Vera - 01.09.1986, Side 2
VERA
4/1986 — 5. árg.
Biskup íslands, æðsti hirðir þjóðkirkjunnar, hefur sent frá
sér hirðisbréf sem ber heitið ,,Kirkjan öllum opin“. Er bréfinu
ætlað að vera n.k. stefnumörkun fyrir presta og söfnuði á ís-
landi. Síðasti kafli bréfsins nefnist „tímabil undirbúnings“ og
er þar fjallað um undirbúning að þúsund ára afmæli kristni-
töku á íslandi árið 2000. í lok þessa kafla líkir biskup fóstur-
eyðingum af félagslegum ástæðum við útburði barna í heiðn-
um sið. Hann segir: ,,Nú hefur það gerst hjá þjóð okkar, að
þau fornu lög (sem heimiluðu útburð barna) hafa aftur verið
tekin í gildi, þ.e.a.s. að fóstureyðingar eru leyfðar af félags-
legum ástæðum." Þessi samlíking biskups hlýtur að verka
eins og reiðarslag á fjölmargar konur sem af einhverjum
ástæðum hafa orðið að gangast undir fóstureyðingu. Með
þessum orðum er æðsta embætti kirkjunnar að setjast í dóm-
arasætið gagnvart konum.
Það vekur athygli að biskup minnist eingöngu á fóstureyð-
ingar af félagslegum ástæðum. Af samhengi bréfsins má
skilja að hann æski þess að sá þáttur laganna sem þær heim-
ilar verði numinn úr gildi fyrir árið 2000. Biskup og þeir kirkj-
unnar menn sem honum fylgja að málum hljóta að grundvalla
skoðun sína á hugmyndum sínum um kristilegt siðgæði og
helgi mannlegs lífs. Telji þeir þá mannhelgi ná til fósturs á
fyrstu þremur mánuðum meðgöngu þá hlýtur hún að vera
óskoruð. Þá nær hún líka til fósturs sem komið hefur undir við
nauðgun sem og þess sem á einhvern hátt er ógnun við heil-
brigði móður. Þá eru þeir alfarið andsnúnir fóstureyðingum.
Þegar núverandi fóstureyðingalöggjöf var til umræðu á
Alþingi fyrir rúmum 10 árum sagði Magnús Kjartansson, fyrr-
um heilbrigðisráðherra, að rétturinn til ákvarðana í samræmi
við siðgæðishugmyndir hvers og eins væri hluti af þeirri
vegsemd og þeim vanda að lifa. Þeim vanda eru konur fylli-
lega vaxnar. Á þær er lögð sú ábyrgð sem því fylgir að koma
nýju lífi til vits og þroska, oft við erfiðar aðstæður. Þá ábyrgð
hafa þær axlað á sama tíma og samfélagið hefur hlaupist
undan henni. Þær eru því öðrum fremur þess umkomnar að
taka þá vandasömu ákvörðun hvort þær vilji eða hafi að-
stæður til að bera burðinn og ala önn fyrir honum.
Breyting á núverandi fóstureyðingalöggjöf leysir engan
siðferðisvanda — hún eykur hann. Breyting getur heldur ekki
komið í veg fyrir fóstureyðingar af félagslegum ástæðum.
Fjöldi kvenna yrði ofurseldur því hlutskipti að leita sér ólög-
legrar aðgerðar sem kostar offjár og ómældar þjáningar.
Ábyrgðin væri eftir sem áður kvennanna en stjórnvöld hefðu
gilda fjarvistarsönnun. Að firra þau allri ábyrgð er siðferðileg
léttúð. Nær væri að kalla þau til ábyrgðar á aðbúnaði og fram-
tíð þeirra barna sem þegar eru í heiminn fædd.
— isg.
Útgefendur:
Kvennaframboöiö í Reykjavík
og Samtök um Kvennalista.
Símar: 22188, 21500, 13725
í VERU NÚNA:
3 Lesendabréf
4—5 Á bak við tjöldin
rætt um kjörin á veitingahúsum
6 Mæður Reykjavíkur
7 Ljóð
8—9 Fer minni tími í húsverkin?
Heimilistæki — fjötur eöa frelsi?
10—11 Myndmálið getur opnað
farveg
rætt viö Rósu Steinsdóttur
12—13 Ofbeldi gagnvart börnum
14—15 Héðan og Þaðan
16 Vinnumiðlun
17 Brjótum múrana
18 Skrafskjóða
Guörún Ólafsdóttir skrafar
20—25 Kvikmynd er baráttutæki
rætt viö kvikmyndagerðarkonuna
Bonnie Sherr Klein
26—29 Borgarmál
30—33 Þingmál
34 Húsin sem konurnar eiga
um Hlaövarpann
36 Simone de Beavoir
37 Leiklist
37 Bió
39 Bækur
Mynd á forsíðu: Ms
Konan á myndinni
er Gloria Swanson 1919
Ritnefnd:
Guðrún Ólafsdóttir
Guörún Kristmundsdóttir
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir
Kristín Á. Árnadóttir
Kristin Blöndal
Magdalena Schram
Ragnhildur Eggertsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
Utlit:
Malla, Stína og Kicki
Starfsmaður Veru:
Kicki Borhammar
Auglýsingar og dreifing:
Ragnhildur Eggertsdóttir
Ábyrgð:
Magdalena Schram
Setning og filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Pnentun:
Solnaprent
Ath. Greinar i Veru eru birtar
á ábyrgð höfunda sinna og eru
ekki endilega stefna útgefenda.