Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 16
^RLAR
KARL
^R K
.AR
KARL
iRLAR
:arla
! KA
KARL
.AR
KAR
:lar
k
-
.ARLAR KARLAR K.
KARLAR KARLAR
AR KARLAR KARL
LAR KARLAR KAR
KARLAR KARLAR
ARLAR KARLAR K.
■ KARLAR KARLAR
LAR KARLA
„RLAR
LAR KARLAR'
KARLAR KARLAR
R'LAR.ewdKARLAR KA
KARLAR KARLA KARLAR KARLA KARLAR KARLA KARLA
SUMIR GRÁTA EINIR MEÐ
Rætt viö Jóhönnu
Sveinsdóttur, höfund bókar-
innar „íslenskir elskhugar"
(útg. Forlagið).
Veru lék m.a. forvitni á aö
vita hvort viðmælendum
Jóhönnu í bókinni hefði
reynst auðvelt að tjá sig um
viðkvæm tilfinningamál,
hvort þeir virtust sætta sig
við þá karlímynd, sem þeir
ólustu upp við o.fl.
— Var erfitt að taka þessi við-
töl, vafðist viðmæiendum þín-
um tunga um tönn þegar þeir
áttu að tala um tilfinningamál
sín?
„Mér fannst síður en svo erf-
iðara að taka þessi viðtöl held-
ur en önnur löng viðtöl þar sem
viðmælandinn þarf að koma
víða við og vera dálítið per-
sónulegur. Sumir virðast halda
að það hafi verið rosalegt
áhlaupaverk að taka þessi við-
töl, ég hljóti að hafa þurft aö
tæla karlmenn með öllum
hugsanlegum ráðum í viðtal og
toga svo allt upp úr þeim með
töngum. En sú var alls ekki
raunin. Yfirleitt tóku menn
málaleitan minni mjög vel,
þótti þarft verk að safna til-
finningalegri reynslu karl-
manna á bók og vildu gjarnan
leggja sitt af mörkum. Sumir
voru óstöðvandi eftir að þeir
höfðu komist á skrið.
Einstaka viðmælanda þótti
að vísu dálítið óþægilegt að ég
skyldi ekki taka afstöðu jafnóð-
um til þess sem þeir voru að
segja en ég mátti að sjálfsögðu
ekki trufla þá með þvi móti.
Umræðurnar hefðu eflaust
tekið aðra stefnu ef viö hefðum
farið að rökræða. Mínar skoð-
anir skipta ekki máli í þessu
samhengi. En við slíka menn
samdi ég um að ef það væri
eitthvað sem þeir hefðu áhuga
á að ræða sérstaklega þá
skyldum við bara gera það eftir
að hinu formlega viðtali væri
lokið.
Mér finnst þessir átján við-
mælendur virðingarverðir fyrir
að hafa tekið þátt í þessu.
Fæstir þeirra gera nokkuð til
að „dulbúa" sig, gera sér
grein fyrir því að þeir sem til
þeirra þekkja sjá strax hverjir
þarna eru á ferð. Þeir höfðu
margir orð á því að þessum
málum væri þeir í raun reiðu-
búnir til að standa fyrir undir
nafni. — Sumir ganga nefni-
lega með þá ranghugmynd aö
íslenskir karlmenn séu svo lok-
aðir að þeir séu flestir ófærir
um að tjá tilfinningar sínar. Ég
tel að þessi bók afsanni þá
hugmynd."
— Fannst þér mikill munur á
viðmælendunum eftir aldri?
„Óneitanlega voru þeir í
yngri kantinum talsvert opnari
en þeir eldri, reiðubúnari til að
láta hlutina flakka og gera dá-
lítið grín að sjálfum sér í leið-
inni. Sumir gagnrýna ákaft hin-
16