Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 11

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 11
„Harkan gildir í ljónagryfjunni“ Vera ræðir við 33ja ára tæknimann, kvæntan og föður tveggja dætra. — Vera biður viðmælanda sinn að byrja á þvíað líta til baka til strákahópsins á unglingsár- unum. Hvernig áttu strákar að vera á þeim árum og hvernig viidum við stelpurnar að þið væruð? „Kaldir og töff. Viö áttum fyrst og fremst aö vera kaldir og töff. En þaö gilti bara þegar viö vorum aö skemmta okkur. Þar fyrir utan, þegar maður var bara með strákunum þurftum viö ekkert á þessu aö halda.“ — Bara í skemmtanalífinu segirðu. Þ.e.a.s. bara þegar stelpurnar voru með. Fannst þér það fyrst og fremst vera þær sem gerðu þessar kröfur tii ykkar? „Já. Ég var t.d. ekkert aö flýta mér aö fara í rúmiö meö stelpum. Ég var rómantískur og vildi hafa ást og rómantík meö og hafði þar að auki feng- iö strangkristið uppeldi. Þá fékk ég aö finna aö ég geröi ekki skyldu mína. Stelpurnar uröu móðgaðar. Seinna lét maður kannski stundum tilleiö- ast, lét undan þrýstingi. Þetta er eins og maður hefur heyrt konur lýsa reynslu sinni. Ég held aö þetta hafi verið miklu algengara en almennt er talið, að stákar hafi ekki viljað sofa hjá stelpum án ástar og róm- antíkur." — Rædduð þið þetta strák- arnir? ,,Við töluðum aldrei um það. Ekki heldur þeir sem blóðlang- aði til að segja frá reynslu sinni. Kenningin var sú að þeir töluðu mest, sem hefðu minnsta reynslu. Þess vegna sagði enginn neitt! Ég hef mikla þörf fyrir að hitta kunningja mína frá ung- lingsárunum nú. Ég man ekki til að ég hafi dregið í efa karl- ímyndina á- þessum tíma. Ég var öruggur og áhrifagjarn eins og hinir. Mig langar að hitta þá núna og láta þá vita hver ég er.“ — Fannstþér viðhorfin breyt- ast síðar, á árunum milli 70 og ‘80, þegar þú ert kominn yfir tvítugt. Fannst þér þá að konur gerðu ekki lengur samskonar kröfur til þín um,, karlmennsku " heldure.t.v. þvertá móti, aðþær gerðu kröfur um breytta ímynd? „Ekki á meðan ég var „í Ijónagryfjunni". Það breyttist ekkert. Það er ekki fyrr en ég er búinn að vera giftur í nokkur ár að mér var Ijóst að það var ekki þetta sem krafist var af mér. Einnig aðrar konur komu öðru vísi fram við mig, eftir að ég varð „giftur maður“. Nú átti ég ekki lengur aö vera kaldur gæi. Þvert á móti held ég að það sé einmitt fyrir það að ég er ekki málsvari karlmennskunnar sem ég eignaðist góða kunn- ingja úr hópi kvenna.“ — Urðu árekstrar milli þess hlutverks sem þú varst alinn upp til að gegna og þess, sem þú vilt — og verður að gegna I dag? „Það var ekki auðvelt aö vera allt í einu heimilisfaðir. í byrjun átti ég erfitt með að ná áttum í hlutverkinu. Feður okk- ar voru húsbændur á sínu 11

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.