka búin aö vera í sambúð lengi og hef lokið námi. Þess vegna, býst ég við, hef ég lengi ekki mátt taka upp barn á þess að sæluhrollur fari um viðstadda — fyrir mína hönd. Eins hafa margar vinkonur mínar sem þegar eiga börn ekki átt orð til að lýsa því hvað barn- eign gefi lífinu mikið gildi. Og ég dreg það ekki í efa — mér finnst bara svo margt ann- að gera það líka. Ég hef til dæmis gert ýmislegt sem erfitt er að framkvæma sam- tímis barnauppeldi eða eftir að börnin verða stór, en einmitt þá ætla svo margir að byrja að njóta frelsisins. Þó frelsisþrá og svolitlar áhyggjur af ástandinu í heimin- um eigi einhvern þátt í því að ég hef ekki „drifið í því að eignast krakka" er aðal- ástæðan einfaldlega sú að mig hefur aldrei langað nógu mikið í barn. Stundum hefur mig langað pínulítið í stutta stund en aldrei nógu lengi til aö láta getnarvarnirnar sigla sinn sjó. Skrýtiö — en svona eru sumar konur og er ekki bara allt í lagi að leyfa þeim það! Ofurskynsamur andi Kæra Vera! Um leið og ég tilkynni um breytt heimilis- fang langar mig að gera nokkrar athuga- semdir við efni Veru, aðallega blaðið um mæðurnar og hamingjuna. Oft hefur um- fjöllun Veru hrært upp í mér og mig langað að láta í mér heyra. Vonandi hef ég loks manndóm í mér núna. Yfirleitt hefur mér fundist andinn í blað- inu svolítið menntakvennalegur og „ofur- skynsamur" og vantað hlýjuna í umræð- unni, hlýjuna sem er einmitt svo áberandi hjá konum sem tala saman af heilhug og gerir þær svo yndislegar. Hinn „kaldi andi“ (nú ýki ég nokkuð) kemur glöggt í Ijós í forystugreininni og sumum viðtölun- um um æðstu kvenlegu sæluna, og ég efast um að hann hæfi í mark. Tekur því að beina svona hvössum spjótum að þessum litla helgidómi okkar: Umhyggjunni, af- kvæmum, englunum? Er það ekki falska ímyndin sem við þurfum að brjóta niður? Varla er ætlunin að sverta mæður sem njóta hlutverksins eða gera þær barnlausu að nýrri fyrirmynd. Hér verður hver og ein að fá að velja og njóta. Ég held sem betur fer að íslenskar konur leyfi sér það enn á meðan systur okkar í öðrum vestrænum löndum eru hraktar inn á blindgötur af hinni nýju ímynd: Smartri, gáfaðri, vel- gengisglimmerkroppurinn meö glansandi hár á ægilegri framabraut (. . . þið getið haldið áfram að prjóna aftanvið. . .). Ég efast þó um að þær séu nokkuð „ham- ingjusamari" en við íslensku valkyrjur sem höfum leyft okkur að taka hliðarspor og fæða börn og ala I stolnum stundum. Hamingjan er mæld í augnablikum og við megum ekki líta framhjá þeim. Barnkríli sem kúkar á réttum tíma veitir furðulega mikla gleði, leyfum okkur að njóta hennar án kinnroða alveg eins og er ætlast til af okkur, það er ekki málið. Ég held að íslenskar mæður skeri sig talsvert úr og séu afslappaðri uppalendur en margar af öðru evrópsku þjóðerni og ís- lendingar tiltölulega frumstæðir hvað varðar börn og buru (börn eru sjálfsagður, eðlilegur hluti lífsins eins og hjá öllum öðr- um dýrategundum — þarna kom líffræð- ingurinn upp í mér). Það held ég að hjálpi þeim að halda sönsum í þessari annars vit- firrtu veröld. Nærveran við börn, eigin og annarra og þeirra hugarheim gerir manni lífið kærara. framtíðina dýrmætari, og ekki veitir af á kjarnorkuöld. Ungamóðir kemst ekki hjá því að taka eftir því hversu gjörsamlega hjálparvana krílið hennar er og upp á hana komið. Hún verður að vera varnarveggur þess og stuð- púði við umheiminn. Hún hlýtur að fá ann- an sjónarhól til að hugsa út frá, — og hver láir henni að fyllast vonleysi. Þessa hugs- anaholskeflu skrifa læknar auðvitað á hormónabreytingu — og sumum mæðrum finnst þær sviptar frelsi í bili. Ég held að barnsburður geti gefið kon- um stærri andrýmd og veitt þeim mikla hamingju. Látum það eftir okkur, heimur- inn þarfnast stórra kvenna. Það er ekki móðurhlutverkið sem er rangt, heldur gerviveröldin sem þarf að pússla nýburun- um inn í. Það er göfugt að hvetja konur til að hugsa um stöðu sína, en að slá upp úrelt- um klisjuhugmyndum sem bláköldum staðreyndum held ég sé að skjóta yfir markið. Ég get líka orðað þetta svo: Hvenær ætlum við að fara að byggja upp úr því sem búið er að rífa niður? (Og hvað skyldi vera langt þangað til karlmenn leyfa sér að leggjast í uppstokkandi naflaskoð- un?) Afsakið fráganginn en ég er hrædd um að hætta við allt saman ef bréfiö fer ekki í póst nú. Með bestu kveðjum, María Hildur Kæra María Hildur! Þakka þér kærlega fyrir bréfið. Mikið er nú gaman að fá bréf og uppörvandi að heyra að Vera hafi ,,hrært upp í" þér. Við vonum að svo sé með fleiri, því að til þess er leikurinn gerður. Vera á að vekja til um- hugsunar og umræðu. Þeim mun fleiri kon- ursemleggja orðíbeig, hvort heidur er með bréfi, spurningu, greinarkorni eða lengra máli, þeim mun betra. Ef við fáum ekki viðbrögð er hætt við að við skrifum út í vindinn. Til dæmis sýna athugasemdir þínar við ágústblaði Veru um móðurhlutverkið og hamingjuna okkur, sem unnum að því blaði, að okkur hefur ekki al- veg tekist að koma til skila því sem við ætl- uðum okkur. Það er fjærri okkur ölium að vilja varpa rýrð á móðurhlutverkið eða gera lítið úr hamingjunni, sem felst í því að eign- ast og ala önn fyrir barniog jafn fjærri okkur 3

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.