Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 14

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 14
„Eitt er hvernig maður er og annað hvernig maður á að vera“ Viðmælandi minn, Bergþór Halldórsson er 38 ára gamall, hann er verkfræðingur að mennt, eiginkonan hans er myndmenntakennari og hefur starfað utan heimilis allan þeirra hjúskap. Þau eiga þrjú börn á aldrinum níu, ellefu og fjórtán ára og hafa bæði áhuga- málutan heimilisins. Bergþór er fæddur og uppalinn í sveit og segist lítið sem ekkert hafa hugsað um þaö, þegar hann var í heimahúsum, til hvers yrði ætlast af honum sem karlmanni í framtiðinni eða mótað með sér neina ákveðna karlímynd. — Ég spurði hvort hann hefði ákveðna hugmynd um þessa ímynd í dag. „Já, karlmaðurinn á að sinna heimiiisstörfum engu að síður en konan, hann má vissulega sýna tilfinningar sín- ar eins og til dæmis gráta (ef hann þá getur það), honum ætti alls ekki að þykja verra ef konan hefur frumkvæðið hvort heldur er í ástarlífinu eða á öðr- um sviðum. Ef hann á börn ætti honum að finnast sjálfsagt að sinna þeim, sýna þeim áhuga og hjálpa þeim við að leysa þau vandamál er upp kunna að koma hjá þeim.“ — Ert þú svona? „Það fer ekki alltaf saman hvernig maður er og hvernig maður á að vera. Miðað við konuna mína geri ég hlutfalls- lega miklu minna inni á heimil- inu, hún er einfaldlega miklu duglegri en ég. Mér fellur ágætlega að taka hlutunum ró- lega og slappa af en það á ekki við hana og það er líka ástæð- an fyrir því að hlutirnir lenda meira á henni. Að vísu vinn ég lengri vinnutíma utan heimilis- ins en hún og vildi gjarnan að hann væri styttri. Ég er orðinn þreyttur á að vinna eins mikið og ég geri núna. Þó held ég að ég væri ekki tilbúinn til aö vinna aðeins hálfan daginn úti þó svo að hún hefði hærri laun en ég. Mitt hlutverk á heimilinu í dag felst aðallega í því að sinna börnunum, hjálpa þeim eins og ég get til að leysa úr þeim málum er þau þurfa að- stoðar við. Meðan þau voru lítil og vöknuðu á nóttunni sinnti ég þeim eins og mamma þeirra utan rétt fyrstu vikurnar, örugglega ekki meira en nokk- uð álíka, held ég.“ — Nú veit ég að þú ferðast töluvert bæði innan lands og utan vegna starfs þíns, finnst þér sjálfsagt að þú getir farið hvenær sem er og skilið hana eina eftir með allt, vinnuna sína og ábyrgðina á börnunum og heimilinu? „Ja, það er erfitt að svara því hvort þetta er sjáfsagt en það liggur við að það verði að vera það vegna starfsins, auðvitað er hún ekki alltaf jafn hrifin af því að ég fari.“ — Hvað fyndist þér ef hún þyrfti að ferðast vegna síns starfs, fyndist þér það jafn sjálf- sagt? „Ég held þaö, ef hún væri í þannig starfi, hins vegar má vel vera að þegar til kastanna kæmi yrði ég kolvitlaus í skap- inu og hefði allt á hornum mér og krefðist þess að hún fengi sér öðruvísi starf. Það er erfitt að svara þessu án þess að reyna, hún hefur aldrei farið og skilið mig eftir einan með þetta allt saman." — Ef þið þurfið bæði að fara út að kvöldinu til í sitt hvorum erindagjörðum hvort sér þá um að útvega barnfóstru? „Nú orðið eru börnin orðin svo stór að við þurfum ekki barnfóstru og í gegnum árin hefur það verið mamma henn- ar sem hefur barnfóstrað. Meðan ég var við nám og við bjuggum úti í Svíþjóð þar sem tengdamömmu naut ekki við, skiptumst viö á að fara út og í þau skipti sem þetta hefur stangast á höfum við reynt að meta hvort erindið væri mikil- vægara og látið það þá ganga fyrir. Ef um hefur verið að ræða einhverja fasta tíma reynum við að komast hjá því að bæði þurfi að fara út á sama tíma en þegar annað hvort okkar þarf að breyta sínum áætlunum Viðmælandi Veru heitir Pétur Knútsson, öðru nafni Peter Ridgewell. Hann er á fimmtugs- aldri, fæddur og uppalinn í Eng- landi en er nú íslenskur ríkis- borgari og giftur íslenskri konu. „Spurningin er um að vera manneskjulegur eða ekki manneskjulegur. Mér hefur alltaf fundist að þessi typiska karlímynd sé jafnvel meiri af- skræming heldur en typíska kvenímyndin. Sú vakning sem vegna þessa held ég að ég hafi ekki síður gert það en hún! — Eru þessi mál rædd meðal félaga þinna eða starfsfélaga? „Ég hef ekki oröið var við það, nei þau eru ekki rædd. Al- mennt held ég að álitið sé að vera eigi verkaskipting á heimilunum ef bæði vinna úti og nú vinna jú konur utan heimilis mikið meira en þær gerðu. Þetta hefur allt breyst, það er ekki svo mjög langt síð- an að það var minnkun fyrir manninn ef konan hans vann úti. Það hlaut að vera vegna þess að hann gat ekki aflað nægra tekna.“ — Hvernig heldur þú að kon- unni þinni finnist þú standa þig í hlutverkinu? „Ég held að henni hljóti að finnast ég latur við heimilis- störfin enda hefur hún veru- lega mikið til síns máls.“ — Þér finnst að þú ættir að taka meiri þátt í þeim? „Já, já.“ R.E. hefur átt sér stað hjá konum er vakning í þá átt að gera mann- eskjuna manneskjulegri, en hún nefur ennþá ekki átt sér stað hjá stórum hluta kvenna. Samt hefur hún í miklu minna mæli átt sér stað hjá körlum. Mér hefur alltaf fundist erfitt að leika þessa hefðbundnu karlarullu. Það byrjaði strax þegar ég var krakki og ungling- ur. Þessvegna hef ég verið mjög heppinn að þær konur „Týpiska karlímyndin er afskræming“ 14

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.