Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 33

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 33
um. Magdalena benti á skipulag Grafarvogs, þar sem Fjallkonuvegur klýfur gönguleið barna í skóla og á ný- legt skipulag Skuggahverfisins, en samkvæmt því er börnunum ætlaö að fara yfir Hverfisgöguna á leið í skóla ,,því það er ekki pláss fyrir skóla í nýja undra- hverfinu“ eins og hún orðaði það. Það kann að vera hægt að afsaka það, þegar hraðbrautir liggja þvert á skólahverfi í gömlum hverfum — eins og Sogavegur, Barónsstigur, Hofsvallagata og fleiri götur gera, sagði Magdalena; við því er einmitt reynt að ráða bóta með hraðatakmarkandi aðgerðum. En í nýjum hverfum er það óafsakanlegt og það má furðu sæta að strax skuli vera farnar að berast beiðnir um öldur frá íbúum Grafar- vogsins. „Umferðamál snerta ekki aðeins umferða- nefnd, þau snerta líka þá sem hafa með það að gera hvert börnin þurfa að fara og hversu oft á dag. Þau snerta þá sem hafa með það að gera hvert fólk sækir vinnu, þ.e. hvar atvinnutækifærunum er fyrir komið og hvort það þurfi meiri háttar þjóðflutninga tvisvar á dag iborginni. Þausnerta þá, sem hafayfirverslunarháttum að segja, þá sem ráða almenningsvagnakerfinu, hvort þjónusta þeirra er góð og ódýr. Umferðarmál snerta þá sem hafa með dagvistunarmál að gera, hvort börnin eigi kost á öruggu útivistarsvæði, og þau snerta þá sem hafa með málefni aldraðra að gera. ,,Meö þessu sagð- ist Magdalena vilja vekja athygli borgarstjórnar á því að umferðaröryggi í borginni snerti í raun flestar nefndir hennar og ráð. Hver er beittur ofbeldi? Hún sagði það rangt að kalla öldur „ofbeldisaðgerð- ir“ eins og ónefndur maður hefði gert, þvert á móti væri það fólk ofbeldi beitt, sem bera þyrfti daglegan kvíða í brjósti um öryggi barna sinna eða aldraðra ættingja. Það væri ekki ofbeldi að reyna að fá ökumenn til að ferð- ast á löglegum hraða og það væri ekki annað sem verið væri að gera meö hraðahindrandi aðgerðum. Borgar- ráð, Strætisvagnar Reykjavíkur og viðhorf í garð upp- hækkananna hefðu verið helstu Þrándar í Götunni, nú væru viðhorfin greinilega að breytast og því skoraði hún á borgarstjórn að leggja tillögunni lið, þar með myndi borgarstjórn renna stoðum undir þau viðhorf, að það sé frá sjónarhóli þeirra, „sem okkur ber skylda til að halda hlífðarskildi yfir, sem taka þarf ákvarðanir, ekki aðeins um umferðarmál, heldur flest þau mál, sem borgarstjórn þarf að skera úr um.“ Magdalena sagðist að lokum eiga þó ósk, að borgarfulltrúar vendu sig á að ímynda sér að þau væru fimm, sex, sjö ára kríli á leiðinni heim úr skólanum: „í hvert skipti sem við erum að koma á bílunum okkar hingað á þessa fundi, um hálf-fimm leytið þegar rökkva tekur og veðrið er eins og það er bú- ið að vera undanfarna daga (slagveður!) skulum við hugsa okkur að við séum bara svona lítil að brjótast heim til okkar úr skóla með ekkert til að treysta á nema endurskinsmerkin dinglandi utan á okkur og þekkingu á umferðareglum, sem enginn fer eftir nema við. Þessi litlu kríli ættu að geta treyst á okkur líka.“ k.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.