Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 38

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 38
Afríku fyrir níu árum síðan vegna þess að ANC er ólög- legt þar. Hún sagði að ástandið í Suður-Afríku væri vægast sagt mjög bágborið og að sér væru mjög minnistæð ummæli þriggja kvenna sem komu þaðan til Nairobi í sumar. Þær sögðu að það væri til lítils fyrir svarta konu í Suður-Afríku að vera aö tala um frið, þróun og jafnrétti, því í hennar landi er kúgun lögboðin, þróun varnað sam- kvæmt lögum og jafnrétti ólöglegt. Því hefur ekkert skeð í kvennamálum í Suður-Afríku og mun ekkert ske í framtíðinni nema þjóðfélagsbreyting eigi sér stað, sögðu þær. Hólmfríður benti einnig á aö ef hægt er að segja að svarti meirihlutinn í Suður-Afríku búi við kúgun þá búa svartar konur við tvöfalda kúgun. Konurnar hafa ennþá minni möguleika en karlmennirnir. Þær hafa enga at- vinnumöguleika, nema helst ef vera skyldi eldabuskur og þjónustustúlkur hjá hinum hvítu. Þær hafa ekki leyfi til að vinna í námum né heldur sinna þeim störfum sem svartir karlmenn fá að vinna. í Suöur-Afríku er svörtum skipað að búa á vissum svæðumsem kölluðeru heimasvæði, sagði Hólmfríður. Þar er enga vinnu að fá og verður því að flytja karlmenn- ina í vinnubúðir nær vinnustöðum þeirra. Konurnar eru einar við að hugsa um fjölskylduna og rækta þann skika sem þeim hefur verið skaffaður. Mennirnir vinna baki brotnu fyrir mjög lágum launum og meirihluti launanna fer í að borga fæði og húsnæði í vinnubúöunum. Kon- urnar telja sig lánsamar ef þeim tekst að halda lífi í börn- um sínum en því miöur gengur það erfiðlega þar sem á heimasvæðunum, er hvorki vatn, heilsugæsla, skólar né annar munaður. Meir en helmingur barna þeirra deyr áður en þau ná fimm ára aldri, Hólmfríður sagði að konurnar hafi bent á að fyrirsjá- anlegt væri stríð í Suður-Afríku og að konurnar hefðu haft áhyggjur af því að hjálparstofnanir væru ekki við- búnar því blóðbaði sem yrði. Þær sögðu að eiginlega þyrfti að fara fram undirbúningur í nágrannalöndunum, þar sem mikill fjöldi flóttamanna ætti eftir að beinast þangað. Að lokum var Hólmfríður spurð hvað henni fyndist um viðskiptabönn þau er verið er að setja á Suður-Afríku? Það er regin misskilningur að bönn þessi komi verst niður á blökkumönnum, sagði Hólmfríður. Það kemur hvort sem er ekkert í hendur þeirra af þeim peningum sem Suður-Afríka fær fyrir viðskipti sín. Viðskiptabann er sterkasta vopnið sem almenningur hefur því það minnkar það peningamagn sem hvíti minnihlutinn hefur og notar meðal annars til þess að halda blökkumönnum niðri með vopnavaldi. Minni auraráð hvítafólksins getur þýtt færri vopn og þar með auknar líkur á að líf blökku- manna geti breyst. „Kvennasamstaðan er óendanlega mikilvæg“ Á Alþingi er til nefnd sem hefur haft þann starfa aö koma á sérstakri samvinnu á milli þjóðþinga íslands, Grœnlands og Færeyja. Þetta er þingmannanefnd og í henni eiga sœti einn fulltrúi frá hverjum jjingflokki. Nefnd þessi hélt til Nuuk á Grænlandi í haust og stofnaði þar Vestnorræna Þingmannaráðið ásamt samskon- ar sendinefndum frá Lögþingi Færeyinga og Landsþingi Grœnlendinga. Sigríður Dúna sat fyrir hönd Kvennalistans ísendinefndinni, ein af sexfulltrúum íslands og eina konan sem tókþátt í stofnun ráðsins. ,,Konurnará Grænlandi létu íIjós mjög mikinn áhuga á kvennafram- boðum, bœði til bœjastjórna og landsþingsins“ segir Sigríður Dúna í viðtali við Veru um Grænlandsför sína í haust. Vera kom að máli við Sigríði Dúnu og spuröi hana hver væri tilgangurinn með stofnun ráðs þessa? ,,Til- gangurinn með stofnun ráðsins er að stuðla að auknu samstarfi á milli þessara 3 þjóða sem eiga svo margt sameiginlegt. Þessar þjóðir eru allar litlar eyþjóðir, hafa allar reynslu af nýlendustjórn Dana og eiga allar af- komu sína undir sjávarútvegi þannig að það er margt sem tengir okkur saman. Ætlunin er að koma á marg- víslegu samstarfi milli landanna, t.d. hvað varðar hag- nýtingu náttúruauðlinda en einnig á sviði menningar- viðskipta-, og samgöngumála,“ sagöi Sigríður Dúna. „Erindið til Nuuk var að koma þessu samstarfi formlega á laggirnar og ganga frá stofnskrá um það. Þessi stofn- skrá verður síðan lögð fyrir þjóðþing landanna þriggja til staðfestingar." „Hvað finnst þér vera mikilvægast við þetta sam- starf,“ var Sigríður Dúna spurð. „Kannski er aukin þekking og gagnkvæmur skilningur á aðstæðum og lífi fólks í þessum löndum eitt það mikilvægasta. Gagn- kvæmur skilningur er undirstaða allrar samstöðu og í því sambandi má minna á aö undanfarið hafa þessar þjóðir átt í deilum um lífsbjörgina þ.e. um nýtingu fiski- stofnanna í hafinu á milli landanna. Nánari kynni og aukinn skilningur þjóðanna á milli er örugglega mikils virði við að leysa slíkar deilur." „Meö samstöðu á Alþjóðavettvangi gætu þessar þrjár eyþjóðir einnig fengið ýmsu góðu komið til leiðar,

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.